Fréttablaðið - 24.07.2020, Síða 18

Fréttablaðið - 24.07.2020, Síða 18
Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is ÚTSALA Kringlunni og Spönginni Labradorhundurinn Lubbi kom frá Svíþjóð árið 2018 með tveimur bræðrum sínum eftir að hafa útskrifast úr þjálfun fyrir leiðsöguhunda. Elín Ýr hafði þá sótt um leiðsöguhund og segist hafa verið heppin að Lubbi þótti eiga vel við hana og öfugt. „Eftir að ég fékk Lubba tók við þjálfun og fyrsta árið okkar vorum við að læra hvort á annað,“ segir Elín. „Það munar miklu meiru fyrir mig að hafa leiðsöguhund en ég áttaði mig á. Áður en ég ákvað að fá mér leiðsöguhund þá tók ég prufu með leiðsöguhundi sem var hér og ég fann strax mun. En þegar ég fékk Lubba í aðlögun þá var ég að fara leið sem ég hafði áður farið ein, það var rosalega mikill snjór og ég er fullkomlega snjóblind. Þegar ég fór með Lubba þessa leið var ég tvöfalt f ljótari en áður svo það munaði miklu að hafa hann. Ég er miklu öruggari með honum, svo er bara næs að vera alltaf með ferðafélaga.“ Elín segir að Lubbi sé yndislegur karakter. „Ég veit að allir hundaeigendur segja það en mér finnst hann bara fullkominn, líka þegar hann er þrjóskur og vitlaus,“ segir Elín hlæjandi. Hún vill þó minna á það að leið- söguhundar eru vinnuhundar og þótt þeir séu sætir og æðislegir þá verði fólk að láta þá í friði þegar þeir eru í vinnunni. „Það er margt fólk sem vill gjarnan heilsa upp á þessa knús- bolta og þegar þeir eru í fríi þá knúsa þeir fólk endalaust. En fólk þarf að standast freistinguna þegar þeir eru í vinnunni. Börnin eru best í þessu. Þau spyrja fyrst og segja jafnvel við foreldra sína að það megi ekki trufla hundinn því hann sé í vinnunni.“ Þrátt fyrir að njóta aðstoðar Lubba segist Elín yfirleitt alltaf vera með hvíta stafinn, sem hún notar sem bendingartæki fyrir hann. Hún segir Lubba þjálfaðan til að vera um það bil tvo metra á breidd og hæð og hann lætur hana vita ef eitthvað er í nærum- hverfinu sem gæti hindrað hana á ferðum sínum. „Hann lætur vita af trjágreinum sem standa út á gangstétt, ef að bíll hefur lagt á stéttinni eða ef það eru vegaframkvæmdir eða eitt- hvað slíkt. Þá bið ég hann að finna leið framhjá þeim. Hann er alveg magnaður í að komast fram hjá hindrunum og halda svo áfram sínu striki. Hann gefur merki með því að stoppa eða hægja á sér. Ég er búin að vera með hann í næstum tvö ár, svo núna þegar ég held í beislið hans þá er ég farin að nema ef það er eitthvað. Undanfarið erum við farin að finna okkar eigin leiðir til samskipta. Ef það er hindrun sem hann þarf að fara í kringum, þá byrjar hann að labba til hliðar. Ef það er hindrun þar sem ég þarf að láta hann vita hvað ég ætla að gera, þá stoppar hann,“ útskýrir Elín. Elín segir Lubba ótrúlega minn- ugan og leggi á minnið alla staði sem hún hefur farið á. Ef hún segir honum að nú ætli þau í búðina þá veit hann hvaða leið á að fara. „En hann kemur líka upp um mig því hann stoppar alltaf við alla staði sem við höfum kannski bara komið á einu sinni. Þannig að allar búðir í Kringlunni eða á Laugavegi sem ég hef einu sinni farið í, þar stoppar hann til að tékka hvort ég vilji fara inn. Það er þess vegna hægt að rekja versl- unarferðir mínar,“ segir Elín og hlær. Áður en Elín fékk Lubba fannst henni óþægilegt að ganga úti í myrkri þar sem hún hefur verið náttblind lengi. En hún er með rör- sjón og getur séð afmarkað svæði fyrir framan sig. „En núna get ég í raun lokað aug- unum þegar ég fer út. Það er þetta traust á milli okkar. Í staðinn fyrir að fikra mig áfram á dimmum stöðum eða þar sem eru tröppur þá ég er miklu öruggari en áður. Ég er bara miklu öruggari alls staðar.“ Miklu öruggari alls staðar Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir er lögblind og hefur notið aðstoðar leiðsöguhundsins Lubba í tæp tvö ár. Hún segir það hafa komið á óvart hve miklu það breytti fyrir hana þegar Lubbi kom inn í líf hennar. Elín Ýr og hundur- inn Lubbi hafa myndað sérstakt samband. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hann kemur líka upp um mig því hann stoppar alltaf við alla staði sem við höfum kannski bara komið á einu sinni. 4 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RAUGUN OKKAR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.