Morgunblaðið - 11.01.2020, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
✝ HrafnhildurÞórdís Pálma-
dóttir fæddist í
Reykjavík 29.
desember 1949.
Hún lést á líknar-
deild Landspítalans
í Kópavogi 20.
desember 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Pálmi Guð-
mundsson, verzl-
unarmaður og
heildsali, f. 7. desember 1921, d.
18. október 1999, og Kristín
Guðmundsdóttir, f. 8. maí 1921,
d. 13. október 1972.
Systkini Hrafnhildar eru
sama dag 1971. 3) Einar Krist-
inn Einarsson múrari, f. 26.
september 1973. Unnusta Ein-
ars Kristins var Halldóra Anna
Hafliðadóttir. Þau skildu. Dæt-
ur þeirra eru Hrafnhildur
Brynja, f. 28. júní 1994 og Ás-
dís Birta Einarsdóttir, f. 11.
maí 1998. 4) Kristín Björg Ein-
arsdóttir hagfræðingur, f. 12.
apríl 1976. Eiginmaður Krist-
ínar er Haukur Þórðarson
arkitekt, f. 29. febrúar 1972.
Synir þeirra eru Alexander
Einar, f. 24. desember 1999,
Sólon Þórður, f. 3. september
2008 og Oliver Krummi, f. 6.
júlí 2011. 5) Elín Dröfn Einars-
dóttir, geislafræðingur og
læknanemi, f. 12. júlí 1986.
Unnusti Elínar Drafnar er
Jonas Himmelev Carlsen for-
ritari, f. 30.12. 1980.
Útför Hrafnhildar fór fram í
kyrrþey 30. desember 2019.
Guðmundur Yngvi
Pálmason raf-
virkjameistari, f.
28. júlí 1952 og
Hólmfríður Aðal-
björg Pálmadóttir
kennari, f. 11. apríl
1958.
Hrafnhildur gift-
ist Einari Einars-
syni rafvirkjameist-
ara 17. maí 1969.
Börn Hrafn-
hildar og Einars eru: 1) Drengur
Einarsson, nefndur Pálmi, f. 9.
ágúst 1969, d. 10. ágúst sama ár.
2) Stúlka Einarsdóttir, nefnd
Klara, f. 7. ágúst 1971, látin
Elsku mamma mín. Nú er
baráttunni lokið og þó svo að þú
sért farin máttu aldrei halda að
þú hafir tapað henni. Þú ert sú
mesta hetja og nagli sem ég hef
á ævi minni hitt. Þú barðist og
vannst, þó svo að lífið endaði.
Ég er svo stolt af því að hafa
fengið að styðja þig og vera til
staðar þínar síðustu vikur og
það er mér heiður að hafa verið
þér við hlið er þú kvaddir. Sökn-
uðurinn er sárari en orð fá lýst
og nú verð ég að læra að lifa líf-
inu án þín. Það verður erfitt en
ég skal reyna mitt besta, því þú
hefðir aldrei tekið annað í mál.
Sorgin er víst það sem maður
borgar fyrir kærleikann. Þú
varst minn aðalstuðningsmaður
í öllu, hvort sem það var sam-
kvæmisdans eða þrotlaus vinna
að því markmiði að komast inn í
draumanámið, og ég þakka þér
fyrir það. Ég fann gömul texta-
skilaboð frá þér en þar varstu
að hvetja mig áfram í átt að
draumanáminu mínu. Í þeim
stóð: „En ef það gengur ekki, þá
er bara að reyna aftur. Ekki
missa móðinn, þú kemst inn,
trúðu mér, þú getur allt sem þú
ætlar þér. Þú ert gullið mitt.“
Vá mamma, hvað ég er
ánægð að eiga þessi skilaboð
eftir allan þennan tíma og þú
hafðir rétt fyrir þér; aldrei
missti ég móðinn og ég komst
inn!
