Fréttablaðið - 30.06.2020, Qupperneq 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason
hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
EF BÓK FÆR UM-
FJÖLLUN Í KILJUNNI
ÞÁ LÁNAST HÚN ÚT. HÚN SELST.Svanur Már Snorrason komst að því eftir nokkra eftirgrennslan að lítið sem ekkert fræðilegt efni hefur verið skrifað um Kilju Egils Helgasonar, einhvern
vinsælasta og langlífasta menning-
arþátt íslenskrar sjónvarpssögu.
Hann ákvað þá að bregðast við
þessum skorti með BA-ritgerð
sinni í almennri bókmenntafræði
við Háskóla Íslands og hefur nú, af
sömu ástæðu, gefið hana út í litlu
kveri, kiljunni Egils saga og Kilj-
unnar.
„Ég var bara búinn að vera að
velta fyrir mér hinu og þessu til að
fjalla um og fór eitthvað að pæla í
Agli og Kiljunni og fann enga rit-
gerð eða neitt mikið um þáttinn
og Egil,“ segir Svanur sem ákvað að
„rýna aðeins í þáttinn og kallinn“.
Bækur á biðlista
Rannsóknarspurningin sem Svanur
leitast við að svara er hvort bók-
menntaþátturinn Kiljan í umsjón
Egils Helgasonar sé áhrifamikill
þáttur varðandi bókmenntalíf
Íslendinga.
„Jahá, ég get svo sannarlega
staðfest það,“ segir hann og hlær.
„Ég vann á bókasafni í níu ár og
þar tókum við öll eftir því að á
fimmtudögum, daginn eftir þátt-
inn, streymdi fólk inn á bókasafnið
bara til þess að leita að bókum sem
höfðu verið til umfjöllunar í Kilj-
unni kvöldið áður,“ segir Svanur og
heldur áfram:
„Og eiginlega bara allt, sem Egill
eða gagnrýnendur þáttarins fjöll-
uðu um, var lánað út og oftast komu
biðlistar þannig að maður renndi
svo sem í grun að þessi þáttur væri
mjög áhrifamikill.“
Yfirgnæfandi áhrif
Svanur ræðir í ritgerðinni meðal
annars við bókaútgefendur og
verslunarstjóra hjá Eymundsson
og þar ber allt að sama brunni og í
bókasafninu. „Ef bók fær umfjöllun
í Kiljunni þá lánast hún út. Hún
selst. Og ef hún fær góða gagnrýni
þá er þetta bara smellur. Bara topp
tíu,“ segir Svanur og bætir við að
þátturinn gnæfi þannig algerlega
yfir bókmenntalífinu á Íslandi í dag
hvað áhrif og völd varðar.
Þannig að tilfinningin á bókasafn-
inu var ekki alveg út í bláinn?
„Alls ekki. Hún er alveg staðfest.“
Alþýðuhetja í menningunni
Svanur bendir á að Kiljan byrjaði
í Sjónvarpinu 2007. „Ég held það
sé þrettánda árið núna og þetta er
sem sagt sá menningarþáttur sem
hefur verið samfellt lengst á dag-
skrá RÚV,“ segir Svanur og bendir á
að þetta sýni greinilega að Egill nái
til almennings.
„Það er einmitt það sem Egill
hefur. Hann er svona einhvers
konar venjulegur alþýðumaður.
Hann talar ekkert eins og einhver
fræðingur. Hann talar mannamál
og almenningur hrífst af honum.
Hann er ekki fjarlægur fræðimaður.
Hann er nálægur alþýðumaður,“
segir Svanur sem í ritgerðinni talar
um Egil sem „ómenntuðu“ sjón-
varpsstjörnuna.
„Hann er vinsæll og svona í það
heila er voðalega lítið hægt að finna
einhverja mikla gagnrýni á hann
eða eitthvað svoleiðis. Flestum
þykir hann fara vel með völdin sem
hann hefur og það er vel af kallinum
látið.“
Toppurinn að komast í Kiljuna
Svanur skrifaði ritgerðina um Egil
og Kiljuna með Úlfhildi Dagsdóttur
sem leiðbeinanda en gefur hana nú
út í vasabroti. „Mig langaði bara
mjög mikið til þess af því að það er
einmitt ekkert svona efni, eins og
þessi ritgerð, til um þennan vinsæla
þátt og um þennan vinsæla þáttar-
stjórnanda.
Ég er að vonast til þess að fólk hafi
áhuga á sögu Kiljunnar og Egils og
þess vegna langaði mig að prófa að
gefa þetta út.“
Og væri þetta þá ekki fullkomnað
ef ritgerðin yrði tekin til umfjöllunar
í Kiljunni?
„Jú, það væri dálítið sniðugt að
einhver skoðaði eða gagnrýndi bók
um Kiljuna í Kiljunni,“ segir Svanur
og hlær. „Það væri ekkert leiðin-
legt.“ toti@frettabladid.is
Egils saga og Kiljunnar
sýnir mátt þáttarins
Svanur Már Snorrason vann á bókasafni þegar hann varð sterkt
var við áhrif Egils Helgasonar og Kiljunnar sem hann rannsakaði
frekar í BA-ritgerð um áhrif Egils á bókmenntalíf þjóðarinnar.
Svanur Már Snorrason og Áróra Rún, sex ára dóttir hans, njóta lífsins þegar litla kiljan hans um Egil Helgason og
Kiljuna er komin úr prentsmiðjunni og bíður þess að rata til áhugasamra lesenda. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
3 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
RUM
ÚTSAL
S A
A
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
VIÐ SENDUM FRÍTT
STILLANLEG RÚM | HEILSURÚM OG -DÝNUR | GAFLAR | SÆNGUR | KODDAR | SVEFNSÓFAR | STÓLAR | SÆNGURFÖT, O.FL.
ALLT AÐ 60%
AFSLÁTTUR
UNDRI
HEILSUINNISKÓR
DÚNVÖRUR
SÆNGURFÖT
SLOPPAR
FYRIR HANN & HANA