Fréttablaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 13
AF KÖGUNARHÓLI Þorsteinn Pálsson Sjálfstæðisf lokkurinn vill f lytja kosningar varanlega yfir á haustin. Stjórnarand-staðan vill halda í hefðir og kjósa að vori. Forsætis-ráðherra hefur ekki tekið afstöðu. Ef að líkum lætur mun von stjórnar- f lokkanna um hagfelldari skoðana- kannanir að ári ráða kjördegi. Tæknileg rök og pólitísk rök Tæknileg rök mæla gegn því að hafa reglulegar kosningar að hausti. Reynslan hefur sýnt, eftir tvennar haustkosningar í röð, að svigrúm nýrra ríkisstjórna til að setja strax mark sitt á fjárlög hefur verið full þröngt. Pólitísk rök standa hins vegar til þess að stytta kjörtímabilið og kjósa nú í haust. Við stöndum andspænis alveg nýjum aðstæðum í efnahags- málum. Ríkisstjórnin hefur þegar lögfest margvíslegar skammtíma ráðstafanir. Í haust þarf svo að leggja línur fyrir framtíðina á nýjum forsendum. Frá sjónarhóli kjósenda sýnist því vera eðlilegt að stjórnmálaf lokkarnir leiti eftir nýju umboði til þeirra stóru ákvarðana. Við fyrstu kynningu á skyndiráð- stöfunum ríkisstjórnarinnar sagði formaður Framsóknar að í kjölfarið yrði ekki snúið aftur til sama hag- kerfis og grundvallarbreyting yrði á samskiptum við aðrar þjóðir. Þetta var mikil pólitísk yfirlýsing. Ef innistæða er á bak við hana er óeðlilegt að hefja framkvæmd hennar á næsta vetri án nýs umboðs frá kjós- endum. Sameiginleg ríkisfjármála- stefna fyrir næsta kjörtímabil Stjórnmálin standa ekki bara and- spænis nýjum efnahagslegum aðstæð- um. Nýju lögin um fjármálastefnu og fjármálaáætlun til fimm ára setja stjórnarf lokkana sjálf krafa saman í spennitreyju í kosningabaráttunni. Síðasta verk þeirra fyrir kosningar að vori eða annað haust verður að ákveða sameiginlega ramma um skatta og útgjöld ríkisins út allt næsta kjörtímabil og ári betur. Í kosningum boðar Sjálfstæðis- f lokkurinn jafnan lækkun skatta og minni útgjöld. Þetta verður ekki hægt að ári þegar kjörtímabilinu lýkur með málamiðlun við VG um ríkisfjármála- stefnu fyrir næsta kjörtímabil. Af sömu ástæðu getur VG ekki boðað stórhækkun skatta á þá ríku og stóraukin útgjöld. Sjálfsagt fara f lokkarnir formlega með óbundnar hendur í kosningar. En gangi þeir til þeirra með annan boðskap í ríkisfjármálum en þeir hafa samið um fyrir næsta kjörtímabil, eru þeir um leið að segja að samstarfið hafi misheppnast. Stjórnarf lokkarnir komast þannig ekki hjá því að leggja sameiginlega málamiðlun um ríkisfjármálastefnu í dóm kjósenda. Þetta er nýtt í íslenskri pólitík. Stjórnarf lokkarnir verða komnir í hnappheldu næsta kjör- tímabils áður en síðasti dansinn fyrir kosningar er stiginn. Opnari staða fyrir stjórnarand- stöðuna er um leið áskorun Það veikir f lokka með algjörlega gagnstæð sjónarmið í ríkisfjármálum að ganga heftir með sameiginlega málamiðlun til kosninga. Þetta opnar aftur á móti stöðuna fyrir f lokkana í minnihlutanum. Þeir þurfa hver fyrir sig að finna leið til að nýta möguleikana sem það gefur. En ábyrgð þeirra verður líka meiri. Eiginlega kallar þessi fimm ára ríkisfjármálaáætlun á f lokkamynstur þar sem kjósendur geta valið á milli tveggja innbyrðis líkra fylkinga. Þær aðstæður eru þó ekki fyrir hendi. Skýrara málefnalegt