Takk fyrir að hafa alltaf trú á
mér. Þú reyndir heldur aldrei
að stoppa mann í því sem maður
vildi. Ég flutti til Danmerkur 22
ára og ég vissi að þú vildir ekki
að ég færi. Þú hvattir mig samt
áfram.
Þú sagðir að það væri verk
foreldra að hvetja börnin sín
áfram og ekki stoppa þau í að
lifa lífinu. Það er skilyrðislaus
ást mamma mín.
Við vorum samt ekki alltaf
sammála, því þú vildir hafa mig
fína og sæta í kjólum þegar ég
vildi vera í buxum og peysu.
Manstu eftir fjólubláa kjólnum
sem stakk mig? Ég fékk bara
nærbol undir því í kjólnum átti
ég að vera. Líka þegar ég var í
dansinum, þá vorum við ósam-
mála um ýmislegt, en það varst
þú sem hrópaðir manna hæst
þegar við unnum gullið. Ég
heyrði í þér alla leið út á dans-
gólf þegar nöfnin okkar voru
lesin síðust. Ég náði aldrei að
segja þér það, en þetta er falleg
minning að eiga nú þegar þú ert
ekki lengur hér.
Við áttum erfiða tíma saman
og góða og ég þakka fyrir þá
alla, því að þeir voru með þér.
Núna fá hin systkini mín að
njóta þín á himnum, það var
kominn tími til að þau fengju að
kynnast þér. Mamma, ég elska
þig og aldrei gleyma því. Eins
og ég sagði við þig: ég er hér og
ég fer ekki neitt, ég vil hvergi
annars staðar vera. Þar til við
sjáumst á ný.
Þín dóttir,
Elín Dröfn.
Elsku mamma.
Fimmtudagurinn 12. desem-
ber 2019 mun mér seint úr
minni hverfa.
Við áttum dásamlega stund á
líknardeildinni þar sem kór
Kársnesskóla söng og það var
svo fallegt að upplifa þessa jóla-
stund með þér. Ég átti flug
heim sama dag, kom upp í flug-
stöð nokkrum mínútum fyrir
brottför og hljóp hraðar en ég
hef nokkurn tíma gert til þess
að ná fluginu.
Ég vissi að þú vildir að ég
kæmist heim til strákanna okk-
ar til að eyða með þeim aðvent-
unni.
Ég vissi að þú vildir að ég
næði heim til að aðstoða pabba
þegar hann kæmi.
Ég vissi að þú vildir að ég
virti ákvörðun ykkar pabba.
Og á meðan beiðst þú í sterk-
um örmum Ellu og þeirra sem
hana studdu.
Takk Ella, fyrir að hafa pass-
að upp á mömmu.
Ég passaði upp á pabba. Því
það var það sem þú vildir,
mamma.
Elsku mamma.
Mínar æskuminningar um
þig eru öll lögin sem þú kenndir
mér að syngja sem barni. Þau
ótal skipti sem þú kenndir mér
að valhoppa á mismunandi vegu
vítt og breitt um götur Reykja-
víkur. Þau ótal skipti þegar við
fórum saman í dótabúðir og
skoðuðum allar fínu dúkkurnar
og létum okkur dreyma. Þegar
vondi kallinn í Miðtúninu reyndi
að stela mér og þú hélst mér í
faðmi þínum og passaðir mig í
lögreglubílnum. Þegar þú sann-
færðir mig um að það væri
nauðsynlegt að klippa hárið
reglulega til að fá fallegt og
heilbrigt hár eftir að ég missti
mikinn hluta hársins eftir atvik-
ið með vonda kallinum. Þau ótal
skipti þegar við gengum Lauga-
veginn saman og ég fékk að
hoppa niður af öllum þrepum
sem á vegi mínum urðu. Þegar
þú útskýrðir fyrir mér ösku-
poka sem hengdur var á húfuna
mína í bæjarferð á öskudag.
Þegar þú hvattir mig áfram í
öllu því sem ég tók mér fyrir
hendur.
Elsku mamma.
