Fréttablaðið - 18.08.2020, Síða 26

Fréttablaðið - 18.08.2020, Síða 26
EMERALD.IS GSM 698 0330 EMERALD@EMERALD.IS INNFLUTT HÁGÆÐA EININGAHÚS HÖNNUN OG FRAMLEIÐSLA FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR AFHENT Á BYGGINGARSTAÐ SÉRHÆFÐ UPPSETNING HAGSTÆTT VERÐ YFIR 20 ÁRA REYNSLA EINBÝLISHÚS - PARHÚS - RAÐHÚS EININGAHÚS HÚSIN ERU HÖNNUÐ AF ÍSLENSKUM ARKITEKT. HÚSIN ERU FRAMLEIDD Í LETTLANDI. 3JA MÁNAÐA AFGREIÐSLUFRESTUR. HÆGT ER AÐ KOMA MEÐ EIGIN HUGMYNDIR OG FAGLÆRÐIR ARKITEKTAR ÚTFÆRA ÓSKIR Í SAMRÆMI VIÐ BYGGINGASKILMÁLA. GERUM FRÍTT VERÐMAT OG ÁÆTLANIR. ÁRALÖNG OG FARSÆL REYNSLA Á ÍSLENSKUM BYGGINGMARKAÐI. HAFIÐ SAMBAND STRAX Í DAG. D R A U M A H Ú S I Ð A Ð V E R U L E I K A Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is 6 KYNNINGARBLAÐ 1 8 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U REININGAHÚS Hugmyndin að einingahúsum var upphaflega sú að byggja íbúðarhúsnæði á einfaldan og fljótlegan máta. Þá voru léttar einingar framleiddar til húsbygg- inga sem auðvelt væri að flytja á milli landshluta og til að mæta þörfum fólks sem var mikið á hreyfingu vinnu sinnar vegna. Upp úr 1950 voru einingahús markaðssett sem ódýr húsa- kostur sem fljótlegt væri að setja upp en líka hægt að skilja eftir í langan tíma og fleirum til gagns. Þá var einnig hægt að flytja þau á milli staða með tiltölulega lítilli fyrirhöfn. Oftast voru fyrstu húsin lítil en árið 1956 voru stærri hús kynnt til sögunnar. Á sjöunda og áttunda áratugnum stækkuðu einingahúsin enn meira sem gerði f lutning á þeim erfiðari og í dag eru einingahús oftast nær staðsett á lóðum til frambúðar. Fyrstu árin var það oftar en ekki efnalítið fólk sem settist að í færanlegum og skjóllitlum ein- ingahúsum og fengu þau óorð á sig vegna þess. Vandaðri eininga- hús seinni tíma breyttu þeirri ímynd og nú þykja einingahús jafn traust og glæsileg og hverjar aðrar húsbyggingar sem uppfylla þurfa skilyrði strangra byggingar- reglugerða, og möguleikarnir eru ótæmandi. Heimili með lítilli fyrirhöfn Húsakostur sem byggður var úr einingum kom fyrst á markað um heimsbyggðina um miðja síðustu öld. Húsin voru hugsuð sem heimili í flýti og að hægt væri að flytja þau á milli landshluta. Nútímalegt og sérlega glæsilegt einingahús í Lundúnum, byggt úr þykkum síberíuvið og með burðargrind sem hleypir lofti í gegnum sig. Húsið var byggt í Slóveníu og kom til Englands í tilbúnum einingum með gluggum. Grænt ein- býlishús, byggt úr kubba- einingum, eftir hönnun arkitektsins Ray Kappe í Kaliforníu. Það hlaut viður- kenningu fyrir margvíslegar og vistvænar lausnir við húsagerðina, er hitað með sólarorku og unnið að mestu úr endurunnum efnivið. MYNDIR/GETTY Þessi einingahús í Brandenburg, Bernau, tóna ágætlega við götumynd gamalla og virðulegra bygginga fyrri ára. 173 einingahús úr áli voru reist í Cheltenham árið 1946 en aðeins var búið í þeim í rúma ellefu mánuði.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.