Fréttablaðið - 24.07.2020, Qupperneq 8
Það var ekkert sem
kallaði á þetta
Ted Wheeler, borgarstjóri Portland
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Fáðu töfra
innblástur á
kronan.is/
töfrar
SNILLD Á G
RI
LL
IÐ
JALAP
EÑO
Jalapeño ...
lauflétt trix en algjör
LEIKBREYTIR
Á GRILLIÐ!
BANDARÍKIN Donald Trump Banda-
ríkjaforseti hefur sent 200 alríkislög-
reglumenn til Chic ago í Illinois og
36 til Albuquerque í Nýju-Mexíkó
til að kveða niður mótmæli. Einn-
ig verða sendir menn til Baltimore
í Maryland. Aðgerðir Trumps eru í
óþökk yfirvalda í þessum borgum
og ríkjum.
Alríkissveitirnar eru þegar í Port-
land í Oregon. Skutu þær táragasi á
mótmælendur á þriðjudagskvöld.
Meðal þeirra sem varð fyrir tára-
gasinu var Ted Wheeler, borgarstjóri
Portland, sem stóð fyrir utan alríkis-
dómshúsið þegar sveitirnar skutu á
hann. Samkvæmt AFP-fréttastof-
unni er óvíst hvort sveitirnar vissu
að hann væri í hópnum. Sagðist
hann hafa mætt á mótmælin til að
sýna samstöðu gegn veru sveitanna,
sem hann líkti við hernám. Hafa
mótmæli í borginni einnig beinst að
honum og aðgerðum lögreglu áður
en alríkissveitirnar komu.
Sveitirnar eru ekki á vegum Alrík-
islögreglunnar, FBI, heldur eru þetta
lögreglumenn úr öðrum borgum og
ríkjum sem starfa á vegum heima-
varnarráðuneytis Bandaríkjanna,
en Trump skipaði sveitunum nýver-
ið að gæta að styttum sem hafa verið
skemmdar af mótmælendum.
Mikil ólga hefur verið í Banda-
ríkjunum í kjölfar dauða George
Floyd í haldi lögreglu í Minneapolis
í Minnesota þann 25. maí. Hefur
reiði mótmælenda beinst að hörku
lögreglu, sérstaklega í garð svartra,
og gegn minnisvörðum um þá sem
stóðu að þrælahaldi og misrétti.
Skotárásum hefur víða fjölgað í
borgum, þar á meðal New York-
borg, Fíladelfíu í Pennsylvaníu, Los
Angeles í Kaliforníu og Milwaukee
í Wisconsin.
Alríkissveitirnar í Portland hafa
verið sakaðar um að handtaka
fólk að óþörfu og nota ómerkta
bíla til að grípa fólk af götunum.
Sveitirnar hafa svarað því þannig
að mótmælendurnir hafi verið að
reyna að brjótast inn í dómshúsið.
Wheeler sagði við New York Times
að aðgerðir sveitanna hefðu verið úr
öllu samræmi við mótmælin. „Það
var ekkert sem kallaði á þetta,“ sagði
Wheeler. Hann sagði viðbjóðslegt að
fá á sig táragas. „Það er erfitt að anda,
erfiðara en ég hélt.“
Aðgerðirnar eru kenndar við LeG-
end Taliferro, fjögurra ára dreng sem
var skotinn í Kansas-borg í Missouri
í júní. Móðir drengsins var viðstödd
blaðamannafund Trumps í gær.
„Þessi hrina ofbeldis misbýður sam-
visku þjóðarinnar,“ sagði Trump.
„Síðustu vikur hefur skotið upp koll-
inum öfgafull hreyfing sem miðar
að því að leysa upp lögregluna.“ Það
hafi leitt til þessa of beldis.
