Fréttablaðið - 24.07.2020, Page 6

Fréttablaðið - 24.07.2020, Page 6
Ævintýraleið um Norðurland demantshringurinn.is EFNAHAGSMÁL Seðlabankinn mun beita sér fyrir því að sjálfstæði stjórnarmanna lífeyrissjóða verði tryggt til frambúðar og eyða öllum grunsemdum um skuggastjórnun. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að bankinn muni beita sér fyrir að lífeyrissjóðir fari eftir til- mælum Fjármálaeftirlitsins frá síðasta ári um endurskoðun á sam- þykktum sjóðanna sem tryggi góða stjórnarhætti. Þá muni bankinn einnig kalla eftir lagabreytingum þess efnis. Lögin þurfi að kveða skýrar á um sjálfstæði stjórnar- manna og fjármálaeftirlit Seðla- bankans þurfi auknar heimildir til að fylgja þeim eftir. „Að mínu áliti þarf að stíga miklu fastar til jarðar í því að tryggja sjálf- stæði sjóðanna. Ég tel að regluum- hverfi þeirra sé allt of veikt og að Fjármálaeftirlitið þurfi öf lugri heimildir til inngripa,“ segir Ásgeir í samtali við Fréttablaðið. Stjórn VR sendi frá sér yfirlýsingu 17. júlí síðastliðinn vegna málefna Icelandair. Þar var þeim tilmælum beint til stjórnarmanna sem VR skipar í stjórn lífeyrissjóðsins að sniðganga eða greiða atkvæði gegn þátttöku í væntanlegu hlutafjárút- boði Icelandair. Var það gert vegna óánægju stjórnar VR með það hvernig Icelandair hefði staðið að kjaraviðræðum við Flugfreyjufélag Íslands. Þá sagði Ragnar Þór Ingólfs- son, formaður VR, í viðtali við Fréttablaðið sama dag að stjórnar- mönnum VR í sjóðnum, sem ekki færu eftir tilmælum VR, yrði skipt út. Hann tilkynnti síðar að hann hyggðist leggja það til við stjórn VR að tilmælin yrðu dreg in til baka. Ásgeir segir að tilmæli stjórnar VR séu þörf áminning um mikil- vægi þess að þétta varnir í kringum sjálfstæða ákvarðanatöku innan lífeyrissjóða. „Í gegnum tíðina hafa ýmsir utan- aðkomandi aðilar reynt að hafa áhrif á fjárfestingar lífeyrissjóð- anna. Stjórnmálamenn hafa reynt að nota sjóðina í pólitísk verkefni, atvinnurekendur til þess að styðja einstök fyrirtæki og atvinnugreinar og verkalýðsfélög hafa reynt að nota þá í kjarabaráttu. Þetta er ekki nýtt vandamál og það mun dúkka upp aftur og aftur,“ segir Ásgeir. „Þess vegna skiptir miklu máli að efla regluverkið þannig að sjálf- stæði stjórnarmanna sé tryggt til frambúðar svo að ákvarðanir verði alltaf teknar með hagsmuni sjóðs- félaga í fyrirrúmi.“ Fulltrúaráð VR afturkallaði umboð stjórnarmanna VR í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, LIVE, sumarið 2019 og setti nýja stjórnarmenn til bráðabirgða. Var það gert vegna ákvörðunar um breytilega vexti verðtryggðra sjóð- félagalána sem stjórn og fulltrúaráð VR voru ósammála um. Á þeim tíma beindi Fjármálaeftir- litið þeim tilmælum til Lífeyrissjóðs verzlunarmanna að endurskoða samþykktir sjóðsins sérstaklega með það í huga hvort og við hvaða aðstæður hægt væri að skipta út stjórnarmönnum. Voru öðrum líf- eyrissjóðum í kjölfarið send sömu tilmæli. Aðspurður segist Ásgeir vilja fylgja eftir þessum tilmælum með afdráttarlausum hætti og krefj- ast svara um það hvernig sjóðirnir ætli að koma í veg fyrir að umboð stjórnarmanna geti verið aftur- kallað fyrirvaralaust. Umgjörðin er í dag of frjálsleg að mati Ásgeirs. „Hvernig getur stjórnarmaður verið sjálfstæður þegar hægt er að skipta honum út hvenær sem er – vegna þess að tilnefningaraðilanum líkar ekki við ákvarðanir hans?