Á seinni árum eru minningar
mínar um þig svo margar. Og
þær eiga það flestar sameig-
inlegt að vera litaðar af minn-
ingu um stuðning og traust. Það
var sama hvað maður leitaði til
þín með; þú hafðir svör og ráð
við öllu. Svör og ráð sem fengu
mann til að hugsa sjálfstætt og
finna lausnina.
Þú varst einstök manneskja,
manneskja fárra en hnitmiðaðra
orða.
Orða sem alltaf leiddu mig
áfram að markmiðinu, hvöttu
mig og studdu.
Margar af mínu bestu minn-
ingum um þig eru þau ótal
ferðalög við fórum í saman og
ég nú nýt þeirra forréttinda að
rifja upp. Og ekki síst hversu
góð amma þú varst ömmu-
strákunum þínum. Það sem þú
gast lesið með þeim og sungið
með þeim. Leiðbeint þeim og
kennt á uppbyggilegan hátt.
Það var ekki af engu að þeir
grétu sig í svefn og söknuðu
ömmu og afa í þau ótal skipti
sem þið ferðuðust heim aftur
eftir samverustund með okkur í
Kaupmannahöfn og þegar við
snerum heim eftir heimsókn til
Íslands.
Elsku mamma.
Hetjulegri og óvæginni bar-
áttu þinni er lokið og fyrir mér
stendur þú uppi sem sigurveg-
ari.
Elsku mamma.
Nú er sá tími sem við rædd-
um stundum um að einhvern
tíma myndi koma orðinn að
veruleika.
Tíminn þegar þú hittir börnin
þín tvö sem þú misstir sem ung
kona.
Systkin mín sem ég aldrei
hitti, sem þú kenndir mér að
elska frá því ég man eftir mér.
Við ræddum um hve þessir
endurfundir yrðu litaðir blendn-
um tilfinningum, gleði og missi.
Ég hefði gjarnan viljað hafa
þig lengur. En á sama tíma er
ég svo glöð að systkini mín fái
nú að kynnast þér og njóta.
Ég sé þig fyrir mér, umvafin
englum.
Og veistu hvað, þú átt það
skilið, svo njóttu.
Virðing og ást að eilífu.
Þín
Kristín.
Meira: mbl.is/andlat
Yndislega amma mín, þú ert
farin.
Á þessum erfiðu tímum veit
ég að þú ert nú á mun betri stað
þar sem þú lítur niður til okkar
allra og brosir með kærleika.
Fyrir það er ég þakklátur.
Ég elska þig endalaust og
það vita mínir nánustu, alveg
eins og þau vita öll hvað þú
varst einstök og frábær.
Það besta við brotthvarf þitt
er að nú getur þú meira en bara
hugsað til okkar.
Nú getur þú líka horft á okk-
ur frá himnum, fylgst með okk-
ur og verið með okkur í okkar
lífi.
Það er það besta við að vita
að þú nú hvílir á himninum.
Ég gleymi aldrei ferðunum
okkar saman.
Sama hvort um var að ræða
skrepp út í búð eða ferð til út-
landa, þinn félagsskapur var
alltaf skemmtun fyrir mér. Ég
gleymi heldur aldrei stoltinu
sem ég fann fyrir þegar ég gat
kynnt mig sem barnabarnið þitt
í skólanum þar sem þú varst að
kenna.
Þú varst sá kennari sem allir
virtu mest og elskuðu. Þess
naut ég að verða vitni að sem
lítill drengur. Í þeim ótal ferð-
um sem þú tókst mig með í
skólann leið mér alltaf eins og
ég væri mesti töffarinn á svæð-
inu því ég var strákurinn henn-
ar ömmu.
Á ákveðnu tímabili þegar
sjúkdómur þinn hafði tekið yfir
vissi ég innst inni að þú áttir
ekki mikið eftir.
En ég neitaði að viðurkenna
það. Ég vildi ekki viðurkenna
það.
Í mínu síðasta símtali við þig
þegar ég var nýfarinn til Asíu
sagðirðu: „Alexander minn, við
sjáumst bráðum.“ Og ég svaraði
keikur: „Já amma, það gerum
við sko.“
Að þessi draumur okkar
beggja yrði að veruleika vissum
við bæði innst inni að væri tæpt.
