Fréttablaðið - 24.07.2020, Side 16

Fréttablaðið - 24.07.2020, Side 16
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, hef sjálfur talað fólk ofan af því að fara í aðgerð ef mér finnst viðkom- andi ekki hafa nægilega mikinn áhuga, er til dæmis að fara vegna þrýstings frá öðru fólki. Sumir einstaklingar nánast verða að fara í aðgerðirnar, til dæmis pípulagn- ingamenn, smiðir, sjómenn og fleiri, þar sem það er bókstaflega hættulegt að vera með gleraugu eða snertilinsur. Aðrir eru á kafi í íþróttum og eiga erfitt með að nota gleraugu við þær. Margir koma einmitt í kjölfar linsuóþols, fyrirbæris sem gerist yfirleitt fyrr eða síðar hjá þeim sem nota linsur. Enn aðrir eru haldnir vissri fóbíu fyrir að vera með gleraugu, til dæmis keyra um með 10–20% sjón vegna þess að gleraugu trufla þá á hátt sem þeir eiga erfitt með að skýra út.“ Hvern telur þú vera helsta kost sjónlagsaðgerða? „Þetta er líka frábær spurning, því ég sjálfur til dæmis uppgötvaði ekki hver hann var fyrr en ég hafði sjálfur farið í aðgerðirnar. Áður en það gerðist sá ég fyrir mér hin augljósu þægindi að losna við gler- augun, snertilinsurnar, vesenið og fyrirhöfnina í kringum það allt. Þegar ég hafði svo sjálfur upplifað þetta sá ég hlutina í öðru ljósi. Það var allt í einu ekkert á milli mín og umheimsins og ég var bara góður eins og ég var. Ég hafði losnað við fötlun sem olli því að ég þurfti hjálpartæki til að geta sinnt dag- legum verkum. Það var mjög öflug tilfinning.“ Hverjir sækja helst í aðgerðirnar? „Það er engin sérstök manngerð sem sækir í aðgerðirnar. Meðal- aldur hefur aðeins farið lækkandi, er kominn úr 40 ár í 35 ár, en fólk frá 18–60 ára hefur notfært sér þennan möguleika. Konur eru enn sem komið er um 60% þeirra. Alþjóðlegt aldurstakmark er 18 ár, en fremur fáir fara svo ungir í laseraðgerðir. Ástæðan er fyrst og fremst sú að á þessum tíma er sjónlagið oft ekki orðið nægilega stöðugt til að leyfa aðgerð, sérstak- lega hjá nærsýnum.“ Er hægt að fara í sjónlagsað- gerð þegar sjónin breytist eftir miðjan aldur? „Við miðjan aldur kemur upp svokölluð aldursbundin fjarsýni vegna hörðnunar á augasteininum. Við hættum að geta lesið án gler- augna og því fást lesgleraugu mjög víða, jafnvel á bensínstöðvum og apótekum. Við getum oft beitt svokallaðri Presbymax lasertækni í þessum tilvikum, þar sem við útbúum lespunkt á annað augað – það auga verður því „lesauga“ á meðan hitt augað sér um fjar- lægðarsjón. Þetta gengur oft mjög vel og margir geta losnað bæði við gleraugu til að sjá frá sér og þurfa heldur engin lesgleraugu.“ Ræðir fólk um upplifun sína eftir aðgerð við þig? „Við fylgjum fólki eftir aðgerðirnar í að minnsta kosti 6 mánuði. Að þeim tíma liðnum mælum við sjón og metum árangurinn. Stór þáttur er vitanlega upplifun fólks eftir aðgerðirnar og leggjum við mikið upp úr því að það sé ánægt með árangurinn. Það er ávallt gaman þegar fólk lýsir ánægju sinni og mjög algengt að fólk segi okkur að þetta sé besta ákvörðun sem það hafi tekið á ævi sinni. Komi eitthvað upp á gerum við okkar besta til að lagfæra það og í um 5% tilvika gerum við viðbótaraðgerð. Við sleppum ekki af fólki hendinni fyrr en það er orðið fullkomlega ánægt.“ Hafa einhverjar nýjungar á þessu sviði komið fram á undanförnum árum? Jóhannes Kári Kristinsson svarar hér margvíslegum spurningum sem vakna hjá þeim sem eru að hugleiða laseraðgerð á augum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Framhald af forsíðu ➛ „Það eru stöðugt nýjungar að koma fram á þessu sviði sem öðru í augnlæknisfræði. Grundvallarat- riði aðgerðarinnar hafa haldist þau sömu frá aldamótum en aðallega eru það öryggi aðgerðarinnar og nákvæmni sem hafa aukist síðan þá. Ein magnaðasta framförin felst í því að laserinn fylgir nú auganu með svokölluðum fylgigeisla. Sá staðsetur augað um þúsund sinnum á sekúndu (1000 Hz) og fylgir því algjörlega eftir. Því er ekki mögulegt fyrir geislann að fara á rangan hluta augans vegna skyndilegra augnhreyfinga á meðan aðgerð stendur.“ Er aðgerðin snertilaus? „LASIK-aðgerðin er ekki snertilaus, þar sem útbúa þarf flipa með sér- stöku tæki áður en lasergeislanum er beitt. Við í Augljósi vorum hins vegar fyrst til að bjóða upp á PRK sem var algjörlega snertilaus með svokallaðri transPRK tækni. Í þeirri aðgerð tekur laser yfirborðsþekju hornhimnu af og mótar síðan hornhimnuna – allt án aðkomu hefðbundinna skurðáhalda.