Fréttablaðið - 24.07.2020, Blaðsíða 12
Meginástæða erfiðs
fjárstreymis er
aðstöðuleysi síðustu ár og
seinagangur við frágang
samninga tengdum eigna-
skiptum í Kaplakrika.
Valdimar Svavars-
son, formaður
knattspyrnu-
deildar FH
FÓTBOLTI Fram kom á fundi eftir-
litsnefndar um fjármál íþrótta-
og æskulýðsfélaga hjá Hafnar-
fjarðarbæ, sem haldinn var 20.
maí síðastliðinn, að nefndin hefði
fengið staðfest frá Viðari Halldórs-
syni, formanni aðalstjórnar FH, að
fimm milljóna króna millifærsla
frá barna- og unglingaráði knatt-
spy r nudeildar Fimleikafélags
Hafnarfjarðar til reksturs meistara-
f lokks karla hjá sömu deild hafi
verið hlutdeild í kostnaði en ekki
lán. Staðarmiðillinn í Hafnarfirði,
fjarðarfrettir.is, greindi fyrst frá.
Þar segir enn fremur að í stuttu
svari til nefndarinnar hafi Viðar
útskýrt að um hafi verið að ræða
hlutdeild barna- og unglingastarfs
knattspyrnudeildarinnar í sam-
eiginlegum stjórnunarkostnaði við
rekstur deildarinnar eins og fram
kemur í ársreikningi knattspyrnu-
deildar. Sami háttur verði hafður á
hér eftir hjá knattspyrnudeild FH.
Valdimar Svavarsson, formaður
knattspyrnudeildar FH, ritar í
ársskýrslu félagsins um þennan
gjörning en barna- og ungling-
aráð deildarinnar sagði af sér eftir
ágreining og skoðanamun um fram-
kvæmd lánveitinga sem fóru annars
vegar til aðalstjórnar og hins vegar
til knattspyrnudeildarinnar, eins og
hann kemst sjálfur að orði.
„Það var mjög leiðinlegt að það
skyldi koma upp en við höfum átt
góð samtöl og samstarf við þá ein-
staklinga sem sögðu sig úr störfum
fyrir félagið í framhaldinu, sem
hafa leitt til þess að verið er að
taka tillit til beggja sjónarmiða og
f lestar af þeim ábendingum sem
komið hafa frá því góða fólki hafa
farið inn í starfið og mun vonandi
leiða til þess að í það minnsta ein-
hverjir þeirra komi aftur til starfa
fyrir deildina,“ skrifar formaður-
inn. Hann ítrekar að ábyrgðin
liggi hjá stjórn samkvæmt lögum
félagsins og fjárhagur barna- og
unglingastarfsins og knattspyrnu-
deildarinnar sé og verði aðgreindur
í bókum deildarinnar. Þá segir hann
að fjármálin verði tekin föstum
tökum.
„Meginástæða erfiðs fjárstreymis
er aðstöðuleysi síðustu ára, kostn-
aður vegna þess og seinagangur við
frágang samninga tengdum eigna-
skiptum í Kaplakrika,“ skrifar
Valdimar. Hann bendir á að FH
hafi tekið tapið að komast ekki í
Evrópukeppnina á kassann.
Viðar bætir við í ársskýrslu
félagsins að gróusögur hafi ein-
kennt umræðuna um fjármál knatt-
spyrnudeildar FH. „Gróa á Leiti
hefur verið mikil vinkona þeirra
sem vilja láta kalla sig íþróttafrétta-
menn (sérfræðinga), ýkjur þeirra
verið miklar en rétt er að á bratt-
ann hefur verið að sækja í þessari
stóru deild.“ Hann segir að hægt
hefði verið að laga hluta vandans
með skipulagsbreytingum á síð-
ustu árum en þær séu nú í vinnslu.
Knattspyrnudeild FH tapaði 23,7
milljónum síðasta ár og er þyngsti
baggi á taprekstri félagsins í heild.
Eiginfjárstaða félagsins sé þó góð,
segir Viðar, formaður félagsins.
benediktboas@frettabladid.is
Tilfærsla peninga var ekki lán
heldur hlutdeild í kostnaði
Eftirlitsnefnd um fjármál íþrótta- og æskulýðsfélaga í Hafnarfirði fékk Viðar Halldórsson, formann FH, til
að útskýra þann gjörning að peningar voru færðir frá reikningi barna- og unglingaráðs yfir í rekstur meist-
araflokks hjá knattspyrnudeild félagsins. Lög FH segja að rekstur þessara eininga skuli vera aðskilinn.
FH tók þátt í Evrópukeppni árið 2018 en liðinu tókst ekki að komast þangað árið 2019. Ákveðið var að tekjutapið
yrði tekið á kassann eins og formaður knattspyrnudeildar FH segir í ársskýrslu félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRSTEINN
ÓLYMPÍULEIKAR Til stóð að Ólymp-
íuleikar myndu hefjast í Tókíó
í dag en þeim var frestað um ár
vegna kórónaveirufaraldursins.
Mikill kostnaður mun koma til
vegna frestunar leikanna en sam-
kvæmt rannsókn Háskólans í
Kansai í Japan mun sá kostnaður
hljóða upp á um það bil 817 millj-
arða íslenskra króna.
F r a m k e m u r í t i l k y n n -
ingu alþjóðaólympíunefndarinnar
(IOC) að aðstæður og umgjörð við
leikana verði á næsta ári á sama hátt
og lagt var upp með í ár. Það er að
keppt verði á sömu 43 leikvöngum
og upphaf lega var áætlað og dag-
skráin eins.