val en oft áður Stjórnarandstöðuf lokkarnir fimm eru ólíkir rétt eins og stjórnarf lokk- arnir. Þar af leiðandi er óhyggilegt fyrir þá að láta kosningarnar snúast um þá alla í heild sem sameiginlegan kost til að leysa núverandi stjórn af hólmi. Sú málamiðlun yrði jafn útvötnuð og sáttmáli sitjandi ríkis- stjórnar. Mestar líkur standa því til þess að kosningarnar snúist um það hvort stjórnin fær sameiginlega áfram- haldandi umboð eða hvort tveir eða f leiri af þeim fimm f lokkum, sem eru í stjórnarandstöðu, fái nægjanlega fylgisaukningu til að brjóta samstarf f lokkanna þriggja upp með því að semja við einn eða tvo þeirra. Tapi stjórnarf lokkarnir naumlega er þó nærtækast fyrir þá að endurnýja samstarfið með Miðf lokknum. Það myndi breyta minnstu eins og síðasta stjórnarmyndun gekk út á. Þótt ekki verði kosið beint á milli stjórnar og stjórnarandstöðu gætu þessar nýju aðstæður leitt til þess að kjósendur fái skýrara málefnalegt val en oft áður. Í hnapphelduna fyrir dansinn Tapi stjórnarflokkarnir naum- lega er þó nærtækast fyrir þá að endurnýja samstarfið með Miðflokknum. TIL VERKEFNA Í FERÐAÞJÓNUSTU Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu í samstarfi landanna þriggja geta sótt um styrki til samstarfsverkefna á eftirfarandi sviðum ferðaþjónustu: · Til nýsköpunar- og vöruþróunarverkefna · Til sameiginlegra markaðssetningarverkefna · Til þekkingarheimsókna og miðlunar gagnkvæmrar reynslu milli ferðaþjónustuaðila · Til gæða- og umhverfismála innan ferðaþjónustunnar Hámarksstyrkur til verkefnis er 100 þúsund danskar krónur, eða að hámarki 50% kostnaðar áætlunar. TIL KYNNIS- OG NÁMSFERÐA Um er að ræða ferðastyrki til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 1.000 danskar krónur vegna ferða milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Færeyja hins vegar. Ekki eru veittir styrkir vegna gistingar og uppihalds. Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra: · Skóla · Íþróttahópa · Tónlistarhópa · Annars menningarsamstarfs Styrkir frá NATA Samstarf Íslands, Grænlands og Færeyja á sviði ferðamála Ítarlegar upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum á ensku og dönsku er að finna á vef NATA www.nata.is. Frekari upplýsingar veitir Barbara Vang hjá NATA – nata@vinnuframi.fo Lokafrestur til að skila umsókn er 21. ágúst 2020. og mun niðurstaða stjórnar NATA liggja fyrir 15. október 2020. Athugið að verkefni með áætluð verklok fyrir 15. október 2020 teljast ekki styrkhæf. Í ár leggur stjórn NATA sérstaka áherslu á umsóknir sem tengjast sjálfbærri ferðamennsku. NATA er samstarfssamningur ferðamálaráðuneyta í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi. Markmið samningsins er að auka skilvirkni í samstarfi aðila er sinna ferðamálum í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi með því að styrkja, samhæfa og tryggja framboð samvinnuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta. w w w .s an si r.f o HVER VANN? Sportið á frettabladid.is færir þér allar nýjustu fréttirnar úr heimi íþróttanna. • Fræðsla • Ráðgjöf • Forvarnir S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F I M M T U D A G U R 2 3 . J Ú L Í 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.