“ spyr Ásgeir. „Það er óþolandi ef sjóðsfélagar, sem eru að safna fyrir ævikvöldi sínu, geta ekki gengið að því vísu að fjárfestingarákvarðanir séu teknar í samræmi við hagsmuni þeirra.“ Auk þess mun Seðlabankinn ræða við fjármála- og efnahags- ráðuneytið og aðrar viðeigandi stofnanir um að fjármálaeftirlit bankans fái frekari heimildir til inngripa. „Það mega ekki skapast nein tækifæri til að stofna sjálfstæði stjórnarmanna í hættu. Það má ekki vera auðveldara að skipta út stjórnarmönnum í lífeyrissjóðum en í öðrum einingum tengdum almannahagsmunum. Sérstaklega í ljósi þess hve sjóðirnir eru stórir og umsvifamiklir í íslensku atvinnu- lífi,“ segir Ásgeir. „Við höf um slæma rey nslu af skuggastjórnun – afskaplega slæma,“ bætir Ásgeir við. „Það var tekið hart á því í stjórnun banka og hlutafélaga í kjölfar hrunsins en líf- eyriskerfið hefur setið eftir. Við svo búið má ekki standa.“ Hvað varðar hlutaf járútboð Icelandair segir Ásgeir að hægt sé að hafa ýmsar skoðanir á því hvort vænlegt sé að fjárfesta í félaginu. Forystufólk hagsmunasamtaka hafi að sjálfsögðu fullan rétt á því að hafa sína skoðun – sem einstakling- ar eða fulltrúar sinna samtaka. Hins vegar sé mjög mikilvægt að lífeyris- sjóðirnir, stærstu hluthafarnir, taki upplýsta og sjálfstæða ákvörðun án tillits til utanaðkomandi skoðana. Ljóst er þó að tilmæli stjórnar VR hafa sett stjórnarmenn í LIVE til- nefnda af stéttarfélaginu í erfiða stöðu. „Ef stjórnarmennirnir hafna því að taka þátt í útboðinu vakna strax grunsemdir um að þeir lúti skugga- stjórn. Þessi tilmæli draga úr trú- verðugleika stjórnarmanna LIVE og er mjög óheppileg að því leyti,“ segir Ásgeir. Hann vill þó taka fram að ekkert bendi til annars en að núverandi stjórn LIVE sé fagleg og sjálfstæð í sínum ákvörðunum og ekkert sé út á hana að setja. thorsteinn@frettabladid.is Höfum slæma reynslu af skuggastjórn Stíga þarf fastar til jarðar til að tryggja sjálfstæði lífeyrissjóða að mati seðlabankastjóra. Bankinn muni beita sér fyrir öflugra reglu- verki og frekari heimildum til inngripa. Segir tilmæli stjórnar VR þarfa áminningu. Þétta þurfi varnir í kringum ákvarðanatöku. Seðlabankinn mun fylgja fyrri tilmælum eftir með afdráttarlausum hætti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Vill sjá meira dreifræði í lífeyriskerfinu Það að tryggja sjálfstæði stjórna lífeyrissjóða er grundvallaratriði til að bæta lífeyriskerfið að mati Ásgeirs en hann telur þörf á fleiri breytingum. „Ég hef áhyggjur af sam­ þjöppun ákvarðanatöku á fjár­ málamarkaði í kjölfar þess að skylduframlög til lífeyrissjóða hafi verið hækkuð og sjóðirnir stækkað. Henni fylgir áhætta og ég hefði viljað sjá meira dreif­ ræði í því hvernig lífeyrissparn­ aði er ráðstafað og til dæmis að sett verði sérstök löggjöf um séreignasparnað,“ segir Ásgeir. „Einnig má velta fyrir sér hvort fjárfestingar sjóðanna þurfi í auknum mæli að fara í gegnum framtakssjóði þar