Fréttablaðið - 23.07.2020, Page 22

Fréttablaðið - 23.07.2020, Page 22
Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Saga hárkollunnar byrjar, eins og svo margar sögur, á sárasótt. Árið 1580 var sjúk- dómurinn orðinn einn versti faraldur sem riðið hafði yfir Evr- ópu frá svarta dauða. Gríðarlegur fjöldi sjúklinga troðfyllti sjúkra- hús í London og nýir bættust við daglega. Þar sem sýklalyf voru ekki í boði þurftu sjúklingarnir að takast á við sjúkdóminn af fullum þunga. Einkenni voru opin sár, slæm útbrot, blinda, minnisglöp og skallablettir. Skallafaraldur heltók Evrópu. Á þessum tíma þótti skalli mikil skömm. Sítt hár var stöðutákn og bert höfuð gat auðveldlega valdið fólki álits- hnekki. Samuel Pepys, enskur embættis- maður sem er í dag þekktastur fyrir dagbókarskrif sín á 17. öld, skrifaði eitt sinn í dagbók sína, þegar bróðir hann veiktist af sárasótt: „Ef hann lifir þetta af mun hann ekki geta sýnt á sér höfuðið, sem verður mikil skömm fyrir mig.“ Þessi skrif sýna hvað hár skipti gríðarlega miklu máli á þessum tíma. Þessi skömm á hárleysi varð til þess að hárkollugerð jókst til muna í kjölfar sárasóttarfarald- ursins. Sjúklingarnir földu skallann og andlitssárin með hár- kollum búnum til úr hesta-, geita- og mannshári. Hárkollurnar voru þaktar púðri með appelsínu- eða lavenderilm til þess að fela alla ólykt. Þrátt fyrir að þær væru algengar voru hárkollurnar ekkert sérstaklega fallegar. Þær voru bara skammarleg nauðsyn. En það breyttist árið 1655 þegar konung- ur Frakklands fór að missa hárið. Tískukóngarnir lögðu línurnar fyrir almúgann Loðvík XIV var ekki nema 17 ára gamall þegar hár hans tók að þynnast. Áhyggjufullur yfir því að skalli myndi skaða mannorð hans, réði hann 48 hárkollugerðar- menn til starfa til að bjarga ímynd sinni. Fimm árum síðar gerði Karl II Englandskonungur og frændi Loðvíks slíkt hið sama, þegar hár hans byrjaði að grána. Það er talið líklegt að báðir hafi verið með sárasótt. Fólk við hirðina og annað aðalsfólk fór strax í kjöl- farið að skarta hárkollum til að herma eftir kóngunum. Tískan smitaðist síðan niður í efri milli- stétt og nýjasta æðið í Evrópu leit dagsins ljós. Verð á hárkollum hækkaði og þær urðu tákn ríkidæmis. Hversdagshárkolla kostaði um 25 skildinga, sem voru vikulaun hins almenna Lundúnabúa. Verðið fyrir stórar glæsilegar hárkollur fór upp í allt að 800 skildinga. Fólk sem hafði efni á að kaupa stórar íburðarmiklar hárkollur notaði þær til að sýna ríkidæmi sitt. Eftir andlát þeirra Loðvíks og Karls héldu hárkollurnar enn velli vegna þess hve hagkvæmar þær voru. Þetta var á tímum þegar lýs voru alls staðar og tímafrekt og erfitt var að kemba hárið. Hár- kollur héldu vandanum í skefjum. Til að hárkollurnar pössuðu varð fólk að raka af sér hárið og þar af leiðandi sóttu lýsnar ekki í það. Þær komu sér aftur á móti fyrir í hárkollunum en mun auðveldara var að losna við þær þaðan. Hár- kollurnar voru einfaldlega sendar til hárkollugerðarmannsins sem sauð kolluna og losaði hana þann- ig við lúsanitin. Seint á 18. öld var tískan við það að deyja út. Almenningur í Frakklandi kom kollunum frá í byltingunni og Bretar hættu að nota kollurnar þegar stjórnvöld ákváðu að skattleggja hárpúðrið. Stutt náttúrulegt hár var næsta æðið hjá karlmönnum og var það áfram næstu tvær aldirnar, svona hér um bil. Hárkollur voru hagkvæm tíska Í næstum tvær aldir voru hárkollur það allra heitasta í tískunni. Þær hefðu þó aldrei orðið vinsælar ef ekki væri fyrir kynsjúkdóm, óörugga kónga og skort á hreinlæti. Fólk notaði hárkollurnar til að sýna ríkidæmi sitt. MYNDIR/GETTY Hárkollur voru í tísku í um það bil tvær aldir, aðallega hjá efri stéttunum. Tískukóngurinn Loðvík XIV réði til hirðarinnar fjörutíu og átta hárkollu- gerðarmenn þegar hann fór að missa hárið aðeins sautján ára gamall. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nán ri upplýsi gar um blaðið veitir: Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5654 / jonivar@frettabladid.is MARAÞON Veglegt sérblað Fréttablaðsins um maraþon kemur út föstudagi n 31. júlí nk. Í sérblaðinu Maraþon er tilvalið fyrir hin ýmsu góðgerðarfélög að kynna sig og benda hlaupurum um leið á frábært málefni til að styrkja. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.