Fréttablaðið - 25.07.2020, Side 24

Fréttablaðið - 25.07.2020, Side 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Fólk mætir í venjulegum fötum, tekur á, svitnar ekki en getur fylgst mjög vel með styrktaraukningu. „Það er ómetanlegt að sjá hvernig með- limir okkar upplifa bætt lífsgæði. Ein af þeim sem stundar golf náði loksins að lækka forgjöfina sína um fjóra, eftir aðeins tveggja mánaða ástundun. Annar getur loksins labbað niður fjall án þess að finna fyrir verkjum og mjög margir geta loksins hlaupið mun lengra en áður.“ „Það skiptir okkur miklu máli að fólk sé alltaf að keppa við sig sjálft, en ekki eitthvert meðaltal,“ segir Örn Helgason, annar eigandi OsteoStrong. „Styrktaraukning er mjög hröð hérna og fólk er að meðaltali að bæta sig um 73% á ári. Eftir að þessum 10 mínútum lýkur er fólki svo boðið að leggjast á PEMF bekki í slökun, sem hjálpar blóðflæði og dregur úr bólgum í líkamanum,“ bætir hann við. 2.800 Íslendingar hafa prófað OsteoStrong „Móttökurnar hafa verið mjög jákvæðar. Við heyrum gleði- og árangurssögur nánast á hverjum degi,“ segir Örn. „Það er frábært að fá svona mikla staðfestingu á því að kerfið virkar, en mest gefandi að vita að það sem maður starfar við geti breytt lífi fólks svona mikið til hins betra. Við höfum tekið á móti 2.800 manns hérna í Borgartúninu á árinu og núna stunda 300 manns OsteoStrong vikulega. Sumir koma bara í nokkra mánuði og þurfa ekki meira, þeir sem vinna að beinauppbyggingu þurfa allavega að vera hjá okkur í eitt ár. Aðrir hafa ákveðið að gera ástundun að hluta af heilbrigðum lífsstíl,“ bætir hann við. „Það hefur líka verið ánægjulegt hversu mikið af fólki úr heilbrigðisgeiranum hefur kynnt sér starfsemina, eins og læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálf- arar og aðrir sem láta sig heilbrigði varða.“ Álag þéttir vöðva Með því að setja álag á líkamann hvetjum við hann til þess að styrkja sig. Tæki OsteoStrong gera meðlimum kleift að ýta frá sér f leiri kílóum en er mögulegt ann- ars staðar. Með ástundun þéttast beinin, vöðvar, sinar og liðbönd. Hjá OsteoStrong tekst fólki oft að setja á sig álag sem samsvarar margfaldri líkamsþyngd þess með jafn öruggum hætti og hægt er. „Þess vegna gerast hlutirnir oft hraðar hérna heldur en við aðra hreyfingu. Fólk finnur í framhaldi oft fyrir minni verkjum, betra jafn- vægi og meiri orku. Þá er svo miklu skemmtilegra að vera til,“ segir Svanlaug Jóhannsdóttir, eigandi. Betra jafnvægi „Það má búast við því að jafnvægið batni hratt. Eftir aðeins fimm skipti er fólk að meðaltali búið að bæta það um 77%. Fyrir suma þýðir það að þeir eru betri í golfi, eða stöðugri í jógatímum. Fyrir aðra þýðir þetta að þeir geta sleppt göngugrindinni, eða átt auðveld- ara með að ganga.“ Alls konar fólk Fólk sem stundar OsteoStrong er á öllum aldri og mjög mismunandi á sig komið. Margir nota þetta sem viðbót við aðra þjálfun, en fyrir suma er þetta það eina sem þeir geta stundað. „Það er ekki meiningin að við séum eina hreyfingin sem fólk stundar. Við hvetjum fólk endi- lega til að gera allt sem því þykir skemmtilegt. Fyrir suma erum við það fyrsta sem þeir geta gert eftir að hafa dottið út úr hreyfingu í Ástundun OsteoStrong tekur mjög stuttan tíma eða um 10 mínútur á viku. Fólk finnur oft mjög fljótt mikinn mun á sér. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þeir sem stunda æfingar hjá OsteoStrong njóta handleiðslu þjálfara í fjórum tækjum sem reyna á allan líkamann. Rauð og innrauð ljós bæta kollagenframleiðslu húðarinnar. Framhald af forsíðu ➛ langan tíma. Fyrir aðra þá erum við einmitt hjálpin sem þarf, til þess að ná markmiðum sínum í maraþoninu,“ bætir Örn við og brosir. Hámarksárangur á lágmarks- tíma hjá OsteoStrong „Við hjónin stofnuðum þetta fyrirtæki til þess að hjálpa fólki að fá hámarksárangur hreyfingar á lágmarkstíma. Ég var ekkert sérstaklega að hugsa um sjálfan mig í því samhengi. Ég hef alltaf verið hraustur. En svo fattaði ég allt í einu að ég var farinn að geta synt bringusund, sem ég hafði ekki getað í tólf ár út af hnénu á mér. Ég varð stundum þreyttur í bakinu, en það er alveg búið. Líkamsstaða mín er betri, ég er með opnari bringu og ber mig betur. Ég er orkumeiri, hressari og verð ekki veikur. Ég á líka auðveldara með að stjórna mataræðinu, því að ástundun OsteoStrong hefur áhrif á blóðsykurinn. Ég er líka orðinn svo sterkur að ég næ að gera allt sem mér dettur í hug án þess að finna fyrir því daginn eftir. Við vinnum mjög mikið því við erum með nýtt fyrirtæki, svo að allur okkar frítími fer í að njóta þess að vera með börnunum okkar. Við stundum siglingar hjá siglinga- félaginu Ými í Kópavogi. Dóttur minni finnst skemmtilegast að sigla skútu og Svanlaugu finnst skemmtilegast að sigla kajak. Svo fórum við í það að laga pallinn, eins og allir Íslendingar í sumar. Við ætlum að halda partí í tilefni þess að sumarið sé búið og allir komist aftur í rútínu. Allar árstíðir bjóða upp á eitthvað spennandi,“ segir Örn. OsteoStrong býður upp á ókeypis prufutíma í júlí og ágúst í Borgar- túni 24. Áhugasamir geta skráð sig á osteostrong.is eða í síma 419 9200. Eftir aðeins fimm skipti er fólk að meðaltali búið að bæta jafnvægi um 77%. Fyrir suma þýðir það að þeir eru betri í golfi, eða stöðugri í jógatímum. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.