“ Hvernig fer forskoðun fyrir aðgerð fram? „Mestu máli skiptir að sá sérfræð- ingur sem framkvæmir aðgerðina skoði sjúkling nákvæmlega fyrir aðgerð og fylgi sjúklingi eftir í gegnum öll stig hennar. Við mælum auðvitað sjón, bæði fyrir og eftir sjáaldursútvíkkun, skoðum augu nákvæmlega, mælum augnþrýsting, þykkt á hornhimnu og útbúum eins konar landakort af hornhimnunni. Augnbotnaskoðun er framkvæmd að því loknu og síðan eru mögu- leikar á aðgerð ræddir. Það er afar mikilvægt að taka góðan tíma í þessar umræður og svara spurn- ingum sem kunna að koma upp.“ Hvað tekur langan tíma að jafna sig eftir aðgerð? „Eftir LASIK-aðgerð er yfirleitt hægt að lesa textann á sjónvarpi kvöldið sem aðgerðin er fram- kvæmd. Daginn eftir skoðum við augun vel en hvetjum fólk til að taka því rólega. Daginn þar á eftir getur fólk farið að hlaupa, hjóla, í ræktina og jafnvel í vinnu. Passa þarf hins vegar upp á að nudda ekki augun í eina viku eftir aðgerð, ekki fara í kontaktíþróttir, eins og boltaíþróttir, í eina viku, ekki setja maskara á augnhár í eina viku, ekki fara í sund í tvær vikur.“ Eru aukaverkanir? „Augnþurrkur er algengasta auka- verkunin og raunar svo algeng að við hvetjum fólk til að nota gervi- tár eftir aðgerð og gervitárahlaup. Jafnframt er ekki óalgengt að við setjum silicon-tappa í táragangaop að lokinni aðgerð til að auka táramagnið í augunum. Tárafram- leiðsla eykst jafnt og þétt fyrstu vikurnar og mánuði eftir aðgerð en það fer nokkuð eftir hverjum og einum. Margir fara einmitt í aðgerð vegna þess að linsuóþol er farið að gera vart við sig og það kann að vera vegna augnþurrks.“ Eru strangar öryggiskröfur um aðbúnað á stofunni þar sem aðgerðin er fram- kvæmd? „Já, það eru gríðarlegar öryggis- kröfur gerðar við þessar aðgerðir, einkum vegna þess að um flókinn laserbúnað er að ræða, sem þarf að stilla mjög nákvæmlega. Lasertæk- ið er stillt nokkrum sinnum á dag á aðgerðardegi og auk þess kemur sérfræðingur frá Schwind-fyrir- tækinu í Þýskalandi einu sinni til tvisvar á ári til að stilla og fara yfir tækið, bæta við það, endurnýja og aðlaga að nýjustu tækni.“ Fá allir 100% sjón eftir laseraðgerð? „Við höfum sífellt verið að bæta árangur á undanförnum árum, en þegar rannsókn var gerð á útkomu laseraðgerða í Augljósi fyrir nokkr- um árum fengu yfir 98% augna sem meðhöndluð voru 1.0 (6/6) eða betri. Við leggjum þó mesta áherslu á að fólk sé ánægt með sjónina, það aðlagist til dæmis vel því að hafa skipta sjón (lessjón á öðru auga, fjarlægðarsjón á hinu), upplifi ekki augnþurrk eða önnur einkenni, sjái nægilega vel í rökkri og fleira slíkt. Það er ekki nóg að tölurnar séu góðar, fólkið þarf að vera ánægt með árangurinn.“ Hver er munurinn á laserað- gerð og augasteinaskiptum? „Linsukerfið í auganu okkar er byggt á tveimur linsum sem brjóta ljós, sú fremri kallast hornhimna, sú aftari er augasteinninn okkar. Af þessum tveimur er hornhimnan sterkari ljósbrjótur. Í laseraðgerð er lögun hornhimnunnar breytt til að færa brennipunktinn inn í auganu á þann stað sem hann þarf að fara á til að viðkomandi sjái myndina skýrt. Eins og nafnið bendir til þá er skipt um augastein í augasteins- aðgerð. Við viljum varðveita góðan augastein þar til hann er hættur að gagnast einstaklingnum og því eru yfirleitt ekki framkvæmdar augasteinsaðgerðir fyrr en eftir sextugt. Það er nú svo merkilegt að nú er farið að framkvæma hluta af augasteinsaðgerðum með svo- kölluðum femtósekúndulaser, sem er nákvæmur laser er sker sundur augasteininn. Því er lasertæknin farin að færa sig inn í augasteininn, ef svo má að orði komast, og eru mörkin þarna á milli því óðum að verða óskýrari með tímanum.“ Telur þú að þessar aðgerðir muni breytast á næstu árum? „Án efa. Tækniframfarir halda áfram í þessu og því nauðsyn- legt að fylgjast vel með. Ég tel að íslenskir augnlæknar hafi almennt staðið vel að laseraðgerðum hér á landi. Það er þó alveg ljóst að til að geta boðið upp á bestu mögulegu aðgerðir hér á landi er ekki nóg að bjóða upp á bestu tækni sem völ er á. Við þurfum að hlusta á fólkið, vita hvað það vill og vera ekki ánægð fyrr en það er ánægt. Það getur tekið sinn tíma en við látum einskis ófreistað við að uppfylla drauma okkar fólks um að losna við hjálpartækin eins vel og lengi og hægt er,“ segir Jóhannes Kári. Nánari upplýsingar hjá Augljós, Álfheimum 74, sími 414 7000. Einnig er hægt að kynna sér að- gerðir inn á augljos.is 2 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RAUGUN OKKAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.