Thomas Bach, forseti IOC, segir
að mikil vinna sé fram undan við að
endurskipuleggja leikana og skipu-
leggja viðburði þar sem íþrótta-
menn geta tryggt sér farseðil á
leikana að ári.
Einn íslenskur íþróttamaður
hefur tryggt sitt sæti inn á Ólymp-
íuleikana í Tókíó en það er sund-
maðurinn Anton Sveinn McKee.
Fjölmargir íslenskir íþróttamenn
munu næstu mánuðina freista þess
að slást í hópinn með Antoni Sveini.
„Undanfarnir mánuðir hafa
verið sérstakir hvað varðar undir-
búning fyrir Ólympíuleika. Við að
fresta leikunum um eitt ár breytist
margt í umhverfi íþróttafólksins og
þurfa allir að aðlaga sig að breyttum
aðstæðum. Það má samt hafa í huga
að þótt síðustu vikur og mánuðir
hafi verið erfið fyrir íþróttaiðkun
þá felast einnig tækifæri í þeim
áskorunum.
Ég er viss um að við komum
öll sterkari út úr þessu ástandi
og afreksíþróttafólkið mun sýna
hvað í því býr og fleiri aðilar munu
vinna sér þátttökurétt á leikana.
Það verður þannig spennandi að
sjá hvernig íslenskt afreksíþrótta-
fólk mun standa sig í samanburði
við erlenda keppinauta á næstu
misserum, en ég er viss um að það
mun ná góðum árangri, enda er það
einkenni Íslendinga að koma sterkir
til leiks þrátt fyrir erfiðleika.
Hvað varðar undirbúning ÍSÍ
fyrir þessa leika þá er hann á
áætlun og hefur ekki orðið fyrir
miklum breytingum þótt að leik-
unum hafi verið seinkað um eitt ár,“
segir Andri Stefánsson, sviðsstjóri
Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ, sem
verður aðalfararstjóri á Ólympíu-
leikunum í Tókíó. – hó
Gríðarlegur kostnaður við að fresta leikunum
Anton Sveinn er, eins og sakir standa, eini Íslendingurinn sem hefur tryggt
sér sæti á Ólympíuleikunum í Tókíó á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Knattspyrnumaðurinn
Jason Daði Svanþórsson mun ganga
til liðs við Breiðablik eftir lok núver-
andi tímabils þegar samningi hans
við Aftureldingu lýkur í haust. Þetta
kom fram í frétt á heimasíðu Breiða-
bliks.
Jason Daði, sem leikur sem fram-
herji, er fæddur árið 1999 og verður
því 21 árs gamall á þessu ári.
Hann er uppalinn í Aftureldingu
og hefur leikið allan sinn meistara-
f lokksferil þar. Jason Daði hefur
leikið 59 deildaleiki með Aftur-
eldingu og skorað 21 mark. Hann
á að auki að baki 32 leiki í öðrum
keppnum.
Á yfirstandandi leiktíð hefur
Jason Daði skorað fjögur mörk í sjö
leikjum fyrir Aftureldingu sem situr
í sjöunda sæti næstefstu deildar
með 10 stig. – hó
Blikar semja við
sóknarmann
FÓTBOLTI Jón Guðni Fjóluson,
landsliðsmaður í knattspyrnu, er
á leið frá rússneska úrvalsdeildar-
liðinu Krasnodar. Þetta kom fram í
yfirlýsingu rússneska félagsins.
Jón Guðni hefur leikið með
Krasn odar síðan árið 2018. Hann
kom til liðsins frá sænska liðinu
Norrköping. Áður hafði þessi öflugi
varnarmaður leikið með belgíska
liðinu Beerschot og sænska liðinu
Sundsvall á atvinnumannaferl-
inum.
Þessi 31 árs gamli leikmaður átti
eitt ár eftir af samningi sínum við
Krasnodar en ákveðið var að halda
ekki áfram samstarfi aðilanna.
Krasnodar hafði í sínum röðum 12
erlenda leikmenn en má einungis
hafa átta útlendinga í sínum röðum.
Mag nús Ag nar Mag nússon,
umboðsmaður Jóns Guðna, sagði
í samtali við Fotbollskanalen að
ekki lægi annað fyrir hvað fram-
haldið varðar hjá Jóni Guðna en að
hann kæmi til Íslands í sumarfrí.
Það kæmi í ljós f ljótlega hvað fram-
tíðin bæri í skauti sér. – hó
Jón Guðni mun
færa sig um set
Jón Guðni Fjóluson mun leika með
nýju liði á næsta keppnistímabili.
KÖRFUBOLTI Ein birtingarmynd
vinsælda heimildarmyndarinnar
„The Last Dance“, sem fjallar um
feril Michael Jordan, er gríðarlegur
áhugi á uppboði á strigaskóm sem
körfuboltagoðsögnin notaði í upp-
hafi ferils síns.
Það er uppboðshaldarinn Christ-
ie's sem sér um uppboðið á striga-
skónum, sem eru af gerðinni Nike
Air og Jordan notaði árið 1984. Talið
er að skórnir muni seljast á um það
bil 70 milljónir króna.
Þetta er verðmætasti hluturinn
á uppboðinu en fyrr á þessu ári
seldust Nike Air Jordan-skór, sem
Jordan notaði árið 1985, á um það
bil 76 milljónir íslenskar krónur. – hó
Nike Air-skór 70
milljóna virði
2 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT