Fréttablaðið - 29.07.2020, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 29.07.2020, Blaðsíða 4
Sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu eru sex talsins. Mestur stuðningur við einhvers konar sam- einingu er meðal Reykvík- inga. Þrír létust í eldsvoða á Bræðraborgarstíg 25. júní og einn liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild. Já Nei n Reykjavík 81,2% 18,8% n Kópavogur 73,7% 26,3% n Hafnarfjörður 57,6% 42,4% n Garðabær 50,1% 49,9% n Mosfellsbær 32,4% 67,6% n Seltjarnarnes 35,2% 64,8% Landsbyggðin 80,5% 19,5% ✿ Styðja einhverja sameiningu (búseta) Það sem þátttakendur uppskera: • Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu • Hugrekki til að rétta upp hönd og taka þátt í umræðum • Leiðir til að kynnast nýju fólki, bæta samskipti og styrkja sambönd • Þor til að koma hugmyndum sínum á framfæri og hafa áhrif • Betra skipulag og skýrari markmið • Jákvætt viðhorf og kvíða/streitustjórnun Næstu námskeið: 10-12 ára – 5. ágúst kl 9-13, 8 virka daga í röð - Uppselt 10-12 ára – 12. ágúst kl 10-14, 8 virka daga í röð 10-12 ára – 26. september kl 10-13, 8 laugardaga í röð 13-15 ára – 5. ágúst kl 13.00 til 16.30, 8 virka daga í röð 13-15 ára – 22. september kl 17-20.30, 1x í viku í 8 vikur 16-19 ára örnámskeið – Kickstartaðu haustinu! 17.-18. ágúst kl 13-16 16-19 ára – 10. ágúst kl 18-22, 8 skipti á 4 vikum 16-19 ára – 23. sept kl 18-22, 1x í viku í 8 vikur 20-25 ára – 4. ágúst kl. 18-22, tvisvar í viku – Örfá sæti laus 20-25 ára – 24. september kl. 18-22, einu sinni í viku 18-25 ára – 9.-11. október kl 8.30-17, 3 dagar í röð Kynntu þér málið á dale.is eða í síma 5557080 98% þátttakenda segjast þora meira að vera þau sjálf LÖGREGLUMÁL Á þriðja tug vitna hefur verið yf irheyrður vegna húsbrunans við Bræðraborgar- stíg 1, þann 25. júní síðastliðinn, samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu. Meðal þeirra eru bæði fórnarlömb brunans og íbúar hússins, auk ann- arra vitna sem voru í námunda við brunann. Bruninn er rannsakaður sem manndráp af ásetningi. Auk þess er hinn grunaði sakaður um íkveikju sem olli almannahættu, um að hafa stefnt lífi fólks í hættu og að hafa brotið gegn valdstjórninni. Hinn grunaði var þann 15. júlí úrskurðaður í gæsluvarðhald til 6. ágúst. Ekki er víst hvort ákæra verði gefin út fyrir þann tíma. Yfirheyrslur yfir manninum eru hafnar, en ekki var hægt að ræða við hann í að minnsta kosti þrjár vikur í kjölfar brunans vegna and- legs ástands. Vettvangsrannsókn að Bræðra- borgarstíg er lokið af hálfu lög- reglunnar. Áður en ákæra verður gefin út er nú beðið niðurstöðu rannsókna á sýnum sem tekin voru á staðnum. Hvort óskað verði framlengingar á gæsluvarðhaldi 6. ágúst, ræðst þó fyrst og fremst af því hvernig lögreglu sækist að kynna hinum grunaða gögn málsins og yfirheyra um málsatvik. Enginn annar en umræddur maður hefur stöðu grunaðs. Alls létust þrír í brunanum við Bræðraborgarstíg. Fjórir lögðust inn á spítala, þar af tveir á gjör- gæslu. Þrír af þeim sem þurftu að leggjast inn á spítala hafa nú verið útskrifaðir, en sá fjórði er enn þungt haldinn. – thg Á þriðja tug vitna yfirheyrð vegna brunans á Bræðraborgarstíg Frá eldsvoðanum á Bræðraborgarstíg. