Morgunblaðið - 11.01.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
Andrés Magnússon ræðir í nýj-asta fjölmiðlapistli sínum í Við-
skiptablaðinu hættuna á að fjöl-
miðlar og einstakir fjölmiðlamenn
fari út af sporinu í
umfjöllun sinni.
Nefnir hann sérstak-
lega dæmi um tvo
starfsmenn Rúv. sem
hafi gerst sekir um
þetta.
Annar er EiríkurGuðmundsson
sem setti færslu á fé-
lagsmiðil um að „ef
einhver sjálfstæðis-
maður yrði ráðinn
útvarpsstjóri þá yrði
bylting. „Það er ekki
bara hótun, heldur
loforð.“ — Sem sagt
ofbeldi heitið nema einhver pólitískt
þóknanlegur Eiríki verði ráðinn
yfirmaður hins öldungis ópólitíska
ríkisútvarps!“
Hinn starfsmaður Rúv. semAndrés nefnir að hafi verið
óþarflega lítið orðvar er Helgi Selj-
an sem hafi í framhaldi af Samherja-
málinu farið offari á félagsmiðlum,
sent Samherjamönnum tóninn og
„stillt sér upp andspænis forsvars-
mönnum Samherja, svona nánast
eins og hann eigi aðild að málinu.
Það gengur ekki“.
Í þessu sambandi minnir Andrés ásérstaka hlutleysisskyldu Rúv.
sem á lögum samkvæmt að gæta sín.
Hann bendir auk þess á að þessi
framganga sé í ósamræmi við innan-
hússreglur stofnunarinnar.
Loks bendir fjölmiðlarýnirinn áað þessi framganga geti ekki
hafa farið fram hjá yfirstjórn Rúv.
en samt viðgangist hún. En það kem-
ur svo sem ekkert á óvart og er í
ágætu samræmi við umgengni Rúv.
við lög og eðlilega háttsemi ríkis-
miðils.
Eiríkur
Guðmundsson
Farið offari á Rúv.
STAKSTEINAR
Helgi Seljan
Álagningar- og breytingarseðlar
fasteignagjalda í Reykjavík 2020
verða aðeins birtir á vefsíðunum is-
land.is og Rafrænni Reykjavík.
Þetta kemur fram í frétt á heima-
síðu borgarinnar.
Því verða álagningaseðlar ekki
sendir í pósti eins og tíðkast hefur í
áraraðir. Er þetta í samræmi við
lög sem tóku gildi í fyrra.
Á vef Reykjavíkurborgar undir
Mínar síður munu fasteignaeigend-
ur geta skoðað álagningarseðil fast-
eignagjalda eftir 27. janúar 2020 og
alla breytingarseðla þar á eftir. Þar
geta þeir einnig skráð sig í boð-
greiðslu fasteignagjalda og gefið
upp reikningsnúmer ef til endur-
greiðslu kemur, óskað eftir að fá
senda greiðsluseðla fyrir fasteigna-
gjöldum þar sem þeir verða, líkt og
áður, ekki sendir til greiðenda, 18-
77 ára. Einnig er hægt að senda
þar inn erindi vegna fasteigna-
gjalda.
Fasteignagjöld ársins 2020, yfir
25.000 kr., greiðast með níu jöfnum
greiðslum. Sú fyrsta er 1. febrúar
og sú síðasta verður 3. október.
Gjalddagi fasteignagjalda undir
25.000 kr. er 1. febrúar. Fasteigna-
gjöld í Reykjavík verða innheimt í
netbönkum, segir í fréttinni.
sisi@mbl.is
Álagningarseðlar verða rafrænir
Seðlarnir verða ekki sendir í pósti
héðan í frá Ný lög hafa tekið gildi
Morgunblaðið/Hari
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Á sjötta tug bænda hefur sýnt áhuga
á að taka þátt í samningum Bún-
aðarsambands Eyjafjarðar um kaup
á vararafstöðvum. Eru þetta mest
bændur í Eyjafirði og annars staðar
á Norðurlandi en einnig einstaka
bændur annars staðar.
Hugmyndin að samkaupum á
vararafstöðvum kom upp hjá Bún-
aðarsambandinu eftir veðurhaminn í
desember sem hafði í för með sér
langvarandi rafmagnsleysi á fjölda
bæja með tilheyrandi óþægindum
fyrir fólkið og tilfinnanlegu afurða-
tjóni á kúabúum.
Sigurgeir B. Hreinsson, fram-
kvæmdastjóri Búnaðarsambands-
ins, segir að afhending rafmagns sé
misörugg eftir svæðum. Víða hafi
verið stöðugt rafmagn í áratugi, að-
eins komið straumleysi í stuttan
tíma og því hafi menn talið sig nokk-
uð örugga.
Nú segi margir að þeir ætli ekki
að lenda í þessum hremmingum aft-
ur og kaupa vararafstöðvar, jafnvel
þótt þeir þurfi ekki að nota þær í 20
ár.
Sigurgeir segir að rafmagnsleysi
geti orðið af öðrum ástæðum en
óveðri. Segist sjálfur líta þannig á að
alveg eins geti komið til straum-
leysis vegna afleiðinga eldgosa.
Misjafnar þarfir
Tilgangur Búnaðarsambandsins
með vinnunni er að reyna að ná nið-
ur verði á þessum tækjum með
magnkaupum.
Bændur sem hafa skráð sig á lista
Búnaðarsambandsins hafa mis-
jafnar þarfir. Algengt er að menn
vilji kaupa 40-50 kílóvatta rafal sem
hægt er að knýja með dráttarvél.
Aðrir vilja hafa sjálfstæða vararaf-
stöð. Þá eru menn með misjafnar
óskir um stærðir.
Sigurgeir hefur fengið tæknimenn
til liðs við sig og er verið að undirbúa
verðkönnun hjá seljendum vararaf-
stöðva.
Undirbúa kaup á
fjölda vararafstöðva
Bændur búnir að fá nóg af rafmagnsleysi
Morgunblaðið/Eggert
Myrkur Sumir bændur gátu ekki
mjólkað kýrnar sínar í marga daga.
sp
ör
eh
f.
Suður-Afríka er talið eitt fegursta land í heimi. Landslagið er fjölbreytt og litríkt og
veðurfarið einstaklega gott. Við skoðum m.a. Jóhannesarborg og förum í tveggja daga
safarí í Kruger þjóðgarðinum innan um ljón, nashyrninga og fíla. Við heimsækjum einnig
Höfðaborg og förum út á Góðrarvonarhöfða. Einstök ferð til að kynnast töfrum Afríku!
Allir velkomnir á kynningarfund mánudaginn 13. janúar kl. 20:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
Fararstjóri: Gunnhildur Gunnarsdóttir
Kynntu þér úrval ferða á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
25. september - 9. október
Suður-Afríka
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/