Fréttablaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Helga hefur mikinn áhuga á tísku, ljósmyndun, förðun, mat og menningu. „Ég hef lengi haft brennandi áhuga á tískuheiminum í heild sinni. Ég man eftir því að hafa fylgst með mömmu minni, sem þá vann í Alþingi, hafa sig til á morgnana með stjörnur í augunum, enda var hún alger „girl-boss“ og mikil tískufyrirmynd mín. Túberað og permað hárið var fest með heilmiklu lakki, indjána púðrið svokallaða dustað yfir allt andlitið, axlapúðar í yfirstærð og gylltar YSL-snyrtivöruumbúðir standa upp úr í minningunni,“ rifjar Helga upp og bætir við að hún hafi snemma heillast af glamúrnum í kringum tískubransann. „Þegar ég var í kringum ferm- ingaraldurinn komst ég í ítalska Vogue í bókabúð niðri í bæ og þá varð ekki aftur snúið. Listrænar myndirnar og litadýrðin gjörsam- lega heilluðu mig upp úr skónum. Svo þegar ég komst í bresku og bandarísku tímaritin varð ég hrifin af vel völdum orðunum og hvernig þau mynduðu nánast ljóð og það fyllti mig miklum inn- blæstri. Ég gekk um með litla vasa- stílabók þar sem ég skrifaði ensk orð sem mig langaði til að nota og fletti þeim upp í orðabók. Ég vissi að leið mín myndi liggja að þeim ferli sem ég hef skapað mér í dag og dreymdi ung að árum um að fá að ritstýra tískutímariti,“ segir Helga, sem er í draumastarfinu. „Ég rit- stýri HÉR ER, sem er tísku- og lífs- stílsvefur Smáralindar. Markmiðið er að veita lesendum innblástur, hugmyndir og ráð um allt sem tengist fegurð, hönnun og lífsstíl. Í um áratug var ég blaðamaður hjá Vikunni og Nýju lífi og förðunar- ritstjóri hjá íslenska Glamour og Nýju lífi. Vinir mínir segja stundum að ég sé eins og gangandi alfræðiorðabók þegar kemur að tískubransanum.“ Látlaus fatastíll Helga fylgist að sjálfsögðu vel með nýjustu tískustraumum. „Ég geri varla annað allan daginn, alla daga, bæði starfsins vegna og af áhuga. Ég skoða mikið vefinn whowhatwear.com, Harper's Bazaar og Porter Magazine. Eins vefverslanir á borð við Mytheresa. com og Netaporter.“ Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Helga Kristjáns segist hafa komist í ítalska Vogue á fermingaraldri og eftir það varð ekki aftur snúið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hálsmen sem móðir Helgu gaf henni og er í miklu uppáhaldi. Úrið sem Helga „stal“ af eiginmann- inum er einn af eftirlætishlutunum. Hver smáhlutur er útpældur hjá Helgu. íslensku fyrir konur með þroskaða húð,“ segir Helga sem stefnir að því að vera með tvö myndbönd á mánuði. En hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl og hefur hann breyst í gegnum tíðina? „Fata- stíllinn minn er frekar látlaus og hefur þróast heilmikið í gegnum árin. Ég nálgast fertugt óðfluga og finnst loksins eins og ég sé með minn eigin stíl á hreinu. Góðar gallabuxur, skyrta í seventís-stíl og blazer með axlapúðum er það sem ég aðhyllist einna helst. Uppá- haldslitirnir eru kamellitur, grár og lillafjólublár. Til spari vel ég oftast kjól sem undirstrikar mittið og kvenlegar línur.“ Hundurinn át uppáhalds- kjólinn og eyðilagði hann Notar þú fylgihluti og skart? „Ég er lítið fyrir að skipta um fylgi- hluti dagsdaglega. Ég er alltaf með giftingarhringinn, demantsfléttu- hring frá Orrafinn og gullhring sem maðurinn minn gaf mér og stundum trúlofunarhring móður minnar. Ég held líka mikið upp á Sif Jakobs-eyrnalokkana mína, úr sem ég stal af manninum mínum og skeljahálsmen sem mamma gaf mér í afmælisgjöf en hún fékk það í lítilli búð á Skólavörðustíg sem heitir Skúmaskot. Mér þykir svo vænt um það því bæði elska ég skeljar og Skólavörðustíg, enda bjó ég á tveimur stöðum á þeirri götu sem krakki. Svo get ég ekki án Tom Ford-gleraugnanna minna verið, ég sé ekkert án þeirra og þau eru líka minn uppáhaldsfylgihlutur.“ Bestu fatakaupin? „Bundinn kjóll úr & Other Stories úr 100% silki, sem maðurinn minn valdi fyrir mig í borgarferð til Berlínar. Hann virkar við öll tilefni. Ég hef notað hann á árshátíð, á ströndina, í borgarferð, uppi í Eiffel-turni, ólétt af börnunum mínum og í vinnuna. Því var mikil sorg þegar Stormur, hundurinn okkar, át hann þegar hann var hvolpur. Ég varð að panta mér annað eintak á vefsíðu þeirra og hann var kominn daginn eftir, ég er ekki að ýkja. & Other Stories er ein af allra mestu uppáhalds- búðunum mínum en ég mun passa upp á að halda kjólnum frá Stormi í framtíðinni,“ segir Helga brosandi. Þegar hún er spurð hver séu verstu fatakaupin þarf hún ekki að hugsa sig lengi um. „Þegar ég var ekki búin að uppgötva þægi- lega skó keypti ég oft trendí skó í ódýrari verslunum sem gáfu mér hælsæri og höfuðverk.“ Hvað gerir þú við föt sem þú ert hætt að nota? „Mamma fer fyrst í gegnum það sem ég ætla að gefa og svo fer restin í Rauða krossinn. Ég hef ekki enn gerst svo fræg að selja af mér fötin. Og mér finnst mjög gott að gefa.“ Þá hefur Helga vakið mikla athygli fyrir förðunarmynd- bönd en á Instagram og Facebook Sensai hafa þau fengið rúmlega fjörutíu þúsund áhorf. „Íslenskar konur virðast almennt ánægðar með förðunarráðleggingarnar. Ég held að konur yfir 35 hafi svolítið gleymst á Youtube og ekki mikið í boði af förðunarmyndböndum á Kjóll, pils, eða buxur? „Góðar gallabuxur eru gulli betri. Mínar uppáhalds heita Lash og fást í Weekday. Eins elska ég Taiki frá Monki, báðar verslanirnar eru í Smáralind.“ Blúnda eða leður? „Blúndu- skyrta við leðurjakka eða buxur.“ Háir hælar eða flatbotna? „Eiginlega hvorugt. Ég elska nýju Reebok-strigaskóna mína sem eru með örlítilli upphækkun, það er eins og að ganga á skýja- hnoðra að vera í þeim.“ Þröngt eða vítt snið? „Bæði. Andstæður heilla.“ Gloss eða varalitur? „Mýkjandi varalitur í nude lit. Uppáhaldið mitt heitir Suzuran Nude og er frá Sensai og fæst í Hagkaup.“ Framhald af forsíðu ➛ LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna STUTTBUXUR, KVARTBUXUR, ÖKKLABUXUR OG SÍÐBUXUR FRÁ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.