Fréttablaðið - 29.07.2020, Blaðsíða 6
Við flytjum sorpið
til þriggja staða –
Rotterdam og Osló og svo til
Álaborgar í Danmörku.
Jón Þórir Frantz-
son, forstjóri
Íslenska gáma-
félagins
UMHVE RFISM ÁL Einsýnt er að
útf lutningur á almennu sorpi
muni aukast á næstu misserum,
segja viðmælendur Fréttablaðsins.
Útf lutningur á vegum einkaaðila
hefur aukist mikið síðastliðið ár og
nú hefur Sorpa það til skoðunar að
gera slíkt hið sama, en samkvæmt
nýlega samþykktum viðauka eig-
endastefnu fyrirtækisins verður
hætt að urða sorp í Álfsnesi fyrir
árslok 2023. Sorpið sem flutt er út,
einkum til Danmerkur, er brennt til
orkuframleiðslu þegar það er komið
á áfangastað.
Íslenska gámafélagið f lytur um
1.500 tonn af almennu sorpi út
í hverjum mánuði til orkufram-
leiðslu, að sögn Jóns Þóris Frantz-
sonar, forstjóra fyrirtækisins. Á
ársgrundvelli eru það um 18 þús-
und tonn, en Jón Þórir segir að á
næsta ári verði stefnt að því að tvö-
falda magnið, enda sé eftirspurnin
mikil erlendis. „Ég er alltaf að leita
að meira efni til að f lytja út,“ segir
hann í samtali við Fréttablaðið.
„Við f lytjum sorpið til þriggja
staða – Rotterdam og Osló og svo til
Álaborgar í Danmörku,“ segir Jón
Þórir, en um þriðjungur alls raf-
magns sem Álaborg og nærliggjandi
sveitarfélög nota, er framleiddur
með brennslu á sorpi.
Samkvæmt upphaflegri eigenda-
stefnu Sorpu frá árinu 2013 átti að
hætta að urða sorp í Álfsnesi í lok
þessa árs, en því hefur nú verið
frestað til ársloka 2023. Sorpa hefur
ekki ráðist í útf lutning á sorpi til
orkubrennslu enn sem komið er,
en líklegt er að slíkar hreyfingar
fari af stað snemma á næsta ári, að
sögn Helga Þórs Ingasonar, fram-
kvæmdastjóra Sorpu.
Helgi Þór áætlar að allt að 60 til
70 þúsund tonn af sorpi sem ann-
ars hefði farið til urðunar á Íslandi,
gætu endað í erlendri orkuvinnslu.
Raunar sé það eini möguleikinn
í stöðunni á meðan engin sorp-
brennsla er til staðar á Íslandi eftir
að hætt verður að urða í Álfsnesi.
Sorpa hefur leyfi til að urða 120
þúsund tonn á ári af almennu sorpi
í Álfsnesi en hefur ítrekað farið yfir
þau mörk. Til að mynda voru 147
þúsund tonn urðuð árið 2018. Lík-
legt er talið að nokkuð svipuð staða
verði upp á teningnum á árinu 2019.
Eftir að Sorpa fór svo langt
yfir urðunarheimild sína á árinu
2018, þurfti félagið að skila inn
úrbótaáætlun til samþykktar hjá
Umhverfisstofnun. Sorpu hefur
enn ekki verið veitt áminning frá
Umhverfisstofnun vegna þessa, en
ekki er hægt að beita dagsektum
vegna brota á urðunarheimildum
nema að undangenginni áminn-
ingu. Dagsektir geta numið allt að
500 þúsund krónum, samkvæmt
lögum. thg@frettabladid.is
Útflutningur á almennu sorpi
til Danmerkur færist í aukana
Um það bil 1500 tonn af sorpi eru flutt úr landi í hverjum mánuði og þar er það brennt til orkufram-
leiðslu. Einsýnt er að útflutningurinn muni aukast. Sorpa hefur ekki enn hafið útflutning á sorpi, en
allar líkur eru á fyrirtækið geri það á næsta ári. Sorpa mun hætta urðun sorps í Álfsnesi fyrir árslok 2023.
Samkvæmt nýrri eigendastefnu Sorpu verður hætt að urða sorp í Álfsnesi fyrir árslok 2023. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SAMFÉLAG Galdradrengurinn Harry
Potter er ein dáðasta skáldsagna-
persóna allra tíma. Kemur fram í
bókum J. K. Rowling að Potter er
fæddur 31. júlí 1980. Hann fagnar
því fertugsafmæli. Því verður fagn-
að í Borgarbókasafninu í Kringl-
unni næstu daga.
Í tilkynningu frá Borgarbóka-
safninu segir að hugdjarfir geti leit-
að helkrossa, forvitnir geta komist
að því í hvaða vist þeir eru eða tekið
myndir af nýsloppnum Azkaban-
föngum. Hægt er að föndra öskrara
fyrir þá sem þurfa orð í eyra eða
hjálpa Harry að föndra Hedwig
og ferðatösku svo hann komist í
skólann.
Fögnuðurinn nær svo hámarki
frá klukkan 13-14 á föstudaginn er
slegið verður upp kökuboði. – bþ
Fertugsafmæli
Harry Potter
fagnað ákaft
LÖGREGLUMÁL Lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út
ákæru gegn fertugum Reykvíkingi
fyrir að keyra ítrekað undir áhrifum
áfengis- og vímuefna. Ekki tókst að
birta manninum ákæruna sem var
því birt í Lögbirtingablaðinu.
Manninum er gefið að sök að hafa
ekið alls átta sinum á 18 mánaða
tímabili undir áhrifum. Í öllum
tilvikum var hann undir áhrifum
kannabisefna og í helmingi tilvika
einnig undir áhrifum áfengis. – bþ
Ítrekað gripinn
undir áhrifum
Harry Potter and the Goblet of Fire.
Sekkjapípur ómuðu
Þau Barbara, Constantin og Lothar frá Þýskalandi, blésu í sekkjapípur af miklum þrótti við Bernhöftstorfu á mánudaginn. Þessi þýska fjölskylda
sem tilheyrir sautján manna áhugahópnum The Castle Pipers, kvaðst eiga sumarhús hér á landi og dvelja þar í fríum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STJÓRNSÝSLA Áslaug Arna Sigur-
björns dóttir dóms mála ráð herra
hefur til kynnt Ólafi Helga Kjartans-
syni, lög reglu stjóra á Suður nesjum,
um flutning hans til em bættis lög-
reglunnar í Vest manna eyjum.
Í form legu bréfi er tilkynnt að
flutningur Ólafs Helga til Eyja taki
gildi strax um mánaða mótin, fallist
hann á flutninginn. Hefur hann því
skamman tíma til að taka af stöðu
til þessara breytinga. Hafni Ólafur
breytingunum, kann að vera ein-
faldara fyrir ráð herra að gera við
hann starfs loka samning. Ólafur
Helgi verður 67 ára í septem ber og
er því kominn á leyfi legan eftir-
launa aldur.
„Ég tjái mig ekki um það,“ sagði
Ólafur Helgi í gær, inntur eftir
upp lýsingum um fyrir hugaðan
flutning. Ás laug Arna Sigur björns-
dóttir dóms mála ráð herra svaraði
ekki fyrir spurnum Frétta blaðsins
um málið, sem nánar er fjallað um
á frettabladid.is. – aá
Tilkynnti Ólafi
flutning til Eyja
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra boðar flutning.
2 9 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð