Fréttablaðið - 29.07.2020, Side 20
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar
í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ég er líka með þrjá staði á land-
inu sem ég flétta saman í þessari
lokaviðureign minni við söguna
því hluti hennar gerist í Horna-
firði, annar í Reykjavík og sá
þriðji við hæsta foss landsins,
Glym í Hvalfjarðarbotni.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Guðrún Hulda
Guðmundsdóttir
(Dúnna)
frá Kirkjulæk í Fljótshlíð,
sem lést á Grund, 19. júlí 2020,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju, 31. júlí, kl. 13.00.
Sigurbjörg Lundholm Þórir Ólafsson
Ísidór Hermannsson Ingibjörg Júlíusdóttir
Steinn Lundholm Erla Elva Möller
og afkomendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Gunnhildur Erla
Þórmundsdóttir
Ljósheimum, Selfossi,
lést föstudaginn 24. júlí.
Útförin verður auglýst síðar.
Jakob Skúlason Jóhanna Hallgrímsdóttir
Þórmundur Skúlason
Vilberg Skúlason Guðlaug Skúladóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Regína Pétursdóttir
til heimilis að Skarðshlíð 30b,
Akureyri,
lést 14. júlí síðastliðinn á sjúkrahúsinu
á Akureyri. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey, að ósk hinnar látnu.
Bergur Ingólfsson
Rannveig Friðþjófsdóttir
Aðalheiður Sigurjónsdóttir Ísak Halldórsson
Magnús Sigurjónsson Elísabet Hjálmarsdóttir
Lilja Hrönn Bergsdóttir Grétar Þorsteinsson
Sævar Bergsson
Eygló Bergsdóttir Sigurður Jóhannsson
ömmubörn og langömmubörn.
Við þökkum öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, vinsemd og hlýju,
við fráfall og útför okkar ástkæru
eiginkonu, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Arnheiðar Árnadóttur
Theódór Óskarsson
Guðrún Theodórsdóttir Kristján Georg Björnsson
Óskar Theódórsson Katla Sveinbjörnsdóttir
Bryndís Theódórsdóttir Gísli Kristján Birgisson
Guðni G. og Arna María Kristjánsbörn
Theódór, Arnheiður Rós, Pétur og Pálmi Óskarsbörn
Hildur Sif, Theódóra og Hinrik Hjaltabörn
og barnabarnabörn.
Merkisatburðir
Mag nú s Þór Sig mu ndsson, Monika Abendroth, Þórarinn Sigurbergsson, Berta Ómars-
dóttir, Svanur Vilbergsson, Kómedíu-
leikhúsið og f leiri góðir gestir koma
fram á listahátíð í Selárdal í Arnarfirði
um verslunarmannahelgina.
Auk dagskrár í höndum þessa lista-
fólks verður myndlistarsýning í Lista-
safni Samúels og listasmiðja fyrir fjöl-
skylduna. Einnig verður gönguferð í
boði um Selárdal, matur úr héraðinu,
kaffi og meðlæti og brennusöngur.
Karina Hanney Marrero sér um jóga
á morgnana.
Loks mun Kómedíuleikhúsið f lytja
leikrit um Samúel og sýnd verður kvik-
myndin Steyptir draumar í kirkjunni.
Hátíðarpassi kostar 9000 krónur frá
föstudegi til sunnudags. Miðar eru til
sölu á tix.is.
– gun
Listahátíð við safn Samúels í Selárdal
Það sem mér hefur alltaf þótt heillandi við spennusögu-formið er þegar höfund-inum tekst að færa hana nær skáldsögunni með sterkri persónusköpun. Ég vil hafa
bakgrunn í persónunum sem kemur
ekki endilega glæpnum við – eða öðru
því sem fjallað er um sem spennuefni.
Þetta hef ég verið að kljást við og snýst
einkum um eina persónu í bókunum
mínum, hann Kára og örlög hans, segir
Stefán Sturla Sigurjónsson, rithöfundur
og leikari með meiru. Tilefnið er nýút-
komin bók hans, Flækjurof. Hún er sú
þriðja á fáum árum. Hann vinnur með
stóra F-ið í titlunum, því áður komu út
Fuglaskoðarinn og Fléttubönd.
Stefán Sturla svarar símanum í
sumarblíðu heima hjá sér í Finnlandi,
en síðustu þrjú ár hefur hann dvalið
hluta ársins á Höfn við uppbyggingu
lista-og menningarsviðs hjá framhalds-
skólanum þar. Hann upplýsir að sögu-
svið Flækjurofs sé að einhverju leyti á
Hornafirði.
„Ég tek mér skáldaleyfi og nefni
enga staði beint en þeir sem þekkja til
sjá fyrir sér einhverjar aðstæður sem
þeir kannast við,“ segir hann og heldur
áfram. „Flækjurof er ekki beint fram-
hald af fyrri bókunum en viss þráður
er spunninn gegnum þær allar, eins
og tíðkast í þríleik. Í þessari nýjustu
er ég að hnýta
þær saman þó
þær séu sjálf-
stæðar. Ég er
líka með þrjá
staði á landinu
sem ég f létta
saman í þess-
ari lokaviður-
eign minni við
s ö g u n a þv í
hluti hennar
gerist í Horna-
f irði, a nna r
í Reyk jav í k
og sá þriðji við
hæsta foss landsins, Glym í Hvalfjarðar-
botni. Svo maður gerist svolítið djúpur
þá eru þessir staðir ekki valdir „af því
bara“, heldur hafa þeir merkingu fyrir
efnið.“
Stefán Sturla kveðst gefa frásögninni
ákveðinn ljóðrænan blæ. „Í ljóði er
sett saman hugsun sem mótast í fáum
orðum í ákveðnum ryþma og gefur
lesandanum möguleika á myndrænni
upplifun af tilfinningu, viðburði eða
sýn á tilveruna. Þess vegna er ljóðið svo
sterkt form og skiptir miklu máli fyrir
ritlistina yfir höfuð; í Flækjurofum tek
ég enn dýpra í árinni til að finna leiðina
í ljóðrænu formi frásagnarlistarinnar.“
Sjálfur kveðst Stefán Sturla alltaf hafa
verið mikið fyrir spennusögur. „Þær eru
auðvitað misjafnar en sérstaklega finnst
mér þær góðar ef höfundar nálgast form-
ið út frá skáldsögunni, en hafa spennuna
eða glæpinn sem eitthvert „twist“ að
leika sér að. Frekar en það sé öfugt, að
spennan sé aðalatriðið en persónurnar
litlar aukaverur sem leita lausna á því
sem fjallað er um.“
gun@frettabladid.is
Flækjurof lokar þríleik
Stefán Sturla Sigurjónsson var að senda frá sér nýja spennubók, Flækjurof. Það er
síðasta bókin í þríleik sem hófst með Fuglaskoðaranum 2017. Fléttubönd kom á milli.
Rithöfundurinn Stefán Sturla hugsandi við tölvuna í glímu sinni við söguefnið.
Listasafnið er í þessu tignarlega húsi. Auk þess eru kirkja og íveruhús á staðnum.
1907 Friðrik VIII. Danakonungur kemur í heimsókn til Ís-
lands og ferðast víða um land.
1977 Eftirlýstur þýskur bankaræningi er handtekinn í
Reykjavík með 277 þúsund mörk.
1981 Karl Bretaprins og lafði Díana Spencer ganga í það
heilaga og athöfnin er sýnd í beinni útsendingu um allan
heim.
2011 Stjórnlagaráð afhendir Alþingi formlega frumvarp
sitt að nýrri stjórnarskrá.
2 9 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT