Fréttablaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 21
að erfðafræði finnst manni nú Cam- bridge hafa vinninginn.“ Vísindaleg fjarbúð „Svo hittumst við alltaf um helgar,“ heldur Bríet áfram. „Sem er nú alveg svolítið þreytandi lífsstíll,“ bætir Sigurgeir við. „En á sama tíma gæti það nú verið verra.“ Í því sambandi bendir Bríet síðan á að það hafi sína kosti að geta unnið langt fram á kvöld, án þess að hafa áhyggjur af því að verða of sein í mat og annað slíkt. „Við tökum okkur svo bara almennilegt frí um helgar og þá aðskilur maður svolítið vinnu og frítíma.“ Bríet og Sigurgeir byggja á sama grunni, en þau kynntust þegar þau lærðu lífefna- og sameindalíffræði við Háskóla Íslands. Þau segja hins vegar fræðilegar leiðir hafa skilið nokkuð fljótt, þannig að þegar vís- indaparið hittist er það ekki á bóla- kafi fræðanna. „Aðferðirnar sem við notum núna eru svolítið svipaðar,“ segir Bríet og Sigurgeir bætir við að vissulega vinni þau bæði með vefi. „Þannig að það er svona vefjavinnslan sem við höfum aðeins getað talað um. En annars er ótrúlegt hversu fljótt við hættum að skilja hvort annað eftir að hafa tekið sama grunnnámið. „Sambandið okkar er búið að vera 50 prósent í fjarbúð,“ segir Bríet, sem hélt beint til Oxford í masters- nám á meðan Sigurgeir tók þann hluta hjá Íslenskri erfðagreiningu. „Þetta eru búnar að vera svo- litlar fórnir,“ segir Sigurgeir og hlær, um leið og hann vill ekki úti- loka að aðskilnaður geti treyst og styrkt sambönd. „Kannski hefur það nefnilega gert það. Ég veit það ekki. Við erum allaveganna ekki orðin þreytt hvort á öðru þegar við sjáumst um helgar.“ Frjósöm vísindi En hvað er það sem heillar við líf- efna- og sameindalíffræði og leiddi ykkur út á þessa braut? „Ég veit það ekki. Ég hef bara allt- af haft áhuga á vísindum og líffræði og fjölskyldan mín er öll svona frek- ar vísindasinnuð,“ segir Bríet hugsi. „Já sko, mér fannst lífefnafræðin alveg geggjuð. Bara strax í mennta- skóla,“ segir Sigurgeir. „Fannst hún svo skemmtileg og gaman að stúd- era þetta.“ „Mér finnst líka svo heillandi við þessi frjósemisfræði að þau eru svo praktísk,“ heldur Bríet áfram og bendir á hin sterku tengsl fræða- sviðs hennar við daglegt líf og til- finningar fólks. „Maður getur unnið við þetta án þess að vera bara föst inni á rannsóknarstofu að skoða eitthvert eitt, lítið prótein sem enginn nema maður sjálfur veit eitthvað , á meðan það skilja þetta allir.“ Og þegar frjósemi er rædd á mannamáli berst talið óhjákvæmi- lega að máli málanna og sambandi aldurs og frjósemi, sem Bríet telur fólk oft gleyma þegar það fer að huga að barneignum. „Hjá körlum skiptir þetta svo sem engu máli. Þeir eru bara frjóir alla daga, alla ævi, en hjá konum minnkar frjósemin hægt og rólega og þá sérstaklega um og eftir 35 ára aldur. Ég held að meðalaldur fyrir fyrsta barn sé kominn yfir þrítugt hjá konum í fjölmörgum löndum.“ Sigurgeir skýtur inn í að sjálfsagt sé þessi þáttur ekkert endilega fólki ofarlega í huga þegar það ákveður að klára til dæmis nám og hugsi með sér að það sé alltaf hægt að eignast barn seinna. „Þú getur ekki breytt þessari líffræðilegu klukku,“ segir Bríet, sem sér ekki fram á að vísindin muni setja strik í þennan reikning í náinni framtíð. „Eftir því sem konan er eldri, þá verður líka allt við meðgöngu erfiðara líkamlega. Þannig er það bara.“ Menntarígur í Bretabæli Þar sem Bríet og Sigurgeir búa hvort í sinni borginni sáu þau fram á að eiga á hættu að þurfa að vera aðskil- in allan þann tíma sem COVID-19 setti samkomum og ferðafrelsi skorður í Bretlandi. Þau sáu sér því þann kost vænstan að forða sér heim til Íslands og héðan flugu þau aftur út í vikunni, eftir að hafa unað hag sínum vel síðan í mars. „Við erum búin að hafa það gott og vorum við mjög fegin að koma heim,“ segir Sigurgeir sem sér einnig fyrir endann á fjarbúðinni þar sem Bríet klárar í Oxford eftir áramótin. „Hún átti að klára núna í október en faraldurinn seinkaði því aðeins, en þá ætlar hún að flytja til mín. Ég klára ekki fyrr en í október á næsta ári, en þetta er ákveðið þannig að þá lýkur loksins þessari þriggja ára fjarbúð,“ segir Sigurgeir og Bríet seg- ist brosandi ætla að láta sig hafa það að flytja á „hinn staðinn“ með vísan til rómaðs núnings milli háskóla- bæjanna. „Hinn staðurinn er helst ekki nefndur á nafn,“ segir Sigurgeir um Oxford, þar sem lítið fer fyrir Cam- bridge í daglegu tali. Bríet segir þau þó síður en svo vera í harmrænum sporum hinna forboðnu elskenda Júlíu og Rómeós. „Nei, þetta er bara svolítill rígur. Svona MR-Versló og þetta er rosa- lega algengt. Maður hittir mjög mörg pör sem eru í svipaðri stöðu.“ ÉG HEF BARA ALLTAF HAFT ÁHUGA Á VÍSINDUM OG LÍFFRÆÐI OG FJÖL- SKYLDAN MÍN ER ÖLL SVONA FREKAR VÍSINDA- SINNUÐ. Bríet Nú er rétti tíminn til að njóta Íslands og alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Hvort sem þú vilt vera sóló, í hópi eða í rómans geturðu fundið þína flugleið til Ísafjarðar þar sem Borea Adventures, Tjöruhúsið og fleiri eðalviðkomustaðir taka þér og þínum fagnandi. Flug og bíll eða flug og gisting eru á sérkjörum í allt sumar þannig að núna er rétti tíminn til að kynnast Ísafirði upp á nýtt. + Bókaðu á airicelandconnect.is Flug og gisting frá í eina nótt á mann 29.900 kr. Flug og bíll frá í einn sólarhring á mann 28.900 kr. + Ísafjörður + Rúnar Karlsson Borea Adventures á Ísafirði. H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21L A U G A R D A G U R 2 5 . J Ú L Í 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.