Fréttablaðið - 18.08.2020, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 18.08.2020, Blaðsíða 16
Fegurðin við Arno er að hér leggjum við bæði metnað og alúð í það sem við gerum. Nadia Nikita Ósk Rjabchuk Möguleikum einingahúsa í dag eru engin takmörk sett. Hvort sem ætlunin er að byggja sumarbústað eða framtíðarheimili, þá er þekk- ingin og getan til staðar hjá Arno. Einingarnar frá Arno eru fram- leiddar í Eistlandi og Litháen og standast allar ströngustu kröfur um veðurþol og henta íslenskum aðstæðum fullkomlega. Húsin eru einnig sérlega umhverfisvæn, en einingarnar eru úr timbri, sem er í sjálfu sér vistvænt efni. Auk þess er framleiðslan vistvæn því fyrir hvert tré sem fellt er til húsafram- leiðslu eru fjölmörg gróðursett í staðinn. „Þar sem einingahúsin frá Arno eru alfarið sett saman inni í verksmiðjunni, minnka mögu- leikar á því að sveppagró, raki og mygla geti búið um sig í húsunum, eins og getur gerst við byggingar sem settar eru upp undir beru lofti,“ segir Nadja Nikita Ósk Rjabchuk, hjá Arno. Heildarlausnir fyrir hvern og einn „Við hjá Arno getum boðið upp á heildarlausnir í húsbyggingu allt frá sökkli og uppsetningu til klæðningar að utan sem innan. Þegar við höfum lokið okkur af er húsið tilbúið fyrir íbúa að flytja inn. Að sjálfsögðu er það val hvers og eins viðskiptavinar hvaða þjónustu hann vill kaupa af okkur og hvað hann vill fá annars staðar frá eða gera sjálfur. En við bjóðum upp á þennan möguleika. Að auki gerum við allt sem við getum til þess að verða við öllum þeim séróskum sem viðskiptavinurinn hefur. Fegurðin við Arno er að hér leggjum við bæði metnað og alúð í það sem við gerum.“ Urban Flex, fyrir framtíðina Arno hefur unnið að virkilega spennandi verkefni með Urban Beat Landscape & Architecture og AKA Studio í Stokkhólmi að nýjum og glæsilegum Urban Flex húsum sem henta einstaklega vel fyrir nútímamanninn. „Húsin eru teiknuð þannig að garður og íbúð tengjast saman á óaðfinnanlegan hátt. Þá er gert ráð fyrir aðkomu norðanmegin og útivistarsvæði sunnanmegin sem tengist húsinu með stórum gluggum og gler- hurðum. Rýmin eru opin og björt og öll hönnun tekur mið af skand- inavískum einfaldleika. Húsin eru einnig hönnuð með íslenskt veðurfar í huga og er þakið, sem virðist f latt, útfært snilldarlega með góðum halla sem veitir ofan- komu í rennur er leiða út fyrir útveggina. Gert er ráð fyrir arni sem og bekkjum, heitum potti, grillsvæði og kampavínsvegg á úti- svæði í öllum útfærslum. Þá gera góð skyggni yfir útisvæðin þér kleyft að njóta útiverunnar þrátt fyrir vot íslensk sumarkvöld.“ Fullkomið sumarafdrep Urban Flex húsin fást í ýmsum stærðum, og þegar kemur að því að fjölskyldan stækkar þá getur húsið stækkað með. Þannig er Urban Flex – Basic í grunninn lítið 115 fermetra einbýlishús með tveimur svefnherbergjum. Þá fylgir húsinu bílastæði með yfirbyggðu skyggni. Arno einingahús með lausnir fyrir nútímafjölskylduna Arctic North, eða Arno, er rótgróið byggingarfyrirtæki sem býr yfir rúmlega þrjátíu ára reynslu í húsbyggingum hér á landi. Fyrirtækið starfar hvort tveggja með innlendum og erlendum aðilum til þess að bjóða Íslendingum upp á fyrsta flokks fjölbreytt einingahús á afar hagkvæmu verði. Nadja Nikita Ósk Rjabchuk, verkefnastjóri hjá Arno, er hér með Elíasi Fells, framkvæmda- stjóra og eiganda fyrir- tækisins. Hér má sjá þrjár grunnútfærslur Urban Flex: Basic, Family og Pano- rama. Séróskir eru velkomnar. Hér er verið að setja aluzink-þakklæðningu á glæsilegt 80 fermetra hús. Sumarhúsin frá Arno eru afrakstur samstarfs fyrirtækisins við íslenska arkitektafyrir- tækið Arkibygg Arkitektúr. „Í sinni grunnmynd er um að ræða frábært einbýlishús fyrir par, litla fjölskyldu eða jafnvel stór- skemmtilegt sumarafdrep fyrir fjörugar fjölskyldur.“ Fyrir stærri fjölskyldur Urban Flex – Familyer er 195 fer- metra einbýlishús með fjórum svefnherbergjum, bílskúr og aukaherbergi með sérinngangi. Þá eru alls þrjú baðherbergi og hentar útgáfan því sérlega vel fyrir stærri fjölskyldur. Glæsilegt hús með útsýnisturni Með öllum stækkunum og við- bótum svo sem bílskúr, auka herbergjum og útsýnisturni, verður Urban Flex húsið um 245 fermetrar og kallast þá Urban Flex Panorama. „Í þessari útgáfu er 65 fermetra þakherbergi með 50 fer- metra yfirbyggðum svölum sem gefur aukin tækifæri til þess að njóta útiverunnar.“ Glæsileg sumarhús „Við erum líka stolt af samstarfi okkar við íslenska arkitektafyrir- tækið Arkibygg Arkitektúr, um hönnun nýrra sumarhúsa sem verða sett upp á næsta ári. Um er að ræða glæsileg sumarhús sem falla vel inn í landslagið og veita frábær tækifæri til útiveru og skemmtilegra samverustunda fjölskyldunnar. Húsin geta verið í ýmsum útfærslum. Við erum ekki föst í einni teikningu heldur leggjum við metnað í að bjóða við- skiptavinum upp á sveigjanleika þegar kemur að því að sníða húsin að óskum kaupandans.“ Kynntu þér málið frekar á arno.is Facebook: Arno - Einingahús Sími 861-1430 Netfang: elli@arno.is 4 KYNNINGARBLAÐ 1 8 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U REININGAHÚS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.