Fréttablaðið - 25.07.2020, Síða 64

Fréttablaðið - 25.07.2020, Síða 64
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Margrétar Kristmannsdóttur BAKÞANKAR © In te r IK EA S ys te m s B. V. 2 02 0 Verslun opin 11-20 alla daga - Veitingasvið opið 11:00-19:30 - IKEA.is ÚTSÖLUNNI lýkur á morgun Laugarásvegur 1 Pantaðu á skubb.is OG FÁÐU HEIMSENT Fyrir svanga ferðalanga Þegar við hjón eignuðumst í fyrsta skipti fasteign með bílskúr var gerður einfaldur samningur: bílskúrinn skyldi vera óskorað yfirráðasvæði eigin- mannsins en frúin fékk á móti fullt ákvörðunarvald yfir öðrum fermetrum hússins. Þetta sam- komulag hefur haldist þokkalega síðustu tvo áratugina enda aðilar sammála um að annað væri vart til farsældar fyrir hjónabandið. Í okkar tilfelli er bílskúr þó sennilega vart réttnefni enda hefur bíll aldrei komið inn í skúrinn heldur hefur hann verið notaður sem geymsla alla tíð. Og það kom f ljótlega í ljós að sama lögmál gilti um okkar bílskúr og allar aðrar geymslur – ef það er pláss þá fyllist það. Eiginmanninum fylgir mikið af vélum og verkfærum svo ekki sé minnst á allar skrúfurnar og naglana. Það kom enda f ljótlega í ljós að í bílskúrnum unir bóndinn hag sínum vel – endalaust virðist vera hægt að sýsla, taka til, raða og endurraða. Þessar gæðastundir hafa komið sér vel því bílskúrinn dregur að sér allt drasl sem fellur til á heimilinu og einhvern veginn er það svo að í lok hverrar viku er vart þverfótað í skúrnum fyrir dóti. Þetta þarf sá sem valdið fer með í skúrnum að fara í, enda falla ferðir á Sorpu með afrakstur viku- legrar tiltektar einungis niður í undantekningartilfellum. En þessi háttur virðist við- hafður á mun f leiri heimilum en okkar, því ef bílskúrshurð sést opin eru f lestir bílskúrar fullir af dóti og heimilisfeður á kafi í til- tekt. Enda virðist fátt toppa góðan laugardag hjá mínum við stúss í bílskúrnum, Sorpuferð og góðan fótboltaleik með kaldan bjór við hönd. Ætli slíkt eigi ekki við á f leiri heimilum! Bílskúrinn hans

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.