Fréttablaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 6 1 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 2 3 . J Ú L Í 2 0 2 0
P Y L S U R
hafðu þær með á grillið í sumar
B
ES
TA
MAT
ARPYLSA
N
ÁRIÐ 2020
DÓMSMÁL Kári Orrason, rúmlega
tvítugur Reykvíkingur, hefur verið
ákærður fyrir að óhlýðnast fyrir-
mælum lögreglu í anddyri dóms-
málaráðuneytisins í apríl í fyrra þar
sem hann, ásamt félögum sínum í
samtökunum No Borders, krafðist
fundar með ráðherra um aðbúnað
flóttamanna á landinu.
„Við vorum fimm úr hópnum
sem vorum handtekin í þessum
friðsamlegu og fullkomlega löglegu
setumótmælum í ráðuneytinu,“ segir
Kári. Hin handteknu voru sökuð um
húsbrot en það mál var látið niður
falla. Tveimur úr hópnum, Kára og
félaga hans, Borys Ejryszew, hefur nú
rúmu ári síðar verið birt ákæra frá lög-
reglustjóranum á höfuðborgarsvæð-
inu. Kári er, ásamt Borys, ákærður
fyrir brot gegn lögreglulögum með
því að hafa, föstudaginn 5. apríl 2019,
óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um
að yfirgefa anddyri dómsmálaráðu-
neytisins, að Sölvhólsgötu 7 í Reykja-
vík, er lögregla vísaði fólki á brott úr
anddyrinu. Í ákærunni er þess krafist
að hann verði dæmdur til refsingar. Á
hann yfir höfði sér fésekt að viðlögð-
um sakar- og málskostnaði verði hann
sakfelldur samkvæmt ákærunni.
„Við mættum báðir við þingfest-
ingu málsins í júní þar sem við neit-
uðum sök,“ segir Kári, sem svarar
fyrir sig í opnu bréfi til Höllu Berg-
þóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á
höfuðborgarsvæðinu, á vef Frétta-
blaðsins í dag. – aá
Ákærður eftir mótmæli
Ungur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lög-
reglu í dómsmálaráðuneytinu í fyrra. Hann hyggst neita sök við þingfestingu.
Við mættum báðir
við þingfestingu
málsins í júní
þar sem við
neituðum sök
Kári Orrason
VIÐSKIPTI Sporthýsaframleiðand-
inn Mink Campers hefur þegar
selt alla framleiðslu þessa árs enda
hefur eftirspurn ferðahýsa af ýmsu
tagi aukist eftir kórónuveirufarald-
urinn. Fyrirhugað er að framleiða
60 sporthýsi á þessu ári hjá Mink
Campers, að sögn Arnar Ingva Jóns-
sonar, framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins.
Um þessar mundir stendur
fjármögnunarferli fyrirtækisins
yfir á hópfjármögnunarsíðunni
Funderbeam. Að fjármögnunar-
ferli loknu er áætlað að f lytja fram-
leiðslu fyrirtækisins til Lettlands
þar sem af kastagetan er áætluð
450–500 sporthýsi á næsta ári og
allt að 1.500 eintök á ári frá árinu
2022. – thg / Sjá síðu 6
Allt seldist hjá
Mink Campers
Leikmenn Liverpool fögnuðu vel og innilega þegar liðið tók við verðlaunum fyrir sigur liðsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í Kop-stúkunni á nánast tómum Anfield-leik-
vanginum. Þessir mætu menn sáu til þess að 30 ára bið Liverpool eftir enska meistaratitlinum er á enda. Farið er yfir hvað hefur gerst á þessum 30 árum í heiminum á síðu 14. MYND/GETTY
S A M F É L A G S l ö k k v i l i ð s m e n n
umgangast mikið ef eiturefnum
sem sum eru krabbameinsvald-
andi. Eldri slökkviliðsmenn, sem
notuðu ekki eins mikið reykköf-
unartæki og núverandi slökkvi-
liðsmenn, eru líklegri til að fá
krabbamein og aðra sjúkdóma.
Jón Viðar Matthíasson, slökkvi-
liðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu,
segir mikla vakningu hafa orðið
innan slökkviliðsins með varnir,
þrif og annað.
Froðan sem notuð hefur verið
í slökkvistarfi inniheldur ýmis
skaðleg efni sem geta haft áhrif á
heilsu manna. Jón Viðar segir að
margar tegndir séu til af froðu og
verið sé að reyna að bregðast við
vandanum. – bb / Sjá síðu 4
Froðan getur
valdið krabba