Fréttablaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 28
BÍLAR Skoda Enyaq verður fyrsti 100% rafdrifni bíll tékkneska fram- leiðandans og kemur á markað á næsta ári. Skoda hefur tilkynnt að Enyaq raf- bíllinn verði frumsýndur þann 1. september næstkomandi á netinu. Bíllinn fer í sölu á næsta ári og er ætlað að keppa við bíla eins og Tesla Model Y og Kia e-Niro. Að sögn talsmanna Skoda mun hann hafa mikið innanrými, eða svipað og í Skoda Kodiaq jepplingnum. Skoda hefur einnig sagt frá ýmsu varðandi vélbúnað bílsins, en hann verður byggður á Volkswagen MEB undirvagninum. Hægt verður að velja um afturhjóladrif eða fjór- hjóladrif og um þrjár stærðir af raf- hlöðum. Einnig verður hægt að velja um fimm mismunandi hestaf la- tölur. Hægt veður að hlaða bílinn á nýjustu 125 kW hleðslustöðvum, sem gerir það kleift að bæta 200 km við drægi bílsins á aðeins 15 mín- útum. Drægi bílsins með stærstu raf hlöðunni verður 500 km. Eins og sjá má af myndunum er bíllinn líkur Vision iV tilraunabílnum í útliti með afturhallandi þaklínu. Fram- og afturendi er mjög svip- aður Karoq í útliti. Að innan verður mjög stór snertiskjár í miðjustokki og er uppsetningin svipuð og í VW ID.3 þó að um nýtt mælaborð frá Skoda sé að ræða. Búast má við að hann deili sama vélbúnaði og raf- hlöðum og Volkswagen ID.4. Ef svo er, mun grunnútgáfan vera með 201 hestafls mótor við afturdrifið, og 82 kWst rafhlöðu. Kraftmesta útgáfan verður með tveimur mótorum og yfir 300 hestöfl. Fyrstu myndir af Skoda Enyaq-rafbílnum Hér er fyrsta mynd Skoda af hinum nýja Enyaq sem sýnir aðeins efri útlínur hans. Þessi njósnamynd náðist af Skoda Enyaq við prófanir nýlega og það sést vel að útlitslínur hans eru áþekkar nýjustu mynd Skoda af bílnum. SsangYong hefur hafið kynningar- herferð á nýjum Korando rafjepp- ling sem leysa mun eldri bílinn af hólmi. Hann kemur sem 100% raf bíll á næsta ári og mun þá hafa 320 km drægi. Búast má við að hann verði jafnvel ódýrari en sam- keppnisaðilar, eins og Hyundai Kona Electric, og keppi við Dacia Spring Electric í verði. Þótt um algerlega nýjan bíl sé að ræða verður ekki mikil breyting á útliti bílsins, og ljósabúnaður og yfir-  SsangYong birtir fyrstu myndir af nýjum Korando EV Litlar breytingar verða á rafút- gáfu Korando frá fyrri útgáfu og breyting- arnar aðallega á grilli og stuðara. Ford hefur frumsýnt eintak af Mach-E raf bílnum sem er ekki á hvers manns færi. Bíllinn var smíðaður fyrir driftstjörnuna Vaughn Gittin Jr. og er hvorki meira né minna en 1.399 hestöfl. Meira en 10.000 vinnustundir hafa farið í þróun bílsins, sem er með sjö rafmótorum. Mun bíllinn vera jafnvígur á keppnisbraut, kvartmílu eða í Gymkhana. Ford þróaði bílinn með RTR Vehicles og eru þrír rafmótorar við mismuna- drifið að framan, en fjórir settir saman eins og pönnukökur við afturdrifið. Undirvagn bílsins er hannaður til að geta notast við fram-, aftur- eða fjórhjóladrif og getur bíllinn sent allt af lið fram eða aftur, eða skipt því á milli ása. Handbremsan er vökvastýrð og sérhönnuð til notk- unar við driftakstur og getur slökkt á afli til afturhjóla á meðan hún er í notkun. Bremsuhleðslan er tengd við hemlalæsivörnina og skrik- vörnina. Aflið kemur frá sérhann- aðri 56,8 kWst rafhlöðu úr nikkel/ mangan/kóbalt blöndu sem kælir sig við bremsuhleðslu. Yfirbygg- ingin er að mestu úr koltrefjum en „vélarhlífin“ er úr lífrænum trefjum sem eru enn léttari. Loftflæðipakki bílsins pressar hann niður með meira en 1.000 kílóa þrýstingi, þegar hann hefur náð 240 km hraða. Bíllinn kemur fyrir almennings- sjónir í næstu Nascar-keppnum, ásamt rafdrifna Mustang Cobra Jet 1400 kvartmílubílnum. Ford Mach-E með 1400 hestöfl Alls eru sjö rafmótorar í hinum 1400 hestafla Mach-E og eru fjórir þeirra fyrir afturdrifið. Einnig verður hægt að velja um fimm mismunandi hestaf latölur. bygging að mestu leyti hið sama. Stuðarar eru endurhannaðir ásamt grilli og komin eru ný þokuljós. Aðeins einn rafmótor verður í boði sem skilar 188 hestöflum, sem er 27 hestöflum meira en bensín- vélin í eldri bílnum. Hámarkshraði verður takmarkaður við 160 km á klst. Rafhlaðan verður frá LG Chem og er 61,5 kWst og á að skila 400 km drægi samkvæmt NEDC staðlinum að sögn SsangYong, sem þýðir allavega 320 km drægi samkvæmt WLTP staðlinum í Evrópu. Mun Korando EV koma á markað næsta vor en verð hefur ekki verið gefið út ennþá. Von er á Korando tvinnbíl með dísilmótor árið 2022. demantshringurinn.is Menningarminjar og náttúruperlur á Norðurlandi Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is Von er á Kor- ando tvinnbíl með dísilmótor árið 2022. 2 3 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.