Fréttablaðið - 18.08.2020, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 18.08.2020, Blaðsíða 27
Kubbaeiningar SG-húsa fást í ýmsum gerðum og stærðum, eru smíðaðar inni við góðar aðstæður og hífðar út í heilu lagi. Kubbaeiningar SG-húsa eru fram- leiddar fyrir hagkvæm- ar, vistvænar og ending- argóðar húsbyggingar úr timbri sem standast íslenskar kröfur. Við hönnum, reisum og byggj-um góð, traust og vönduð hús,“ segir Baldur Pálsson, framkvæmdastjóri SG-húsa. SG hús hafa verið starfrækt á Selfossi frá árinu 1966 og frá upp- hafi hefur meginstef SG-húsa verið bygging timburhúsa af ýmsum gerðum og stærðum. „Það er mikill áhugi á eininga- húsum úr timbri,“ segir Baldur. „Mér finnst hafa orðið vakning í samfélaginu gagnvart timbur- húsum og eftirspurnin er alltaf að aukast. Einingahús eru enda mun ódýrari kostur en steinsteypt hús, að minnsta kosti þessi einföldu,“ segir Baldur. Ný gerð kubbaeiningahúsa SG-hús bjóða upp á margvíslega hönnun, stærð og lögun húsa. Þau eru fyllilega samkeppnishæf við innflutt einingahús úr timbri og að mörgu leyti hentugri þar sem þau eru unnin frá grunni hér á landi. „Það er komin löng og góð reynsla af húsunum okkar,“ segir Baldur. „Í dag má segja að SG-hús framleiði og setji upp þrjár gerðir af timburhúsum sem nýtast sem íbúðarhúsnæði, sumarbústaðir, skrifstofubyggingar, ferða- þjónustuhús, leikskólar og fleira, en auk þess framleiðum við þaksperrur, gólf bita, utanhúss- klæðningar og veggeiningar fyrir aðra verktaka og húsbyggjendur,“ upplýsir Baldur. Hjá SG-húsum starfa 50 starfs- menn og margir lykilstarfsmenn hjá fyrirtækinu eiga langan starfs- feril að baki við timburhúsagerð. „Elsta og þekktasta framleiðsla SG-húsa eru SG-einingahúsin svo- kölluðu sem byggð eru upp með 1,2 metra breiðum veggeiningum. Þau eru landsmönnum vel kunn og hafa í gegnum tíðina verið reist um allt land,“ segir Baldur. Önnur gerð SG-húsa eru hefð- bundin timburhús sem byggð eru upp með stærri veggeiningum og oft eftir teikningum frá verkkaupa. „Þriðja og nýjasta gerð SG- húsa eru kubbaeiningar sem eru þróaðar af tæknideild okkar og við höfum hafið framleiðslu á. Kubba- einingar, eða módulbyggingar eins og þær eru oft kallaðar, hafa fram að þessu verið fluttar inn til landsins frá Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum,“ upplýsir Baldur. Á næstunni afhenda SG-hús Bjargi íbúðafélagi tólf íbúða fjöl- býlishús í Þorlákshöfn sem er byggt með þessari aðferð. „Þar er haft að markmiði að framleiða hagkvæmar, vistvænar og endingargóðar hágæða timbur- húsabyggingar sem standast íslenskar kröfur.“ Vistvæn framleiðsla Möguleikar í SG-einingahúsum eru nánast óþrjótandi. „Við reynum ávallt að aðlaga húsin óskum viðskiptavinarins þar sem tekið er tillit til stað- setningar, sólaráttar, útsýnis og fleiri þátta. Við höldum úti eigin hönnunardeild sem vinnur allar arkitekta- og verkfræðiteikningar og þær eru innifaldar í verðinu okkar, sem og raflagnateikningar,“ upplýsir Baldur. Einfalt einingahús getur orðið fokhelt á aðeins fimm dögum. „Við forsmíðum húsin á verkstæði en það fer eftir vali á klæðningu hvort við setjum hana upp á verkstæðinu eða þar sem húsið er reist. Í dag eru einbýlishús af meðalstærð algengust og hafa verið pöntuð víðs vegar um landið. Einnig höfum við byggt raðhús og fjögurra íbúða fjölbýlishús sem hafa komið vel út. Það eru ódýrar litlar íbúðir úr timbri sem er nýjung á Íslandi og höfum við smíðað nokkur slík á Selfossi.“ Hjá SG-húsum er lögð rík áhersla á vistvæna framleiðslu. „Á undanförnum árum hefur orðið vitundarvakning á Íslandi varðandi mikilvægi umhverfis- verndar en húsbyggingar úr timbri hafa til dæmis mun minna kolefnisspor en steinsteypt hús. Timbur er vistvænt og við leggjum okkar af mörkum til umhverfis- verndar með því að kaupa ein- göngu timbur sem unnið er úr sjálf bærum skógum,“ segir Baldur. Timbrið hefur einnig marg- víslega aðra eiginleika að sögn Baldurs. „Timbur er auðvinnanlegt, sterkt miðað við þyngd, það hefur gott einangrunargildi og er fallegt byggingarefni sem hentar vel þar sem burðarvirki og aðrir bygg- ingarhlutar eru sýnilegir.“ Í gegnum árin hafa SG-hús unnið markvisst að því að auka við gæði framleiðslunnar og er vinna við CE-merkingu húsanna langt komin. „Til að öðlast CE-merkingu þarf félagið að gangast undir mikinn sjálfsaga þar sem allt framleiðslu- ferlið er nákvæmlega skilgreint. Unnið er eftir virku gæðaeftirliti þar sem gerðar eru reglulegar prófanir á hinum ýmsu húshlutum auk þess sem allar byggingarvörur sem við kaupum inn og notum til framleiðslunnar þurfa að uppfylla ákveðna gæðastaðla,“ útskýrir Baldur. SG-hús hafa frá fyrstu tíð lagt áherslu á að þjónusta allt landið. „Við reisum og klárum bygg- ingar um land allt og erum í dag að reisa hús í Vestmannaeyjum, á Höfn í Hornafirði, á Sauðárkróki, í Þorlákshöfn og auðvitað á Selfossi og höfuðborgarsvæðinu,“ segir Baldur. Á heimasíðunni sghus.is má skoða teikningar af húsum og fá ýmsar upplýsingar um starfsemi SG-húsa. Þá má hafa samband í gegnum tölvupóst sghus@ sghus. is eða í síma 578 3344. Nýjungar í smíði einingahúsa Í rúma hálfa öld hafa SG-hús boðið upp á sterk og falleg einingahús sem henta íslenskum aðstæðum vel. Ný gerð kubbaeininga gefur nýja og spennandi möguleika í byggingum. Baldur Pálsson, framkvæmdastjóri SG-húsa. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Grunnurinn steyptur og fyrsta hæð kubbaeiningahúsanna komin upp. Þaksperrur settar á nýtt fjölbýlishús Bjargs í Þorlákshöfn. Fjölbýlishús Bjargs í Þorlákshöfn var reist á aðeins átján klukkustundum. Glæsilegt fjölbýlishús úr timbureiningum frá SG-húsum. Arkitekt að húsinu er Svava Jónsdóttir. SG-hús bjóða upp á fjölbreytta möguleika þegar kemur að húsbyggingum. KYNNINGARBLAÐ 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 8 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 EININGAHÚS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.