Fréttablaðið - 30.06.2020, Síða 8

Fréttablaðið - 30.06.2020, Síða 8
NÝTT EFNI DAGLEGA 900+ KVIKMYNDIR TITLAR 160+ BARNAEFNI TITLAR 400+ ÞÁTTARAÐIR TITLAR á aðeins 3.990 kr./mán. Úrval afþreyingar fyrir alla í sumar Eigðu skemmtilegt sumar með Stöð 2 Maraþon, heima eða á ferðinni. Tryggðu þér áskrift í dag á stod2.is. 3 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð PÓLLAND Andrzej Duda, forseti Pól- lands, leiðir forsetakosningarnar eftir fyrstu umferðina á sunnudag. Hlaut hann um 44 prósent sem þýðir að aðra umferð þarf til, milli hans og Rafal Trzakowski, hins frjálslynda borgarstjóra Varsjár, sem fékk um 30 prósent. Mun hún fara fram þann 12. júlí. Niðurstöðurnar voru að miklu leyti í takt við kannanir, en þar var Duda spáð 42 prósenta fylgi og Trza- kowski 30 prósentum. Fjölmiðlamaðurinn óf lok ks- bundni Szymon Holownia hlaut 13,3 prósent atkvæða og mun ekki taka þátt í seinni umferðinni. Kannanir benda til að meirihluti stuðnings- manna Holownia komi til með að styðja Trzaskowski í seinni umferð- inni. Búist er við því að Duda beri sigur úr býtum þó ekki með jafn afgerandi hætti og kannanir bentu til í apríl þegar kosningarnar áttu að fara fram en var frestað vegna COVID-19 faraldursins. Voru þá líkur á að hann myndi vinna með meirihluta í fyrri kosningunum. Duda er fram bjóðandi stjórn ar- flokks ins íhalds sama Laga og rétt- læt is. Ef hann tapar má búast við talsverðum breytingum í átt að frjálslyndi í landinu, en Duda hefur meðal annars lýst samkynhneigð sem „hug mynda fræði hættu legri en komm ún isma“. Pólverjar á Íslandi eru hins vegar ekki jafn hrifnir af honum og landar þeirra í heimalandinu. Því hann fékk aðeins rúm 400 atkvæði í kosning- unni sem fór fram í pólska sendiráð- inu, eða rúmlega 12 prósent atkvæða. Þetta er mjög í samræmi við þingkosningarnar sem fóru fram í október síðastliðnum. Lög og rétt- læti tryggðu sér hreinan meirihluta á pólska þinginu með 44 prósentum atkvæða. En hér á Íslandi fékk flokk- urinn aðeins 17 prósent og endaði í fjórða sæti. Frjálslyndir frambjóðendur eiga fremur upp á pallborðið hér á Íslandi. Hlaut Trzakowski flest atkvæði, eða 33,5 prósent. Þar á eftir kom sjón- varpsmaðurinn Szymon Holownia með 24 prósent en hann fékk 14 í heildarkosningunni. Þá hefur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavík- ur lýst yfir stuðningi við Trzakowski. Athygli vekur að Krzysztof Bosak, frambjóðandi Þjóðfylkingar öfga- hægrimanna, hlaut langtum betri kosningu hér á landi en í Póllandi, rúmlega 21 prósent á móti tæplega 7. En f lokkur hans vill meðal ann- ars taka upp dauðarefsingu að nýju, banna þungunarrof, leyfa byssueign almennings og er á móti réttindum innflytjenda og hinsegin fólks. Þetta er reyndar einnig í samræmi við úrslit þingkosninganna árið 2019. Þá fengu öfgahægrimenn tæplega 26 prósent á Íslandi og voru næst- stærstir en fengu aðeins 7 prósent í heimalandinu. Að lokum ber að nefna að Robert Biedron, frambjóðandi Vinstri- bandalagsins, fékk tæplega 7 pró- sent hér á Íslandi en aðeins rúm 2 í heildarkosningunni á sunnudag. kristinnhaukur@frettabladid.is Forsetinn með lítinn stuðning hér á landi Einvígi verður milli hins íhaldssama Andrzej Duda og hins frjálslynda Rafal Trzakowski í seinni umferð pólsku forsetakosninganna. Pólverjar sem búa á Íslandi styðja síður Duda en samlandar þeirra í heimalandinu. Hinn íhaldssami Duda fékk aðeins 12 prósent á Íslandi en verður líklega endurkjörinn forseti Póllands. MYND/EPA Trza kowski hefur heitið því að bæta samskipti landsins við ESB. MYND/EPA SAMFÉLAG Meðalævilengd karla á Íslandi var 81 ár árið 2019 og meðal- ævilengd kvenna 84,2 ár. Frá árinu 1988 hafa karlar bætt við sig rúm- lega sex árum og konur rúmlega fjórum í meðalævilengd. Frá þessu er greint á vef Hagstofunnar. Á tíu ára tímabili, frá 2009 til 2018, var meðalævi karla lengst í Sviss, 80,9 ár, og skipuðu þeir fyrsta sætið í Evrópu. Fast á hæla þeim komu karlar á Íslandi með 80,8 ár og Liechtenstein með 80,4 ár. Sænskir og ítalskir karlar urðu að meðaltali 80,2 ára og Norðmenn 79,9 ára. Á sama tímabili var meðalævi kvenna á Spáni 85,8 ár og í Frakk- landi 85,6 ár og skipuðu þær fyrsta og annað sæti í Evrópu. Næst á eftir komu konur í Sviss með 85,2 ár, á Ítalíu með 85,1 ár, í Liechtenstein með 84,4 ár og Lúxemborg með 84,2 ár. Íslenskar konur skipuðu sjöunda sæti og urðu þá að meðal- tali 84,1 árs. Árið 2019 létust 2.275 einstakling- ar sem búsettir voru á Íslandi, 1.157 karlar og 1.118 konur. Dánartíðni var 6,3 látnir á hverja 1.000 íbúa og ungbarnadauði 1,1 barn af hverjum 1.000 lifandi fæddum árið 2019. – uö Lífslíkur á Íslandi með þeim mestu í Evrópu Karlar hafa bætt sex árum við ævina frá 1988. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.