Fréttablaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 40
Ljóðasamkeppni Hinsegin daga er eini vettvangurinn af þessu tagi sem er sér- staklega hugsaður fyrir hinsegin fólk. Bjarndís Helga Tómasdóttir Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria@frettabladid.is Síðustu ár hefur dagskráin á Hýrum húslestrum verið sérlega fjörug og áhugaverð. „Við höfum fengið alls konar fólk, skáld og þýðendur til að lesa úr verkum sínum. Það var sérstaklega gaman þegar Lilja Sigurðardóttir las í fyrsta sinn úr óútkominni skáldsögu sinni, Netinu. Þá hafa verið ljóðagjörningar og tónlist- aratriði. Dagskráin í ár er enn í mótun, en nú þegar hafa nokkur skáld staðfest þátttöku sína, sum mjög þekkt og sum minna. Það er aldrei að vita hvað gerist og óvissuþátturinn er skemmtilegur. Maður gerir ekki endilega ráð fyrir því að bókmenntaviðburður sé fjörlegur, en það er samt þannig á Hýrum húslestrum. Í fyrra leystust húslestrarnir til dæmis upp í karnivalíska stemningu þar sem blómvendir f lugu um salinn og ljóðalesturinn ætlaði engan endi að taka. Svo verð ég að nefna að við Elísabet erum að vinna að nýju leyniverkefni sem við kynnum lík- legast á Hýrum húslestrum,“ segir Bjarndís Helga Tómasdóttir sem sér um ljóðasamkeppnina ásamt Elísabetu Thoroddsen. Nafnleysið gefur öruggt rými Ljóðasamkeppni Hinsegin daga er vettvangur fyrir hinsegin fólk til að koma skáldskap sínum á framfæri. „Það er auðvitað hvers og eins að skilgreina sig og við höfum aldrei farið fram á neinar sérstakar sannanir á hinseginleika þátttakenda. En við gerum þó ráð fyrir því að þau sem skilgreina sig ekki sem hinsegin, láti það vera að senda inn í keppnina. Hlutverk okkar Elísabetar er taka við ljóð- unum sem berast og koma þeim nafnlaust áfram til dómnefndar. Mikilvægur vettvangur fyrir hinsegin skáld að koma fram Sigurvegarar Ljóðasamkeppni Hinsegin daga verða tilkynntir á Hýrum húslestrum þann 7. ág úst í Tjarnarbíói. Að sögn Bjarndísar, annars umsjónarmanns keppninnar, kom hugmyndin að keppninni fram þegar hún var að leita að hinsegin efni fyrir bókmenntaviðburð, en greip í tómt. Bjarndís og Elísabet hafa séð um Ljóðasamkeppni Hinsegin daga síðan 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR. Það er mjög mikilvægt að ferlið sé þannig, enda er samfélagið á Íslandi ekki svo stórt. Nafnleysið gefur mörgum öruggt rými til þess að taka þátt og við hvetjum auðvitað sem flest til að láta slag standa. Eingöngu vinningsljóðin koma fyrir sjónir almennings og eru kynnt undir nafni skáldsins. Þá eru úrslitin tilkynnt á Hýrum húslestrum, bókmenntaviðburði Hinsegin daga.“ Keppnin er sérstaklega hugsuð fyrir ljóð en einnig má senda inn örsögur, enda ekki alltaf ljóst hvað er ljóð og hvað örsaga. „Í fyrra vann reyndar frekar langt ljóð, sem var næstum því smásaga, „Tartufo Nero,“ eftir Önnu Gyðu Sigurgeirsdóttur.“ Mörkin eru því frekar loðin. Engin skilyrði gilda um yrkis- efnið. Þó segir Bjarndís það kost ef ljóðið lýsi hinsegin veruleika að einhverju leyti. „Þetta er náttúru- lega hinsegin ljóðakeppni.“ Tungu- málið er opið en ekki er hægt að ábyrgjast að dómnefndin skilji önnur tungumál en íslensku og ensku. „Ég held að öll vinningsljóð keppninnar nema eitt hafi verið á íslensku. Það er gott fyrir skáldin að hafa í huga að velja úr sín bestu ljóð, kannski eitt til þrjú.