Fréttablaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Helga hefur mikinn áhuga á tísku, ljósmyndun, förðun, mat og menningu. „Ég hef
lengi haft brennandi áhuga á
tískuheiminum í heild sinni. Ég
man eftir því að hafa fylgst með
mömmu minni, sem þá vann í
Alþingi, hafa sig til á morgnana
með stjörnur í augunum, enda
var hún alger „girl-boss“ og mikil
tískufyrirmynd mín. Túberað
og permað hárið var fest með
heilmiklu lakki, indjána púðrið
svokallaða dustað yfir allt andlitið,
axlapúðar í yfirstærð og gylltar
YSL-snyrtivöruumbúðir standa
upp úr í minningunni,“ rifjar
Helga upp og bætir við að hún hafi
snemma heillast af glamúrnum í
kringum tískubransann.
„Þegar ég var í kringum ferm-
ingaraldurinn komst ég í ítalska
Vogue í bókabúð niðri í bæ og þá
varð ekki aftur snúið. Listrænar
myndirnar og litadýrðin gjörsam-
lega heilluðu mig upp úr skónum.
Svo þegar ég komst í bresku og
bandarísku tímaritin varð ég
hrifin af vel völdum orðunum og
hvernig þau mynduðu nánast ljóð
og það fyllti mig miklum inn-
blæstri. Ég gekk um með litla vasa-
stílabók þar sem ég skrifaði ensk
orð sem mig langaði til að nota og
fletti þeim upp í orðabók. Ég vissi
að leið mín myndi liggja að þeim
ferli sem ég hef skapað mér í dag og
dreymdi ung að árum um að fá að
ritstýra tískutímariti,“ segir Helga,
sem er í draumastarfinu. „Ég rit-
stýri HÉR ER, sem er tísku- og lífs-
stílsvefur Smáralindar. Markmiðið
er að veita lesendum innblástur,
hugmyndir og ráð um allt sem
tengist fegurð, hönnun og lífsstíl. Í
um áratug var ég blaðamaður hjá
Vikunni og Nýju lífi og förðunar-
ritstjóri hjá íslenska Glamour
og Nýju lífi. Vinir mínir segja
stundum að ég sé eins og gangandi
alfræðiorðabók þegar kemur að
tískubransanum.“
Látlaus fatastíll
Helga fylgist að sjálfsögðu vel
með nýjustu tískustraumum. „Ég
geri varla annað allan daginn,
alla daga, bæði starfsins vegna og
af áhuga. Ég skoða mikið vefinn
whowhatwear.com, Harper's
Bazaar og Porter Magazine. Eins
vefverslanir á borð við Mytheresa.
com og Netaporter.“
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Helga Kristjáns segist hafa komist í ítalska Vogue á fermingaraldri og eftir það varð ekki aftur snúið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hálsmen sem móðir Helgu gaf
henni og er í miklu uppáhaldi.
Úrið sem Helga „stal“ af eiginmann-
inum er einn af eftirlætishlutunum.
Hver smáhlutur
er útpældur hjá
Helgu.
íslensku fyrir konur með þroskaða
húð,“ segir Helga sem stefnir að
því að vera með tvö myndbönd á
mánuði.
