Fréttablaðið - 24.07.2020, Page 15

Fréttablaðið - 24.07.2020, Page 15
Framhald á síðu 2 ➛ F Ö S T U DAG U R 2 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 Augun okkar Jóhannes Kári Kristinsson augnlæknir hefur langa reynslu á sviði laser-augnlækninga. Hann hefur breytt lífi meira en 15 þúsund Íslendinga og losað þá við hjálpartæki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Stöðug þróun í lasertækni Jóhannes Kári Kristinsson, augnlæknir hjá Augljósi Laser augnlækningum, hefur gert laser­ aðgerðir á meira en 15 þúsund Íslendingum. Fólk er gríðarlega ánægt að losna við gleraugun. Jóhannes Kári er fróðleiks­brunnur þegar kemur að sjónlagsaðgerðum. Hann var fyrst spurður hvenær þær hófust á Íslandi. „Þegar rússn­ eski augnlæknirinn Fyodorov hóf að framkvæma nærsýn­ isaðgerðir með hefðbundnum skurðáhöldum um miðjan áttunda áratug síðustu aldar, varð áhugi og aðsókn að aðgerðunum fljótt svo mikill að hann fór að framkvæma aðgerðirnar á raunverulegum færiböndum. Þessar aðgerðir voru aldrei framkvæmdar hér en nokkrir Íslendingar fóru í þessa aðgerð hjá honum og einstaka aðili til annarra aðila sem framkvæmdu slíkar aðgerðir, til dæmis í Banda­ ríkjunum,“ útskýrir Jóhannes Kári og svarar hér ýmsum spurningum sem gjarnan vakna hjá fólki sem hefur áhuga á að losna við gler­ augun. „Árið 1990 urðu straumhvörf þegar lasertæknin hóf innreið sína með nýrri tækni, sem kölluð var PRK (photorefractive keratec­ tomy). Nokkrum árum síðar kom LASIK­aðgerðartæknin fram á sjónarsviðið og þá má segja að allur heimurinn hafi verið undir­ lagður á nokkrum árum þar til LASIK­aðgerðin varð algengasta aðgerðin á mannslíkamanum í kringum aldamótin síðustu, og tók þar við af augasteinsaðgerðinni. Um líkt leyti var fyrsta LASIK­ aðgerðin framkvæmd hér á landi, af félögunum Eiríki Þorgeirssyni og Þórði Sverrissyni í Lasersjón. Strax skapaðist mikill áhugi fyrir aðgerðunum, enda hátt hlutfall landsmanna með hjálpartæki á borð við gleraugu og snertilinsur og margir sem höfðu beðið eftir þessari tækni í langan tíma þegar farið var loks að bjóða upp á hana. Ég kom síðan ári síðar til landsins úr augnlæknasérnámi þar sem ég hafði meðal annars þessar nýju aðgerðir sem undirsérgrein,“ segir hann. Var fólk strax óhrætt við að prófa þessa nýjung? „Hræðsla við augnaðgerðir er afar eðlileg þar sem augun eru það dýr­ mætasta sem við eigum. Mörgum finnst þó snertilinsur og gleraugu það hamlandi í daglegu lífi að fólk er tilbúið að taka þá áhættu að fara í aðgerð. Sem betur fer er áhættan lítil og fer minnkandi. Ég fór sjálfur í aðgerðirnar árið 2003 með mína miklu nærsýni og tók þar vissa áhættu. Ég vissi þó sem var að það er áhætta við allt sem við gerum, bíltúrinn út í búð og hjólatúrinn upp í Heiðmörk. Áhættan við linsunotkun er til dæmis mun meiri en áhættan við að fara í laseraðgerð.“ Hvers vegna velur fólk að fara í sjónlagsaðgerð? „Þetta er frábær spurning og ástæðurnar eru mýmargar. Við erum með stórt skilti á stofunni okkar þar sem fólk greinir frá ótrúlega margvíslegum ástæðum, mörgum mjög persónulegum. Ég Stór þáttur er vitanlega upplifun fólks eftir aðgerðirnar og leggjum við mikið upp úr því að það sé ánægt með árangurinn. Það er ávallt gaman þegar fólk lýsir ánægju sinni og mjög algengt að fólk segi okkur að þetta sé besta ákvörðun sem það hafi tekið á ævi sinni. KYNNINGARBLAÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.