Fréttablaðið - 18.08.2020, Page 4
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
BJÓÐUM UPP Á
35” - 40” BREYTINGARPAKKA
FRÁ ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI ÍSBAND
EIGUM FLESTAR GERÐIR TIL
AFHENDINGAR STRAX
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.547.906 KR. ÁN VSK.
9.359.403 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ „Þetta mun
vissulega valda óþægindum fyrir
íbúana og fyrirtækin,“ segir Rósa
Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafn-
arfjarðar.
Lokað er fyrir rennsli á heitu
vatni í Hafnarfirði, hluta Garða-
bæjar, efri byggðum Kópavogs og
í Norðlingaholti til klukkan 9 á
morgun, miðvikudag. Alls nær lok-
unin til um 50 þúsund manns.
Tilgangurinn er að fjölga heimil-
um sem fá heitt vatn frá virkjunum
á Hellisheiði og Nesjavöllum. Þá
þurfi minna að sækja af heitu vatni
í borholur Veitna í Reykjavík og
Mosfellsbæ. Til að þetta megi tak-
ast þarf nýja tengingu við Suðuræð,
eina af meginflutningsæðum hita-
veitunnar á höfuðborgarsvæðinu.
„Eðli málsins samkvæmt eru
engar sundlaugar opnar. Óneitan-
lega mun þetta hafa áhrif og valda
óþægindum hjá mörgum fyrirtækj-
um, má þar nefna hárgreiðslustofur,
veitingastaði og fleiri sem reiða sig
á heitt vatn í starfsemi sinni,“ segir
Rósa.
Hún segir lokunina fyrst og
fremst vera óþægilega. „Fólk sýnir
þessu skilning og lokunin var til-
kynnt með góðum fyrirvara. Fram-
kvæmdin snýr fyrst og fremst að
því að tryggja heita vatnið til fram-
tíðar til stækkandi hóps notenda.
Varðandi hreinlæti og sóttvarnir,
þá höfum við fengið upplýsingar
frá sóttvarnayfirvöldum um það
að áherslan sé á að nota sápu og
það skipti minna máli hvort vatnið
sé heitt eða kalt.“
Hafnarfjarðarbær kom ekki að
því að ákveða dagsetningu lokun-
arinnar en Rósa segir þennan tíma
betri valkost en marga aðra. „Þetta
gerist áður en skólarnir byrja og það
er hlýtt úti. Svo getur maður gantast
með það að væntanlega verði flestir
Hafnfirðingar búnir að fara í bað
áður en til þessa kemur þar sem lok-
unin hefur verið auglýst ágætlega.“
Lokunin nær til nokkurra sund-
lauga og eru það Ásvallalaug í Hafn-
arfirði, Sundhöll Hafnarfjarðar,
Salalaug í Kópavogi og Álftaneslaug
í Garðabæ. Suðurbæjarlaug hefur
verið lokuð síðustu vikur vegna
framkvæmda.
Mælt er með því að eiga ekki við
hitaveitukrana heima fyrir og hafa
glugga lokaða.
Meðal fyrirtækja sem verða fyrir
áhrifum lokunarinnar er Orku-
húsið, sem flutti nýverið starfsemi
sína frá Suðurlandsbraut til Vatns-
enda í Kópavogi.
„Við getum ekki framkvæmt
aðgerðir báða dagana, þetta mun
því bætast við aðrar tafir,“ segir
Dagný Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Orkuhússins. „Við skiljum
ástæðurnar mjög vel, það eru mörg
önnur fyrirtæki að lenda í þessu
sama, samkvæmt upplýsingum frá
Orkuveitunni er þetta ein stærsta
lokun frá upphafi þannig að það
er ekkert sem við getum maldað í
móinn.“
Í Orkuhúsinu eru fjórar skurð-
stofur, að meðaltali eru gerðar
átta aðgerðir í hverri stofu á degi
hverjum. „Þetta eru nokkrir tugir
aðgerða sem þarf að endurskipu-
leggja og setja á aðra daga. Við erum
að skoða að gera aðgerðir á laugar-
degi til að bæta þetta upp,“ segir
Dagný. arib@frettabladid.is
Fyrst og fremst óþægilegt en
talin nauðsynleg framkvæmd
Lokað er fyrir heitt vatn á stórum hluta höfuðborgarsvæðisins til morguns. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar
segir lokunina fyrst og fremst óþægilega. Lokunin nær til fjölda fyrirtækja og fresta þarf aðgerðum í
Orkuhúsinu. Talinn heppilegur tími því að skólar hafa ekki hafið starfsemi og sumarblíða er í kortunum.