sem ákvarð­ anataka er sjálfstæð,“ bætir hann við. Þá eru ýmis önnur mál sem taka þarf til skoðunar, svo sem það hvernig lífeyrissjóðir beita sér sem eigendur hluta­ félaga, og náin tengsl sumra lífeyrissjóða við banka. Hins vegar sé grunnurinn að öllu þessu að stjórnarmenn í lífeyris­ sjóðunum séu sjálfstæðir og hafi ávallt hagsmuni sjóðsfélaga í fyrirrúmi. Það sé það bjarg sem fjárfestingar sjóðanna verði að byggja á. Tilnefningaraðilarnir – vinnumarkaðsfélögin – verði jafnframt að virða þau valdmörk sem góðir stjórnarhættir gera kröfu um. EFNAHAGSMÁL Helga Ingólfsdóttir, stjórnarmaður í bæði Lífeyris- sjóði verzlunarmanna, LIVE, og VR, studdi ákvörðun stjórnar VR um tilmæli til þeirra stjórnar- manna sem VR skipar í stjórn LIVE að greiða atkvæði gegn þátttöku í væntanlegu hlutafjárútboði Ice- landair. Hún styður einnig tillögu formanns VR um að draga tilmælin til baka. „Ég studdi ákvörðun stjórnar VR að mótmæla harðlega þeirri ákvörðun sem tekin var af Ice- landair síðastliðinn föstudag um að segja upp kjarasamningi við Flugfreyjufélag Íslands sem var megintilgangur með þeirri yfir- lýsingu sem send var frá stjórn VR. Það er jákvætt að nú hefur sú ákvörðun Icelandair verið tekin til baka,“ segir Helga í samtali við Fréttablaðið. Bjarni Þór Sigurðsson situr einn- ig í báðum stjórnum en hann segist ekki hafa stutt það að senda út til- mælin. „Það eru ákveðnar reglur sem gilda um stjórnir í lífeyrissjóð- um og menn eiga að vera sjálfstæðir í störfum. Ég hef það að sjálfsögðu í heiðri,“ segir Bjarni Þór. Stjórn VR sendi tilmælin út 17. júlí síðastliðinn vegna óánægju með það hvernig Icelandair hefði staðið að kjaraviðræðum við Flug- freyjufélag Íslands. Þá sagði Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í við- tali við Fréttablaðið sama dag að stjórnarmönnum VR í sjóðnum sem ekki færu eftir tilmælum VR yrði skipt út. Ragnar Þór hefur nú tilkynnt að hann muni draga til- mælin til baka. Stefán Sveinbjörnsson, fram- kvæmdastjóri VR og formaður stjórnar LIVE, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að stjórn sjóðs- ins myndi meta þátttöku í útboði Icelandair með sama hætti og aðrar fjárfestingar. Sjóðsfélagar gætu treyst því að stjórnarmenn létu ekki undan utanaðkomandi þrýstingi. „Við metum þessa fjárfestingu eins og aðrar fjárfestingar. Það verður tekið tillit til ávöxtunar og áhættu og annarra atriða eins og vera ber,“ sagði Stefán. – þfh Stjórnarmaður LIVE studdi stjórn VR Það er óþolandi ef sjóðsfélagar, sem eru að safna fyrir ævikvöldi sínu, geti ekki gengið að því vísu að fjárfestingarákvarð- anir séu teknar í samræmi við hagsmuni þeirra Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri Stjórnmálamenn hafa reynt að nota sjóðina í pólitísk verkefni, atvinnurekendur til þess að styðja við einstök fyrirtæki og verkalýðsfélög hafa reynt að nota þá í kjarabaráttu Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri Ég studdi ákvörðun stjórnar VR að mótmæla harðlega þeirri ákvörðun sem tekin var af Icelandair síðastliðinn föstudag Helga Ingólfsdótt­ ir, stjórnarmaður í LIVE og VR 2 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.