“ Mikilvæg keppni Bjarndís vill meina að ljóðakeppni af þessu tagi hafi mikið gildi fyrir hinsegin samfélagið á Íslandi. „Hugmyndin vaknaði skömmu fyrir Hinsegin daga árið 2016. Ég hafði tekið að mér að sjá um Hýra húslestra og var að leita að skáldum til þess að lesa upp úr nýlegum, eða óbirtum verkum. Það var mjög erfitt að finna nokkurn til þess að lesa upp og mér fannst það virkilega leiðinlegt og eiginlega bara frekar skrýtið, að það væri ekki allt morandi í íslensku hinsegin efni. Keppnin er því eins konar viðbragð við skorti. Við áttuðum okkur ekki strax á því hvað þessi keppni er í raun og veru dýrmæt. Skáldverk eru alltaf afurð þess samfélags sem þau spretta úr og við lifum í samfélagi þar sem gagnkynhneigð er normið. Á sama tíma lærir man hvernig man á að vera til í gegnum skáldverk, og lærir um tilfinn- ingar í gegnum ljóð. Þannig verður þetta að óendanlegri lykkju þar sem lítið rými gefst fyrir allt það sem fellur utan almennra gagn- kynhneigðra staðla. Það er samt allt á réttri leið og hinseginleikinn verður sífellt meira áberandi í bókum. Við þurfum samt að halda áfram að skapa rými fyrir raddir hinsegin fólks. Ljóðasamkeppni Hinsegin daga er eini vettvangur- inn af þessu tagi sem er sérstaklega hugsaður fyrir hinsegin fólk og það er vissulega þörf á því. Sumir sem taka þátt hafa jafnvel aldrei deilt verkum sínum með öðrum, en gera það hér, vitandi að þetta er öruggt rými. Við sjáum það best á því hve mörg ljóð berast ár hvert.“ Ljóðasamkeppnin var fyrst haldin árið 2016 og í ár fer hún fram í fimmta sinn. Bjarndís hefur séð um keppnina frá upphafi og fékk Elísabetu til liðs við sig árið eftir. „Við erum góðar vinkonur og vinnum mjög vel saman. Við sjáum líka saman um Hýra húslestra, bókmenntaviðburð Hinsegin daga.“ Bókaforlagið Sæmundur hefur veitt vegleg bókaverðlaun til þriggja efstu sætanna auk þess sem Hinsegin dagar hafa gefið vinningshöfum góðan glaðning. „Hvað það verður í ár á eftir að koma í ljós. Og svo hljóta skáldin að sjálfsögðu vegsemd og virðingu, það má ekki gleyma því.“ Hin heilaga raddfagra dómaraþrenning Fyrsta árið sátu skáldkonurnar Fríða Ísberg og Elísabet Jökuls- dóttir í dómnefnd, ásamt Viðari Eggertssyni. Viðar hefur þá verið í dómnefnd öll árin. Í ár sitja skáld- konurnar Harpa Rún Kristjáns- dóttir og Gerður Kristný í dóm- nefnd ásamt Viðari. „Við höfum alltaf verið mjög ánægðar með störf dómnefndar og hrifnar af vali hennar, þó það sé samt alltaf smekksatriði hvaða ljóð sé best. Það er hefð fyrir því að dómnefnd lesi vinningsljóðin fyrir gesti Hýrra húslestra. Viðar er auðvitað með svo geggjaða rödd í ljóða- lestur, við reynum þess vegna alltaf að fá bara fólk með fallegar raddir til þess að sitja í dómnefnd. Við bindum mjög miklar vonir við Gerði í ár, að hún skili góðum per- formans.“ Hinsegin skúffuskáld eru hvött til þess að draga fram stílabækur, Word-skjöl, kassakvittanir og hvað annað sem verk þeirra kunna að leynast á og senda á netfangið huslestrar@gmail.com fyrir mánu- daginn 27. júlí. Já! Persónulegar athafnir fyrir alls konar fólk 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.