Neytendablaðið - jún. 2018, Blaðsíða 8
8 Neytendablaðið // Júní 2018
Sífellt meiri ásókn í ræktunarland setur
takmörk á það hversu mikið er hægt að
framleiða af bómull og þá eru jafnvel
teikn á lofti um að framleiðsla á ýms-
um gerviefnum sé að ná þolmörkum.
Mengunin sem hlýst af framleiðslu á
fatnaði er mikil. Talið er að fimmtungur
vatnsmengunar í heiminum sé tilkomin
vegna textílframleiðslu og um fjórðungur
allra kemískra efna sem framleidd eru í
heiminum eru notuð í fataframleiðslu.
Viskósframleiðsla í fjarlægum
löndum
Framleiðsla á viskós (viscose rayone) er
að mörgu leyti umhverfisvæn þar sem
hráefnið er að mestu unnið úr trjákvoðu
(sellulósa) en hins vegar þarf 5,5 kg af alls
kyns kemískum efnum til að framleiða
eitt kíló af viskós. Eitt af þeim efnum sem
þarf til framleiðslunnar er koldisúlfíð, sem
er mjög varasamt efni. Viskósframleiðsla
getur því verið óumhverfisvæn og skaðleg
þeim sem vinna við hana nema farið sé
eftir ströngum ferlum. Það þarf því vart
að koma á óvart að viskósframleiðslan
hefur að mestu færst til landa þar sem
vinnulöggjöf og umhverfislöggjöf er slak-
ari en gengur og gerist á Vesturlöndum.
Bresku umhverfisverndarsamtökin
Changing Markets skoðuðu ástandið í
kringum tíu stærstu viskósverksmiðjur
heims. Verksmiðjurnar eru í Kína,
Indlandi og Indónesíu þar sem 83% af
viskósframleiðslu heimsins fer fram.
Víða mátti sjá merki þess að skaðlegum
efnum væri sleppt út í vötn og ár og í
einhverjum tilfellum voru íbúar hættir að
drekka vatn úr nærliggjandi brunnum.
Ástæða þess að sjónum var sérstaklega
beint að viskósframleiðslu er sú að mjög
auðvelt er að gera framleiðsluna um-
hverfisvænni og að á þessum markaði eru
tiltölulega fáir aðilar og því ætti að vera
auðveldara en ella að ná fram úrbótum.
Sænskt og umhverfisvænt
Hér í eina tíð var viskós framleitt í
Svíþjóð og nú er verið að skoða hvort
það geti verið vænlegur kostur að hefja
þar viskósframleiðslu að nýju. Helsti
kosturinn er sá að framleiðslan yrði
umhverfisvænni sem myndi þó jafnframt
þýða hærra verð. Hins vegar myndi
sparast á móti í flutningskostnaði, sænsk
skógrækt nyti góðs af og eins gætu gæðin
orðið meiri, þ.e. efnið slitsterkara og
rakadrægara. Í ljósi þess að eftirspurn eftir
sjálfbærum textíl fer vaxandi ætti sænsk
umhverfisvæn viskósframleiðsla að eiga
framtíðina fyrir sér.
Ofgnótt af notuðum fötum
Á sama tíma og eftirspurnin eftir nýjum
fötum eykst dregur úr eftirspurn eftir
notuðum fatnaði. Í frétt á vef BBC er
fjallað um hið óhóflega magn af notuð-
um (og oft lítið sem ekkert notuðum)
fötum sem gefin eru til góðgerðarmála. Í
Bretlandi fara um 10-20% í endursölu í
verslunum Oxfam og annarra góðgerðar-
samtaka. Restin er seld til dreifingaraðila
sem flokka fötin og selja áfram til landa
eins og Pakistan og Malasíu þar sem
þau eru seld eða endurunnin. Nú lítur
hins vegar út fyrir að mörg lönd hafi
fengið sig fullsödd af fatasendingum frá
Vesturlöndum. Rúanda, Kenía, Úganda,
Suður-Súdan og Búrúndi tilkynntu
nýlega að þau myndu stöðva innflutning
á notuðum fötum frá og með 2019 en
Bandaríkin eru stærsti útflytjandi heims á
notuðum fötum.
Viskós á sér dökka hlið
-en framtíðin gæti verið björt
Jarðarbúar kaupa
sífellt meira af nýjum
fötum og er talið að
eftirspurnin eigi eftir að
þrefaldast til ársins 2050.
Það er ekki síst vegna
stækkandi millistéttar í
fjölmennustu löndum
heims, Kína og Indlandi.
Heimild: Råd och Rön 1/2018
bbc.com Used clothes:
Why is worldwide demand declining?