En við vildum ekki viður-
kenna það því við steingeitur
viljum jú fá okkar fram.
Þú varst tilbúin að fara. Ég
trúi því, því ég sá og upplifði
hvað þú hafðir náð miklu í þínu
lífi.
Á tímum sem þessum eru
mér efst í huga síðastliðin ár og
þeir aðfangadagar sem við átt-
um saman. Þegar ég sá þakk-
lætið í brosinu þínu þegar þú
leist yfir hópinn þinn við jóla-
borðið.
Þá vissi ég og sá, amma, að
þú varst sátt með þitt.
Ég segi takk. Takk fyrir að
gefa mér ömmu eins og Hrafn-
hildi. Takk fyrir að leyfa mér að
upplifa þig, þessa einstöku
konu.
Og að endingu, takk amma,
takk fyrir að vera þú.
Ég kveð þig með reisn.
Þinn alltaf,
Alexander Einar.
Þegar einhver fellur frá
fyllist hjartað tómi
en margur síðan mikið á
í minninganna hljómi.
Á meðan hjörtun mild og góð
minning örmum vefur
þá fær að hljóma lífsins ljóð
og lag sem tilgang hefur.
Ef minning geymir ást og yl
hún yfir sorgum gnæfir
því alltaf verða tónar til
sem tíminn ekki svæfir.
(Kristján Hreinsson)
Þegar ég kveð þig, kæra
Habba systir, er þakklæti efst í
huga mér. Ég var heppin að
eiga þig að sem systur, þú
stóðst með mér í blíðu og stríðu.
Fljótlega fórstu, níu árum eldri
en ég, að gæta mín og sinna
mér með ýmsum hætti. Þú vildir
t.d. að ég færi að læra að dansa
rúmlega þriggja ára gömul.
Foreldrum okkar þótti ég þá
fullung til þess, en þú hafðir þitt
fram. Á hverjum laugardegi
fórstu því með mig í strætó
hvernig sem viðraði niður á
Hlemm og gengum þaðan upp á
Snorrabraut í Dansskóla Her-
manns Ragnars. Í byrjun var ég
smeyk við að stíga út á stóra
dansgólfið, en þú hjálpaðir mér
þá að taka mín fyrstu dansspor.
Við deildum herbergi saman
þar til þú fluttir að heiman. Þér
fannst einhvern tímann að
dúkkudótið mitt væri óþarflega
fyrirferðarmikið. Þú sannfærðir
mig þá um það að sumar dúkk-
urnar væru puntudúkkur og
ættu því að vera áfram í umbúð-
unum – best geymdar á efstu
hillunum. Nokkrar þeirra eru
enn óhreyfðar í kössunum!
Þegar fermingardagur minn
nálgaðist var móðir okkar orðin
mikið veik. Þú tókst þá að þér
að fara í bæinn með mér að
kaupa fermingarföt. Ég vildi að
kjóllinn minn væri blár, en þú
vildir hafa hann rauðan. Eftir
samninga varð niðurstaðan sú
að kjóllinn og kápan yrðu blá,
en skórnir bláir og rauðir. Þú
varst útlærð hárgreiðslukona.
Fermingargreiðsluna sást þú
um okkur báðum til ánægju.
Mikið var lagt á þig á
skömmum tíma um þetta leyti.
Á fjórum árum og innan við 23
ára aldur misstir þú tvö börn,
tengdaföður og síðan móður
okkar, meira en margur reynir
á lengri ævi. Síðar eignuðust þið
Einsi mágur þrjú yndisleg börn
auk tengdabarna og barna-
barna, sem öll hafa staðið sig
með sóma.
Eftir fæðingu yngri dóttur
minnar veiktist ég illilega. Þú
komst heim til mín og áttaðir
þig á ástandi mínu áður en ég
eða nokkur annar gerði það.