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK SVEITARSTJÓRNARMÁL Mikill meiri- hluti þeirra sem tekur afstöðu í nýrri könnun sem Zenter rann- sóknir unnu fyrir Fréttablaðið, er spenntur fyrir því að einhver sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu verði sameinuð. Ef aðeins er litið til íbúa á höfuð- borgarsvæðinu telja rúm 72 prósent að sameina megi einhver sveitar- félög á svæðinu, en tæp 28 prósent eru því ósammála. Íbúar á landsbyggðinni eru enn frekar á því að sameina megi ein- hver þessara sveitarfélaga. Þar telja tæp 81 prósent að sameina megi einhver þeirra. Hlutfallslega f lestir íbúar í Reykjavík eru á því að sameina megi einhver sveitarfélög á höfuð- borgarsvæðinu. Rúmt 81 prósent er á þeirri skoðun, en hlutfallið er rúm 73 prósent í Kópavogi, tæp 58 prósent í Hafnarfirði og rétt rúmur helmingur í Garðabæ. Áhuginn er öllu minni í Mos- fellsbæ og á Seltjarnarnesi, þar sem um tveir af hverjum þremur vilja ekki sameiningu á höfuðborgar- svæðinu. Ef aðeins er litið til íbúa á höfuð- borgarsvæðinu reynast karlar held- ur spenntari fyrir sameiningu en konur. Rúm 77 prósent karla telja að sameina megi einhver sveitarfélög, en rúm 66 prósent kvenna. Þá er eldra fólk nokkuð áhuga- samara um sameiningu sveitar- félaga en yngra fólk. Þannig eru á bilinu 77 til 81 pró- sent þeirra sem eru eldri en 45 ára á því að sameina megi einhver sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Hlutfallið er hins vegar 55 prósent Margir vilja sameina öll sveitarfélögin Flestir þeirra sem telja að sameina megi einhver sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu vilja að þau sameinist í eitt sveitarfélag. Mestur áhugi á einhvers konar sameiningu er meðal Reykvíkinga og íbúa á landsbyggðinni. Karlar eru hlynntari sameiningu en konur. hjá þeim sem eru 18-24 ára. Í aldurs- hópnum 35-44 ára eru 70 prósent hlynntir einhverri sameiningu, og litlu færri hjá 25-34 ára. Hið sama gildir um tekjuhærri hópa sem eru líklegri til að styðja sameiningu en tekjulægri hópar. Rúm 79 prósent þeirra sem hafa 600 þúsund krónur í tekjur á mán- uði telja að sameina megi einhver sveitarfélögin. Hlutfallið er um það bil tveir þriðju hjá þeim sem hafa lægri tekjur en 600 þúsund á mánuði. Þeir sem svöruðu því að sameina mætti einhver sveitarfélaganna, voru einnig spurðir um það hvaða sameiningu þeir vildu helst sjá. Svarendur gátu þar merkt við fleiri en einn valmöguleika. Af íbúum á höfuðborgarsvæðinu svöruðu flestir, eða tæpur helming- Samanlagður íbúa- fjöldi tæp 235 þúsund Þann 1. júlí síðastliðinn var samanlagður fjöldi íbúa sveitar- félaganna sex 234.703, sam- kvæmt tölum frá Þjóðskrá. Í Reykjavík bjuggu 132.421, Kópavogsbúar voru 38.156, Hafnfirðingar 29.873, Garðbæ- ingar 17.322, í Mosfellsbæ voru íbúar 12.231 og á Seltjarnarnesi voru þeir 4.700. ur því, að sameina mætti öll sveitar- félögin á svæðinu í eitt sveitarfélag. Næstf lestir nefndu sameiningu Reykjavíkur og Seltjarnarness, eða rúm 44 prósent. Rúm 27 prósent svöruðu að sam- eina mætti Kópavog, Hafnarfjörð og Garðabæ og tæp 22 prósent að sameina mætti Reykjavík og Mos- fellsbæ. Þá nefndu rúm 15 prósent sam- einingu Hafnarfjarðar og Garða- bæjar, tæp tíu prósent sameiningu Kópavogs og Garðabæjar og rúm átta prósent sameiningu Reykja- víkur og Kópavogs. Ef svör íbúa á landsbyggðinni eru skoðuð, kemur í ljós að tveir af hverjum þremur sem vilja sjá ein- hverja sameiningu nefna samein- ingu allra sveitarfélaganna. Könnunin sem var send á könn- unarhóp Zenter, var framkvæmd 16. til 28. júlí. Í úrtaki voru 2.600 manns 18 ára og eldri, en svarhlutfall var rúm 55 prósent. Gögnin voru greind eftir kyni, aldri og búsetu. sighvatur@frettabladid.is 2 9 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.