Fréttablaðið - 23.07.2020, Blaðsíða 36
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason
hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
VIÐ ERUM ALMENNT
ÁHUGAMENN UM
GLÍMUNA VIÐ SJÁLFIÐ OG
MANNLEGA BREYSKLEIKA.
GLÍMAN VIÐ SATAN ER EILÍF, AÐ
ÞVÍ ER VIRÐIST, OG LAGIÐ
FJALLAR UM NOKKRAR LOTUR Í
ÞESSUM HARÐASTA BARDAGA
LÍFSINS.
Óli Rúnar Jónsson, gítarleikari
Kolsýra, ný hljómsveit þeir ra Bergsveins Arilíussonar leður-barka, Sturlaugs Jóns Björnssonar bassa-leikara og Óla Rún-
ars Jónssonar gítarleikara, hefur
sent frá sér sitt fyrsta lag og ber það
nafnið Ísafold. Í laginu, sem þegar
er farið að heyrast í útvarpi og hægt
er að nálgast á Spotify og helstu tón-
listarveitum, leikur Axel Flex Árna-
son á trommur.
„Kolsýra var köllun,“ segir Berg-
sveinn Arilíusson, einnig þekktur
sem Beggi í Sóldögg. „Það er svo
merkilegt hvernig hlutirnir detta í
fangið á manni. Óli Rúnar í Atóm-
stöðinni og Sturlaugur í Sinfó. Að
gera tónlist í þessu tríói er eins
og fyrir heimspeking að drekka
kaffi með Kierkegaard, Rousseu
og Marx,“ segir Beggi glettinn og
heldur áfram.
„Það sem er spennandi við Kol-
sýru er að næstu lög eiga eftir að
koma úr mjög óvæntum áttum. Kol-
sýra er ekki bundin einni tónlistar-
stefnu og er algjörlega landamæra-
laus. Þetta gefur okkur tækifæri á
að sameina reynslu okkar, styrk og
vonir, við að tjá okkur í tímalausu
leikverki sem Kolsýra er,“ bætir
hann við.
Aðspurður um lagið segir Óli
Rúnar að það sé einhvers konar
popp með snert af ógæfu, í bland við
smá þjóðlag og örlítinn kántrífílíng.
„Sem er bara gott á okkur, þar sem
hugmyndin með bandinu var ein-
hver poppádeila. Textinn er fram-
settur sem ættjarðaróður, en fjallar
þó fremur um baráttu einstaklings-
ins við sjálfan sig, um sjálfsflótta og
heimkomuna. Við erum almennt
áhugamenn um glímuna við sjálfið
og mannlega breyskleika. Glíman
við Satan er eilíf, að því er virðist,
og lagið fjallar um nokkrar lotur í
þessum harðasta bardaga lífsins,“
segir Óli Rúnar.
Hann segir að það megi alveg færa
rök fyrir því að upptakturinn að
bandinu sé þónokkur, þótt það sé
þannig séð nýtt. „Við Stulli vorum
staddir í Belgíu fyrir nokkrum árum
og duttum þar inn á stórskemmti-
lega tónleika með nokkrum psyc-
hedelic böndum í einhverri gamalli
skemmu. Þar var mjög seiðandi og
skemmtileg stemning og við upp-
götvuðum sameiginlegan áhuga á
svoleiðis pælingum. Í framhaldi var
einhvern veginn komið á langtíma-
planið að henda í einhverja vitleysu
– Kolsýru-nafnið er að hluta vísun í
þessar hugmyndir.
Fyrir um tveimur árum síðan
hittumst við svo með Begga og
sjálfu trommugimpi Hatara, Einari
Stef, og mjög skömmu síðar spiluð-
um við fyrsta gigg undir þessu nafni
fjórir, sem var mjög gaman. Það má
segja að Ísafold sé á talsvert öðrum
slóðum en þá og okkur grunaði að
við færum á, en við upptökur á því
fannst okkur þetta heiðarlegasta
niðurstaðan, það var sama hvað við
vildum rembast – Ísafold vildi verða
popplag,“ segir Óli Rúnar.
benediktboas@frettabladid.is
Kolsýra var köllun
Kolsýra, nýtt band Begga í Sóldögg, hefur sent frá sér lagið Ísafold.
Næstu lög koma úr óvæntum áttum, en Ísafold er kántrískotið.
Óli Rúnar Jónsson, Sturlaugur Jón Björnsson og Bergsveinn Arilíusson. MYND: EINAR INGI SIGMUNDSSON
Það er frítt
á könnunni
hjá Kvikk!
Við bjóðum lykilhöfum
Orkunnar upp á frítt, rjúkandi
heitt kaffi og kakó á næstu
Kvikk-stöð Orkunnar.
Verið velkomin
2 3 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð