Fréttablaðið - 18.08.2020, Qupperneq 16
Fegurðin við Arno
er að hér leggjum
við bæði metnað og alúð
í það sem við gerum.
Nadia Nikita Ósk Rjabchuk
Möguleikum einingahúsa í dag eru engin takmörk sett. Hvort sem ætlunin
er að byggja sumarbústað eða
framtíðarheimili, þá er þekk-
ingin og getan til staðar hjá Arno.
Einingarnar frá Arno eru fram-
leiddar í Eistlandi og Litháen og
standast allar ströngustu kröfur
um veðurþol og henta íslenskum
aðstæðum fullkomlega. Húsin eru
einnig sérlega umhverfisvæn, en
einingarnar eru úr timbri, sem er
í sjálfu sér vistvænt efni. Auk þess
er framleiðslan vistvæn því fyrir
hvert tré sem fellt er til húsafram-
leiðslu eru fjölmörg gróðursett í
staðinn. „Þar sem einingahúsin frá
Arno eru alfarið sett saman inni
í verksmiðjunni, minnka mögu-
leikar á því að sveppagró, raki og
mygla geti búið um sig í húsunum,
eins og getur gerst við byggingar
sem settar eru upp undir beru
lofti,“ segir Nadja Nikita Ósk
Rjabchuk, hjá Arno.
Heildarlausnir
fyrir hvern og einn
„Við hjá Arno getum boðið upp
á heildarlausnir í húsbyggingu
allt frá sökkli og uppsetningu til
klæðningar að utan sem innan.
Þegar við höfum lokið okkur af er
húsið tilbúið fyrir íbúa að flytja
inn. Að sjálfsögðu er það val hvers
og eins viðskiptavinar hvaða
þjónustu hann vill kaupa af okkur
og hvað hann vill fá annars staðar
frá eða gera sjálfur. En við bjóðum
upp á þennan möguleika. Að auki
gerum við allt sem við getum
til þess að verða við öllum þeim
séróskum sem viðskiptavinurinn
hefur. Fegurðin við Arno er að hér
leggjum við bæði metnað og alúð í
það sem við gerum.“
Urban Flex, fyrir framtíðina
Arno hefur unnið að virkilega
spennandi verkefni með Urban
Beat Landscape & Architecture
og AKA Studio í Stokkhólmi að
nýjum og glæsilegum Urban Flex
húsum sem henta einstaklega vel
fyrir nútímamanninn. „Húsin eru
teiknuð þannig að garður og íbúð
tengjast saman á óaðfinnanlegan
hátt. Þá er gert ráð fyrir aðkomu
norðanmegin og útivistarsvæði
sunnanmegin sem tengist húsinu
með stórum gluggum og gler-
hurðum. Rýmin eru opin og björt
og öll hönnun tekur mið af skand-
inavískum einfaldleika. Húsin
eru einnig hönnuð með íslenskt
veðurfar í huga og er þakið, sem
virðist f latt, útfært snilldarlega
með góðum halla sem veitir ofan-
komu í rennur er leiða út fyrir
útveggina. Gert er ráð fyrir arni
sem og bekkjum, heitum potti,
grillsvæði og kampavínsvegg á úti-
svæði í öllum útfærslum. Þá gera
góð skyggni yfir útisvæðin þér
kleyft að njóta útiverunnar þrátt
fyrir vot íslensk sumarkvöld.“
Fullkomið sumarafdrep
Urban Flex húsin fást í ýmsum
stærðum, og þegar kemur að því að
fjölskyldan stækkar þá getur húsið
stækkað með. Þannig er Urban
Flex – Basic í grunninn lítið 115
fermetra einbýlishús með tveimur
svefnherbergjum. Þá fylgir húsinu
bílastæði með yfirbyggðu skyggni.
Arno einingahús með lausnir
fyrir nútímafjölskylduna
Arctic North, eða Arno, er rótgróið byggingarfyrirtæki sem býr yfir rúmlega þrjátíu ára reynslu í
húsbyggingum hér á landi. Fyrirtækið starfar hvort tveggja með innlendum og erlendum aðilum
til þess að bjóða Íslendingum upp á fyrsta flokks fjölbreytt einingahús á afar hagkvæmu verði.
Nadja Nikita
Ósk Rjabchuk,
verkefnastjóri
hjá Arno, er hér
með Elíasi Fells,
framkvæmda-
stjóra og
eiganda fyrir-
tækisins.
Hér má sjá þrjár grunnútfærslur
Urban Flex: Basic, Family og Pano-
rama. Séróskir eru velkomnar.
Hér er verið að setja aluzink-þakklæðningu á glæsilegt 80 fermetra hús.
Sumarhúsin
frá Arno eru
afrakstur
samstarfs
fyrirtækisins
við íslenska
arkitektafyrir-
tækið Arkibygg
Arkitektúr.
„Í sinni grunnmynd er um að ræða
frábært einbýlishús fyrir par,
litla fjölskyldu eða jafnvel stór-
skemmtilegt sumarafdrep fyrir
fjörugar fjölskyldur.“
Fyrir stærri fjölskyldur
Urban Flex – Familyer er 195 fer-
metra einbýlishús með fjórum
svefnherbergjum, bílskúr og
aukaherbergi með sérinngangi. Þá
eru alls þrjú baðherbergi og hentar
útgáfan því sérlega vel fyrir stærri
fjölskyldur.
Glæsilegt hús
með útsýnisturni
Með öllum stækkunum og við-
bótum svo sem bílskúr, auka
herbergjum og útsýnisturni,
verður Urban Flex húsið um 245
fermetrar og kallast þá Urban Flex
Panorama. „Í þessari útgáfu er 65
fermetra þakherbergi með 50 fer-
metra yfirbyggðum svölum sem
gefur aukin tækifæri til þess að
njóta útiverunnar.“
Glæsileg sumarhús
„Við erum líka stolt af samstarfi
okkar við íslenska arkitektafyrir-
tækið Arkibygg Arkitektúr, um
hönnun nýrra sumarhúsa sem
verða sett upp á næsta ári. Um er
að ræða glæsileg sumarhús sem
falla vel inn í landslagið og veita
frábær tækifæri til útiveru og
skemmtilegra samverustunda
fjölskyldunnar. Húsin geta verið
í ýmsum útfærslum. Við erum
ekki föst í einni teikningu heldur
leggjum við metnað í að bjóða við-
skiptavinum upp á sveigjanleika
þegar kemur að því að sníða húsin
að óskum kaupandans.“
Kynntu þér málið frekar á arno.is
Facebook: Arno - Einingahús
Sími 861-1430
Netfang: elli@arno.is
4 KYNNINGARBLAÐ 1 8 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U REININGAHÚS