Stjórnmálaskýrendur telja að
aðgerðir Trumps séu liður í kosn-
ingabaráttu hans. Hefur Trump
dregið upp þá mynd að frjálslyndir
demókratar sýni linkind þegar
kemur að glæpum og því einblíni
hann á borgir undir þeirra stjórn.
arib@frettabladid.is
Sendir sveitir inn í borgirnar
Bandaríkjaforseti hefur sent alríkissveitir inn í nokkrar borgir í óþökk heimamanna. Markmið forset-
ans er að kveða niður mótmæli og ofbeldi. Stjórnmálaskýrendur telja þetta lið í kosningabaráttu hans.
Alríkissveitir hafa verið sakaðar um að handtaka fólk að óþörfu í Portland og nota við það ómerkta bíla. MYND/AFP
ÞÝSKALAND Níutíu og þriggja ára
fyrrverandi fangavörður nasista
hefur verið dæmdur í tveggja ára
skilorðsbundið fangelsi fyrir að eiga
hlut í dauða fimm þúsund fanga,
f lestra gyðinga.
Bruno Dey var 17 ára þegar hann
starfaði í nokkra mánuði í Stutt-
hof-útrýmingarbúðunum, sem eru
nálægt Gdansk í Póllandi.
Dómurinn féll í unglingadómstól
Hamborgar í gær þar sem Dey var
ekki orðinn sjálfráða þegar glæp-
irnir voru framdir. Er talið að þetta
verði eitt af síðustu réttarhöldunum
yfir fyrrverandi nasista í heiminum,
en allir sem taldir eru bera höfuð-
ábyrgð á helförinni eru látnir.
Dey vísaði því á bug að hafa tekið
þátt í manndrápum, hann hafi
aðeins staðið vaktina í varðturni.
Þá bað hann eftirlifendur afsök-
unar. Viðurkenndi hann að hafa
haft vitneskju um gasklefana sem
notaðir voru í búðunum.
Sagnfræðingur sem bar vitni fyrir
dómnum benti á að Dey hefði ekki
þurft að gegna þessu starfi né að
ganga í SS-sveitirnar. Það hafi hann
gert sjálfviljugur – ab
Fyrrverandi fangavörður í tveggja ára fangelsi
Dey við réttarhöldin. MYND/EPA
BRETLAND Forsvarsmenn frétta-
miðilsins The Day hafa fallist á
greiðslu bóta til rithöfundarins
JK Rowling, vegna umfjöllunar
um meintan skaða transfólks af
athugasemdum hennar um kyn.
Miðillinn, sem er ætlaður bresk-
um skólabörnum og opinberlega
studdur af breskum yfirvöldum,
átti yfir höfði sér málsókn vegna
greinar með yfirskriftinni „Potter-
aðdáendur hafna Rowling eftir
trans-tíst“. Í greininni er fullyrt
að Rowling hafi neitað að vísa til
„fólks sem fer á túr“ í staðinn fyrir
að nota orðið kona. Þá voru börn
beðin að velta því fyrir sér hvort
hægt væri að njóta góðra lista eftir
fráhrindandi listamenn og voru
Pablo Picasso og Richard Wagner
teknir sem dæmi.
Ábyrgðarmenn blaðsins hafa
viðurkennt að í umfjölluninni væri
gefið í skyn að tíst rithöfundarins
hefðu bæði skaðað og sært trans-
fólk og lesendur hvattir til að snið-
ganga verk hennar og hvetja hana
með því til að bæta framkomu sína.
„Markmið okkar var að hvetja til
rökræðu um f lókið málefni,“ segir
í yfirlýsingu miðilsins og er rit-
höfundurinn beðinn afsökunar á
umfjölluninni.
„Það var ekki ætlunin að halda
því fram að JK Rowling væri for-
dómafull eða að sniðganga ætti
verk hennar. Við viðurkennum að
það var klaufalegt, ærumeiðandi
og rangt að bera hana saman við
Picasso, sem lofsöng kynferðisof-
beldi, og Wagner sem hylltur var af
nasistum,“ segir í yfirlýsingunni. – aá
Greiða
bætur til
Rowling
Gustað hefur um skapara Harry
Potters að undanförnu. MYND/GETTY
2 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð