Fréttablaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 2
 Þetta er eitt af því sem útlendingar skoða þegar þeir velja sér land til að læra í og safna flugtímum. Það er verið að eyða tveimur árum í að fljúga og þá er eins gott að það sé áhugaverð skólastofa. Arnbjörn Ólafsson, forstöðumaður markaðs- og alþjóðasviðs hjá Flugakademíu Íslands Veður Norðaustan 5-13 m/s í dag, hvass- ast norðvestantil, og áfram dálítil væta. Hiti 9 til 16 stig, en kólnar norðanlands. SJÁ SÍÐU 22 Brugðið á leik Það var ekki laust við að vegfarendur hafi orðið furðu lostnir þegar þeir ráku augun í óvenju afslappaða einstaklinga víða um miðbæinn í gær. Þegar betur var að gáð kom í ljós að um var að ræða uppákomu á vegum leiklistarhóps Hins hússins sem glæddu bæinn lífi. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI FJÁRMÁL Einstaklingum  verður gert auðveldara að eiga viðskipti með rafmyntir með nýrri þjónustu Bálka Miðlunar,“ segir Hlynur Þór Björnsson, forsvarsmaður fyrirtæk­ isins. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands  tilkynnti í gær að Bálk­ ar hefðu hlotið formlega skráningu sem þjónustuveitandi viðskipta á milli rafmynta og gjaldeyris. Miðlunin er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi, að sögn Hlyns. „Þetta er alhliða þjónusta fyrir ein­ staklinga sem vilja eiga viðskipti með rafmynt en skortir tækni­ þekkingu. Við aðstoðum viðskipta­ vini líka við áhættustýringu tengda rafmyntum, en sveif lur á verði þeirra geta verið mjög miklar.“ Bitcoin er þekktasta rafmyntin en sveif lur hafa verið miklar á verði þeirrar myntar, þó svo að til lengri tíma sé leitnin upp á við. Á síðustu tíu árum hefur gengi Bitcoin gagnvart  Bandaríkjadal hækk­ að úr innan við einum dal og upp í tæplega 20 þúsund dali þegar hæst lét í lok árs 2017. Síðustu vikur hefur verðið á einni Bitcoin  sveif last á milli níu og tíu þúsunda dala.   Hlynur bendir á að mikil gengis­ áhætta fylgi viðskiptum með Bitcoin. Þess vegna sé boðið upp á áhættustýringu hjá Bálkum: „Þetta er svokallað tauganet sem smám saman lærir inn á sveiflur myntar­ innar. Gervigreind sér svo um að kaupa og selja mynt fyrir hönd við­ skiptavina okkar.“ – thg Heimilað hefur verið að miðla rafmyntum Einstaklingar geta nú fengið aðstoð við rafmyntarviðskipti hérlendis. FLUG „Það eru vissulega öðruvísi tímar núna og þá hefur tvennt gerst. Annars vegar hefur erlendu nemendunum okkar fækkað og hins vegar er atvinnuf lugmanns­ starfið ekki jafn eftirsóknarvert og það hefur verið því f lugfélög eru að segja upp og draga saman. En nemendur okkar segja þetta vera besta tímann til að læra því þegar þau koma út eftir tvö eða þrjú ár þá stefnir í að bransinn verði kominn á flug að nýju,“ segir Arnbjörn Ólafs­ son, forstöðumaður markaðs­ og alþjóðasviðs hjá Flugakademíu Íslands. Skólinn er orðinn einn sá öflugasti á Norðurlöndunum, með á annan tug kennsluvéla og fullkomna flug­ herma auk þess að bjóða upp á verk­ lega aðstöðu á alþjóðaflugvellinum í Keflavík og á Reykjavíkurflugvelli. Bóklegt nám fer fram bæði í Hafnar­ firði og á Ásbrú í Reykjanesbæ. Ísland er svokallað „open­sky“ sem þýðir að það eru engin höft eða lokuð svæði fyrir kennsluflug. Nem­ endur fá þannig verklega þjálfun við krefjandi aðstæður og tæki­ færi til að fljúga á einhverja áhuga­ verðustu flugvelli sem völ er á. „Það er svolítið sem við erum að láta vita úti í heimi, að Ísland er með þetta „open sky“ eiginlega í tvennum skilningi. Annars vegar er hægt að koma hingað ef þú býrð í Evrópu og hins vegar er Ísland einstakt land til að læra að fljúga því það eru engin höft. Ef Ísland er borið saman við Danmörku, þar sem er lagt af stað á flugvelli í Billund og hringsólað svo í tvo tíma yfir Lególandi og neminn lendir svo á sama flugvelli. Á Íslandi er hægt að taka af stað á alþjóðaflug­ velli í Keflavík og f ljúga á Ísafjörð sem dæmi, sem er einn mest krefj­ andi völlur í heimi. Á leiðinni flýgur viðkomandi yfir fjöll, firði og jökla. Þetta er eitt af því sem útlending­ ar skoða þegar þeir velja sér land til að læra í og safna f lugtímum. Það er verið að eyða tveimur árum í að f ljúga og þá er eins gott að það sé áhugaverð skólastofa,“ segir Arn­ björn. Á undanförnum árum hafa fjöl­ margir erlendir nemendur ákveðið að leggja stund á atvinnuflugnám á Íslandi en í COVID­ástandi heims­ ins hefur þeim fækkað. Þó er búið að fullmanna einn atvinnuf lug­ mannsbekk í haust og hefur verið opnað fyrir umsóknir í annan bekk. „Það er um fjórðungur f lug­ nema hjá okkur konur en í heim­ inum er innan við fimm prósent atvinnuf lugmenn. Það er aukinn áhugi hjá konum sem er frábært.“ Það kostar um 12 milljónir sam­ kvæmt Arnbirni að verða atvinnu­ flugmaður, ef viðkomandi er blaut­ ur bak við eyrun þegar hann gengur inn. „Oft er þetta í DNA hjá fólki og svo fær fullt af fólki f lugbakteríuna. Það er til fullt af fólki sem fær í hnén við að sjá fallega lendingu,“ segir hann léttur. benediktboas@frettabladid.is Bjóðum upp á mjög áhugaverða skólastofu Eftir sameiningu Flugakademíu Keilis og Flugskóla Íslands er orðinn til einn stærsti flugskóli Norðurlanda. Skólinn útskrifaði 78 atvinnuflugmenn í vor. Ástandið í háloftunum er slíkt að frábært er að sækja sér menntun hérlendis. Um fjórðungur flugnema í Flugakademíu Íslands eru konur en í heiminum er hins vegar innan við fimm prósent atvinnuflugmanna konur. MYND/GETTY LÖGREGLA Skipað hefur verið tíma­ bundið í embætti lögreglustjóra í Vestmannaeyjum eftir að Páley Borgþórsdóttir færði sig nýverið um set. Arndís Bára Ingimarsdóttir hefur verið sett til að gegna embætti lög­ reglustjórans í Vestmannaeyjum tímabundið. Arndís Bára lauk fullnaðarprófi í lögfræði árið 2014. Hún var ráðin til starfa til lögreglunnar í Vest­ mannaeyjum árið 2016 og hefur síðan starfað þar á ákærusviði emb­ ættisins. Hún tekur við starfinu af Páleyju sem var nýlega skipuð í embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Páley tók við starfinu á Norðurlandi eystra þann 13. júlí síðastliðinn en hún hafði gegnt embætti lögreglustjórans í Vest­ mannaeyjum frá árinu 2015. – kdi Arndís tekur tímabundið við stjórn í Eyjum 2 3 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.