En hvernig myndir þú lýsa
þínum fatastíl og hefur hann
breyst í gegnum tíðina? „Fata-
stíllinn minn er frekar látlaus og
hefur þróast heilmikið í gegnum
árin. Ég nálgast fertugt óðfluga og
finnst loksins eins og ég sé með
minn eigin stíl á hreinu. Góðar
gallabuxur, skyrta í seventís-stíl
og blazer með axlapúðum er það
sem ég aðhyllist einna helst. Uppá-
haldslitirnir eru kamellitur, grár
og lillafjólublár. Til spari vel ég
oftast kjól sem undirstrikar mittið
og kvenlegar línur.“
Hundurinn át uppáhalds-
kjólinn og eyðilagði hann
Notar þú fylgihluti og skart? „Ég
er lítið fyrir að skipta um fylgi-
hluti dagsdaglega. Ég er alltaf með
giftingarhringinn, demantsfléttu-
hring frá Orrafinn og gullhring
sem maðurinn minn gaf mér og
stundum trúlofunarhring móður
minnar. Ég held líka mikið upp á
Sif Jakobs-eyrnalokkana mína, úr
sem ég stal af manninum mínum
og skeljahálsmen sem mamma
gaf mér í afmælisgjöf en hún fékk
það í lítilli búð á Skólavörðustíg
sem heitir Skúmaskot. Mér þykir
svo vænt um það því bæði elska ég
skeljar og Skólavörðustíg, enda bjó
ég á tveimur stöðum á þeirri götu
sem krakki. Svo get ég ekki án Tom
Ford-gleraugnanna minna verið,
ég sé ekkert án þeirra og þau eru
líka minn uppáhaldsfylgihlutur.“
Bestu fatakaupin? „Bundinn kjóll
úr & Other Stories úr 100% silki,
sem maðurinn minn valdi fyrir
mig í borgarferð til Berlínar. Hann
virkar við öll tilefni. Ég hef notað
hann á árshátíð, á ströndina, í
borgarferð, uppi í Eiffel-turni, ólétt
af börnunum mínum og í vinnuna.
Því var mikil sorg þegar Stormur,
hundurinn okkar, át hann þegar
hann var hvolpur. Ég varð að panta
mér annað eintak á vefsíðu þeirra
og hann var kominn daginn eftir,
ég er ekki að ýkja. & Other Stories
er ein af allra mestu uppáhalds-
búðunum mínum en ég mun passa
upp á að halda kjólnum frá Stormi í
framtíðinni,“ segir Helga brosandi.
Þegar hún er spurð hver séu
verstu fatakaupin þarf hún ekki
að hugsa sig lengi um. „Þegar ég
var ekki búin að uppgötva þægi-
lega skó keypti ég oft trendí skó í
ódýrari verslunum sem gáfu mér
hælsæri og höfuðverk.“
Hvað gerir þú við föt sem þú ert
hætt að nota? „Mamma fer fyrst í
gegnum það sem ég ætla að gefa og
svo fer restin í Rauða krossinn. Ég
hef ekki enn gerst svo fræg að selja
af mér fötin. Og mér finnst mjög
gott að gefa.“
Þá hefur Helga vakið mikla
athygli fyrir förðunarmynd-
bönd en á Instagram og Facebook
Sensai hafa þau fengið rúmlega
fjörutíu þúsund áhorf. „Íslenskar
konur virðast almennt ánægðar
með förðunarráðleggingarnar. Ég
held að konur yfir 35 hafi svolítið
gleymst á Youtube og ekki mikið í
boði af förðunarmyndböndum á
Kjóll, pils, eða buxur? „Góðar
gallabuxur eru gulli betri. Mínar
uppáhalds heita Lash og fást í
Weekday. Eins elska ég Taiki frá
Monki, báðar verslanirnar eru í
Smáralind.“
Blúnda eða leður? „Blúndu-
skyrta við leðurjakka eða
buxur.“
Háir hælar eða flatbotna?
„Eiginlega hvorugt. Ég elska nýju
Reebok-strigaskóna mína sem
eru með örlítilli upphækkun,
það er eins og að ganga á skýja-
hnoðra að vera í þeim.“
Þröngt eða vítt snið? „Bæði.
Andstæður heilla.“
Gloss eða varalitur? „Mýkjandi
varalitur í nude lit. Uppáhaldið
mitt heitir Suzuran Nude og er
frá Sensai og fæst í Hagkaup.“
Framhald af forsíðu ➛
LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
STUTTBUXUR, KVARTBUXUR,
ÖKKLABUXUR OG SÍÐBUXUR FRÁ
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R