ÚTLENDINGAMÁL Útlendingastofn-
un hefur ákveðið að 124 umsóknir
um alþjóðlega vernd, sem önnur
Evrópuríki báru ábyrgð á á grund-
velli Dyf linnar-reglugerðarinnar
eða höfðu þegar verið afgreiddar
með veitingu verndar í öðrum
löndum, skuli fá efnislega meðferð.
Ástæðan er útbreiðsla kóróna-
veirufaraldursins sem hefur haft
mikil áhrif á málefni umsækjenda
um alþjóðlega vernd hérlendis.
Miklar ferðatakmarkanir hafa verið
við lýði í Evrópu síðan faraldurinn
hófst og þá hafa mörg ríki lokað
tímabundið fyrir endursendingar
umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Í ljósi ástandsins ákvað Útlend-
ingastofnun fyrr á árinu að aðlaga
tímabundið mat sitt á því hvaða mál
væru tekin til efnismeðferðar.
Í 61 máli hafði ákvörðun verið
tekin um brottvísun en þær voru
afturkallaðar. Spurð segir Þórhildur
Ósk Hagalín, upplýsingafulltrúi
Útlendingastofnunar, að þeir sem
um ræðir séu enn á landinu en mis-
jafnt sé hvort ákvörðunin hafi verið
komin í ferli hjá kærunefnd útlend-
ingamála. „Við hefðum ekki getað
afturkallað mál sem þegar hafði
verið úrskurðað í,“ segir Þórhildur.
Af þessum 124 umsóknum hafa
35 verið afgreiddar í efnislega. Átta
fengu dvalarleyfi af mannúðar-
ástæðum, 24 var veitt vernd eða
viðbótarvernd en þremur synjað.
Faraldurinn hefur haft mikil áhrif
á fjölda umsókna um alþjóðlega
vernd síðustu mánuði. Fyrstu tvo
mánuði ársins bárust 88 umsóknir
hvorn mánuð. Í mars voru þær 58
talsins en síðan hrundi fjöldinn
þegar fyrsta bylgja faraldursins
gekk yfir. Umsóknirnar voru aðeins
5 í apríl, 4 í maí en síðan 19 í júní.
Í júlí, þegar f lugsamgöngur jukust,
voru umsóknirnar 116 talsins. – bþ
Afturkalla ákvarðanir um brottvísun og heimila efnislega meðferð
Fjaran í Þorlákshöfn býður upp á
fjölbreytta útivistarmöguleika.
ÞORLÁKSHÖFN Á fundi hafna- og
framk væmdanefndar Ölfuss í
vikunni var farið í gerð fjárhags-
áætlunar og undirbúning verk-
legra framkvæmda á komandi ári.
Í Þorlákshöfn á að koma sundlaug-
inni í betra horf. Skoða á kostnað
við uppsetningu á nýrri vatns-
rennibraut og kaup á fjölbreyttari
leiktækjum við sundlaugina.
Skoða á aðgengi að fjörunni,
meðal annars frá bílaplani golf-
vallarins, og þá leggur nefndin til
að finna þurfi æfingasvæði fyrir
fjallahjólreiðar. Áhugahópur um
fjallahjólreiðar sendi nefndinni
bréf og tók hún vel í það erindi. Vill
hún skoða hvort hægt sé að koma
upp þrautum nærri skóla fyrir
yngri áhugamenn um fjallahjóla-
mennsku. – bb
Skoða aðstöðu
hjólreiðamanna
Þá leggur nefndin til að
finna þurfi æfingasvæði
fyrir fjallahjólreiðar.
Faraldurinn hefur haft
mikil áhrif á fjölda um-
sókna um alþjóðlega vernd
síðustu mánuði.
Þetta gerist áður en
skólarnir byrja og
það er hlýtt úti. Svo getur
maður gantast með það að
væntanlega verði flestir
Hafnfirðingar búnir að fara
í bað áður en til þessa
kemur.
Rósa Guðbjarts-
dóttir, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar
1 8 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð