Fréttablaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 46
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Innilegar þakkir sendum við
öllum þeim sem hjálpuðu okkur
og sýndu samúð og hlýju við andlát
og útför okkar ástkæru eiginkonu,
móður, dóttur og systur,
Unnar Leu Pálsdóttur
Pétur H. Pétursson
Sara Rós Pétursdóttir
Rósa Björk Pétursdóttir
Páll Kristjánsson
Rósa Helgadóttir
Bjarnveig Pálsdóttir
Viktor Stefán Pálsson
Íris Björk Pálsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, bróðir, tengdasonur og mágur,
Hans Adolf Hjartarson
Krókavaði 23, Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 18. júlí,
eftir erfið veikindi. Útför fer fram frá
Fossvogskirkju, þriðjudaginn 28. júlí,
klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir,
en þeim sem vilja minnast hans er bent á sameiginlegan
reikning barna hans: 021207-2250, 0322-22-004504.
Rakel Ósk Hreinsdóttir
Helena Ósk Hansdóttir Hjörtur Hansson
Hjörtur Hansson Kristín Þórisdóttir
Geir Óskar Hjartarson
Haukur Árni Hjartarson Kristinn Bragi Garðarsson
Guðrún Hrönn Hjartardóttir Ragnar Smári Guðmundss.
Ingibjörg Andrésdóttir Hreinn Guðmundsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
Eva Magnúsdóttir
Heiðargerði 48,
lést á hjúkrunarheimilinu
Boðaþingi, þann 20. júlí sl.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Spóalundar, hjúkrunarheimilinu Boðaþingi, fyrir frábæra
umönnun, nærgætni og hlýju.
Steinþór Marinó Gunnarsson
Sigrún Steinþórsdóttir
Erna Steinþórsdóttir Eyjólfur Hjaltason
Hildur Steinþórsdóttir Jóhannes K. Guðlaugsson
Guðrún Steinþórsdóttir Þorsteinn Pálmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Minningarkort á hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Stefán Þórhallsson
fyrrverandi pípulagningameistari,
lést þann 21. júlí síðastliðinn.
Útför fer fram frá Áskirkju,
fimmtudaginn 30. júlí 2020, kl. 13.00.
Þökkum auðsýnda samúð.
Gunnar Sigurðsson Hlédís S. Hálfdánardóttir
Marta Sigurðardóttir
Helga Sigurðardóttir Alfons S. Kristinsson
Þuríður Sigurðardóttir Helgi Ómar Pálsson
Unnur Stefanía Sigurðardóttir Ásmundur Kr. Ásmundss.
Vera Ýr Pálmadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Erindið mitt nefnist Fingra-för Sæmundar fróða. Það snýst um heimildir um skrif Sæmundar í Odda, sem finna má í fornum bókum,“ segir Friðrik Erlingsson rithöf-
undur, sem verður með fróðleiksstund
í Kvoslæk í Fljótshlíð klukkan 15.00 í
dag, laugardag.
Friðrik segir Sæmund fróða stundum
nefndan fyrsta íslenska rithöfundinn.
Vitað sé að hann skrifaði Noregskon-
ungatal og langfeðgatal hinna fornu
Danakonunga, Skjöldunga. „Ég mun
draga fram f leiri verk sem hann gæti
hafa skilið eftir sig og styðst við til-
vitnanir sem hljóta að vera úr rituðum
verkum hans. Þetta er ekki fullkomin
rannsókn hjá mér, en ég þykist hafa
fundið fingraför hans víða,“ segir hann.
Sæmundur Sigfússon var prests-
sonur, fæddur 1056 og var sendur til
náms erlendis árið 1072, að sögn Frið-
riks. „Þegar hann kom heim aftur vígði
hann nýja kirkju í Odda og helgaði heil-
ögum Nikulási, sem var verndardýr-
lingur, og síðar varð hann frumgerðin
af ameríska jólasveininum. Sæmundur
var af fyrstu kynslóð Íslendinga sem
lærðu í útlöndum rétt og lög kirkju-
halds, mælskufræði, heimspeki, söng,
stjarnfræði, landmælingar og fleira. Var
eins menntaður og menn gátu orðið í þá
daga og einn upphafsmanna ritaldar hér
á landi.“
Sæmundur fróði var frumkvöðull að
tíundarlögunum, fyrstu skattlagningu
á Íslandi, ásamt Gissuri biskupi Ísleifs-
syni,“ lýsir hinn fróði Friðrik. „Sú skatt-
heimta skapaði heilmikinn auð á næstu
áratugum, sérstaklega á biskupssetrum
og stórum kirkjustöðum og var grund-
völlur undir það menningar- og bók-
menntastarf sem síðan braust út og
blómgaðist næstu tvær aldir. Upphaf
ritaldar er kannski sambærilegt við það
þegar íslenska kvikmyndavorið brast á
um 1980. Þá var að koma heim frá námi
hópur leikstjóra og kvikmyndafram-
leiðsla byrjaði fyrir alvöru hér á landi.“
Friðrik veltir fyrir sér hvað hefði gerst,
ef Íslendingar hefðu ekki haldið út til
náms á elleftu öld. „Þá hefði ekki verið
ritaður allur sá fróðleikur sem við búum
að í dag, Eddukvæðin og annað slíkt,
sem var partur af heiðinni heimsmynd
og var að hverfa með því fólki sem kunni
þessi kvæði.“
Þjóðsögurnar hafa gert Sæmund fróða
að einhvers konar galdramanni. Friðrik
telur sögurnar um samskipti hans og
kölska, hugsanlega tengjast helgileikj-
um við kirkjuna í Odda. „Í sögu heilags
Nikuláss fylgir honum lítill svartur púki,
sem er tákn fyrir hið illa og er alltaf að
hrekkja og stríða, en Nikulás reynir að
skikka hann til. Sagnirnar gætu hafa
færst yfir á Sæmund og túlkað fjölkynngi
hans, þar sem hann er að gera lítið úr
kölska og vefja honum um fingur sér.“
Friðrik kveðst eiga margra áratuga
pælingar að baki um Sæmund fróða og
fagnar því að fá tækifæri til að losa sig
við þessa byrði í Hlöðunni að Kvoslæk.
Aðgangur er ókeypis og húsráðendurnir,
Rut Ingólfsdóttir og Björn Bjarnason
bjóða upp á kaffi að loknu erindinu.
gun@frettabladid.is
Pælingar um Sæmund
Rithöfundurinn Friðrik Erlingsson hefur rannsakað vísbendingar um ritstörf Sæmundar
Sigfússonar, prests í Odda, og lýsir þeim í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð í dag kl. 15.
Friðrik telur Sæmund fróða hafa verið eins menntaðan og menn gátu orðið í þá daga og einn upphafsmanna ritaldar hér á landi.
2 5 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT