Fréttablaðið - 24.07.2020, Side 2

Fréttablaðið - 24.07.2020, Side 2
Það er óforsvaran- legt að gera Lauga- veginn að göngugötu og á sama tíma að búa til slíka slysagildru Halldór Guðmundsson Veður Norðaustan 2–8 m/s, hvassast NV til, og dálítil rigning eða súld með köflum norðaustantil, en lítils hátt- ar skúrir um sunnanvert landið. Hiti 4 til 14 stig. SJÁ SÍÐU 16 Sólbað á svölunum GÓÐA FERÐ INNANLANDS   TAX FREE* af förðunarvörum, ilmvötnum og völdum húðvörum *19,35% verðlækkun Gildir 15. júní - 27. júlí 2020 í verslunum og í netverslun Ly SAMFÉLAG Um kvöldmatarleytið þann 11. júlí síðastliðinn var Hall- dór Guðmundsson á ferðinni á Laugavegi þegar hann varð fyrir því óhappi að renna til á listaverki sem nýlega hafði verið málað á götuna og stórslasaði sig. „Ég tók nokkur skref inn á verkið og skyndilega var sem fótunum hefði verið kippt undan mér,“ segir Halldór. Hann lenti illa á andlitinu og öxlinni og fann strax að eitthvað hefði gerst. „Ég fann strax að eitthvað var brotið í öxlinni. Mér var hjálpað á fætur og staulaðist síðan sárkvalinn og alblóðugur í framan inn á nær- liggjandi veitingastað, Lebowski Bar, þar sem hlúð var að mér. Ég kann þeim bestu þakkir fyrir umhyggjuna.“ Starfsmenn staðarins hringdu í leigubíl fyrir hann og þaðan fór hann beint upp á bráðamóttöku til þess að fá aðhlynningu. Þar kom í ljós að hann er viðbeinsbrotinn auk smærri áverka. Hann segist hafa verið svo ringlaður eftir slysið að hann hafi ekki kallað til lögreglu til þess að fá skýrslu um atvikið. Halldór vonar að það komi ekki að sök því að hann hyggst leita rétt- ar síns vegna slyssins. „Það er óforsvaranlegt að gera Laugaveginn að göngugötu og á sama tíma að búa til slíka slysa- gildru,“ segir Halldór. Hann segir að málarameistari hafi skoðað verkið fyrir sig og hans mat sé að þakmáln- ing hafi verið notuð í verkið. „Hún er f lughál, enda hrindir hún frá sér vatni. Ég tel að frágangurinn sé til skammar, það hefði þurft að setja sand eða eitthvað til þess að búa til eitthvert viðnám.“ Lögmenn Árbæ sjá um málið fyrir hönd Halldórs og hvetur hann til þess að aðrir sem hafa slasað sig á verkinu hafi samband við stofuna. „Ég hef heyrt af því að f leiri hafi runnið þarna til og slasað sig en hversu mikið veit ég ekki.“ Halldór segir að atvikið hefði ekki getað gerst á verri tíma fyrir sig persónulega. „Ég var búinn að starfa í tvær vikur hjá nýjum vinnu- veitanda sem bílstjóri fyrir fatlað fólk. Réttindi mín eru því mjög takmörkuð og ekki útlit fyrir að ég keyri bíl í bráð.“ Að sögn Halldórs er hann á biðlista fyrir aðgerð sem hann vonast til að komast í fyrr en síðar. björn@frettablaðið.is Rann á listaverki og hyggst kæra borgina Karlmaður á sjötugsaldri stórslasaðist á Laugaveginum í byrjun júlí þegar hann rann til á listaverki sem málað hafði verið á götuna. Slysið gerði mann- inn óvinnufæran og hyggst hann sækja skaðabætur frá Reykjavíkurborg. Halldór telur að flughál þakmálning hafi verið notuð. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI Sólbaðsþyrstir borgarbúar nutu sín vel í gær þegar brast á með bongóblíðu í Reykjavík. Iðandi mannlíf var á útivistarsvæðum um allt höfuð- borgarsvæðið en sumir nutu sín betur heima við á skuggsælum svölum. Sólríkt verður áfram á suðvesturhorni landsins í dag og á morgun og hiti allt að fimmtán stigum á höfuðborgarsvæðinu. Borgarbúar geta því áfram haft stuttbuxur og sólarvörnina uppi við. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI DÓMSMÁL Persónuvernd hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykja- víkur í máli Atla Rafns Sigurðar- sonar leikara. Með dóminum var úrskurður stofnunarinnar um að Leikfélagi Reykjavíkur væri ekki skylt að veita Atla Rafni aðgang að gögnum sem vörðuðu hann, felldur úr gildi. Um var að ræða upplýsingar um efni og uppruna kvartana gagnvart honum sem fram komu í vinnu- skjali leikhússtjóra Borgarleikhúss- ins um kvartanir sem beindust að honum og urðu til þess að honum var vísað úr starfi. Þegar dómur héraðsdóms féll hafði Atli Rafn þegar unnið skaða- bótamál sitt gegn Leikfélaginu og þáverandi leikhússtjóra þess vegna brottvikningarinnar. Samkvæmt forsendum dómsins var leikfélag- inu skylt að gefa Atla kost á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og því hefði borið að upplýsa hann um eðli þeirra ásakana sem borist höfðu. Trúnaður gagnvart við- komandi einstaklingum hafi ekki mátt leiða til þess að réttarstaða Atla yrði lakari en lög geri ráð fyrir. Voru Atla dæmdar 5,5 milljónir króna í skaðabætur úr hendi leik- félagsins og leikhússtjórans. Aðalmeðferð í leikfélagshluta málsins fer fram 19. október í Landsrétti en mál Persónuverndar er enn ekki komið á dagskrá Lands- réttar. – aá Bæði mál Atla til Landsréttar Atli Rafn mætti í dómsal ásamt Einari Þór Sverrissyni lögmanni. VIÐSKIPTI Ný fasteignalán til heim- ila í júní voru nánast eingöngu með óverðtryggðum, breytilegum vöxtum. Þetta kemur fram í nýjum tölum Seðlabankans um bankakerfi landsins. Íslensk heimili tóku óverðtryggð fasteignalán með breytilegum vöxtum fyrir samtals  31 milljarð króna í júní. Lán með föstum, óverð- tryggðum vöxtum voru uppgreidd um 2,5 milljarða á sama tíma. Á sama tíma námu uppgreiðslur á verðtryggðum lánum með föst- um vöxtum um 1,6 milljörðum, á meðan tekin voru ný lán fyrir 643 milljónir af verðtryggðum lánum með föstum vöxtum. Stýrivextir á Íslandi eru um þess- ar mundir í sögulegu lágmarki, en meginvextir Seðlabankans standa nú í einu prósenti. Ársverðbólga er 2,6 prósent samkvæmt nýjustu mælingum. – thg Óverðtryggðar lántökur aukast 2 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.