Með þrautseigju tókst þér að
koma mér á sjúkrahús til að fá
læknishjálp. Á meðan ég lá þar
og eftir að ég kom heim sinntir
þú börnum mínum þremur. Það
er þér og þinni hjálp að þakka
að ég er lifandi nú og er til frá-
sagnar um viðbrögð þín.
Við vorum ekki alltaf sam-
mála, en þá vorum við sammála
um að vera ekki sammála. Sum-
ir skildu ekki alveg samband
okkar en á milli okkar var
sterkt og ósýnilegt band. Við
þurftum oft engin orð til að tala
saman. Í þögn og með augn-
sambandi gátum við skilið hvor
aðra. Því kom það iðulega fyrir
að eiginmenn okkar horfðu á
okkur spurnaraugum og veltu
fyrir sér um hvað samtal okkar
Höbbu snerist. Þeir vissu ekki
neitt, en við allt og hlógum þá
dátt.
Við kvöddumst alltaf með því
að hvísla kveðju hvor að ann-
arri. Nú kveð ég, Adda syss, þig
þannig í síðasta sinn með hlýj-
um hug og þökk í hjarta: „Bless
Habba syss – systur alltaf og að
eilífu.“
Hólmfríður Aðalbjörg
Pálmadóttir.
Hrafnhildur Þórdís
Pálmadóttir
Okkur langar að
minnast kærs vinar,
mágs og svila,
Kristins Ólafs
Ólafssonar, sem lést 22. desem-
ber sl. eftir harða baráttu við ill-
vígan sjúkdóm.
Kiddi eins og hann var kall-
aður var góður vinur, félagi,
kokkur, veiðimaður og golfari.
Hann var mikill matmaður og
snilldarkokkur og töfraði hann
fram dýrindis mat eins og væri
hann fagmaður. Kom það glöggt
Kristinn Ólafur
Ólafsson
✝ Kristinn ÓlafurÓlafsson fædd-
ist 30. júlí 1959.
Hann lést 22. des-
ember 2019.
Útför Kristins
fór fram 8. janúar
2020.
fram í einni veiði-
ferðinni þegar fé-
lagar hans drógu
fram ostasamlok-
urnar sínar en hann
margra hæða
veislusamloku, þá
sagði einn félaginn:
„Ég borða nú bara
til að lifa,“ þá heyrð-
ist í Kidda: „Ég lifi
til að borða.“
Við kveðjum
Kidda með söknuði og munum
geyma vel allar góðu minning-
arnar úr sumarbústaðarferðum,
utanlandsferðum, útilegum og
mörgu öðru skemmtilegu sem við
gerðum saman.
Góða ferð, kæri vinur.
Við sendum aðstandendum
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Halla og Björgvin.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
KATRÍN HELGA KARLSDÓTTIR,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
4. janúar verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
í Reykjavík þriðjudaginn 14. janúar
klukkan 13.
Andrés Valdimarsson
Karl Ágúst Andrésson
Valdimar Andrésson Ket Buaket
Ásta Sólveig Andrésdóttir Ingimar Ingimarsson
Þórhalla Andrésdóttir Hlynur Veigarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
EDDA KOLBRÚN ÞORGEIRSDÓTTIR,
lést 5. janúar á Sólvangi.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 13. janúar klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á SOS Barnaþorp.
Karl Friðrik Ingvarsson
Sigrún Karlsdóttir Örn Haukur Magnússon
Sjöfn Karlsdóttir Haukur Hauksson
Hildur Karlsdóttir Pálmar Óli Magnússon
Elín Edda Karlsdóttir William Thomas Boomer
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartkær móðir okkar,
KRISTRÚN SKÚLADÓTTIR,
Sléttuvegi 15, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 8. janúar.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju
föstudaginn 17. janúar klukkan 13.
Starfsfólki á deild B2 er þökkuð alúð og umhyggja undanfarnar
vikur.
Skúli Eggert Þórðarson
Gunnar Þorsteinsson
Klara Lísa Hervaldsdóttir
og fjölskyldur