Morgunblaðið - 11.01.2020, Blaðsíða 13
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
• Hver eru áhrif loftslagsbreytinga og Kína
á ál- og raforkumarkaði?
• Hvað er að gerast á raforkumörkuðum
á Norðurlöndunum?
• Er raforkuverð á Íslandi samkeppnishæft?
Velkomin á opinn morgunverðarfund
þar sem sérfræðingar Landsvirkjunar
og greiningafyrirtækisins CRU fjalla
um stöðuna á raforku- og álmörkuðum
á Íslandi og erlendis.
Hilton Reykjavík
Nordica
Miðvikudagur
15. janúar
kl. 8.30 – 10.00
Verið öll
velkomin
Skráning og bein
útsending á
Landsvirkjun.is.
Vindar blása um
orkumarkaði heimsins
Stefanía G. Halldórsdóttir,
framkvæmdastjóri markaðs-
og viðskiptaþróunarsviðs
Raforkuverð og
samkeppnishæfni Íslands
Valur Ægisson,
forstöðumaður viðskiptagreiningar
Straumar á norrænum
raforkumörkuðum
Sveinbjörn Finnsson,
sérfræðingur í viðskiptagreiningu
The rise of China and sustainable
aluminium: where does Iceland fit in?
Martin Jackson,
álsérfræðingur hjá CRU
Fundarstjóri
Tinna Traustadóttir,
forstöðumaður viðskiptastýringar
Íslensk orka
á alþjóðlegum
mörkuðum
Orkumarkaðir í mótun:
Í tengslum við sýningu Ólafar Nordal,
Úngl, sem nú stendur yfir á Kjarvals-
stöðum, verður listasmiðja fyrir fjöl-
skyldur í dag laugardag í Hugmynda-
smiðjunni á Kjarvalsstöðum. Lista-
smiðjan hefst kl. 13 og heitir Furður
og ævintýr. Vert er að taka fram að
aðgöngumiði á safnið gildir en að
sjálfsögðu er ókeypis fyrir börn fram
til 18 ára aldurs. Gert er ráð fyrir að
börn komi í fylgd fullorðinna. Frítt er
fyrir handhafa Árskorts Listasafns
Reykjavíkur og Menningarkorts
Reykjavíkur.
Leikum að list er yfirskrift fjöl-
skyldudagskrár Listasafns Reykjavík-
ur en þar eru börn sérstaklega boðin
velkomin í safnið ásamt foreldrum
sínum til þess að skoða og upplifa
myndlist í gegnum leiki og skemmti-
legar umræður. Boðið er upp á fjöl-
skylduleiðsagnir sem sniðnar eru að
yngri áhorfendum um sýningar í öll-
um safnhúsunum. Þá eru listasmiðjur
fyrir börn og fjölskyldur þeirra þar
sem gaman er að skapa sín eigin
listaverk eftir heimsókn í sýning-
arsalina.
Furður og
ævintýr á Kjar-
valsstöðum
Morgunblaðið/Eggert
Kjarvalsstaðir Ólöf Nordal listakona.
Leikum að list: Listasmiðja
Fuglar himinsins hafa sannarlega
blásið mörgum skáldum andagift í
brjóst, þau hafa ort um þessa vini
okkar sem flögra um loftin blá og
gleðja okkur með söng sínum.
Fegurð fugla og hreyfingar þeirra
eru þess eðlis að þá má sjá í lista-
verkum frá örófi alda allt til dags-
ins í dag. Svo ekki sé nú talað um
allar stórkostlegu fuglaljósmynd-
irnar þar sem margir leggja mikið á
sig til að fanga ákveðin augnablik í
lífi fiðruðu félaganna. Og enn verða
fuglar okkur mannfólkinu hvatning
til góðra verka, því í dag laugardag
11. janúar frá kl. 13-15 verður opin
fuglasmiðja fyrir alla áhugasama á
Náttúrufræðistofu Kópavogs. Fugl-
ar munu þar veita innblástur fyrir
teikningar og útsaum en textíl-
listakonan Lilý Erla Adamsdóttir
ætlar að sjá um að leiða smiðjuna.
Í tilkynningu kemur fram að ein-
föld útsaumsspor eins og blómstur-
spor og þræðispor verða æfð í ullar-
efni og hver og einn fær tækifæri til
að skapa sinn eigin fegurðarfugl til
að taka með sér heim. Nú er heldur
betur lag fyrir skapandi fólk að
stökkva til og fara með börnin eða
vini í þessa fuglasmiðju og njóta
þess að gera eitthvað skemmtilegt
saman. Á tímum snjallsíma þar sem
margir virðast fjarverandi með
andlitið grafið ofan í lófatölvuna,
sem símar eru, er þetta kjörið tæki-
færi til samveru. Fuglasmiðjan er
liður í fjölskyldustundum á laugar-
dögum á vegum Menningarhúsanna
í Kópavogi. Vert er að taka fram að
þátttaka er ókeypis og allir eru
hjartanlega velkomnir.
Fuglar veita innblástur
Textíllistakona Lilý Erla Adamsdóttir sér um að leiða smiðjuna.
Fuglasmiðja fyrir alla fjölskylduna verður í dag í Kópavogi
Vinkonurnar
Tinna, Lára og
Signý í Andagift
Súkkulaðisetri í
Reykjavík ætla að
fagna tveggja ára
tilveru setursins í
dag laugardag.
Þær boða til risa
súkkulaði
möntrupartís í Andagift frá klukkan
20.30 til 23.30 til að fagna öllum dýr-
mætu stundunum á liðnu ári. Fögnuð-
urinn hefst á því að skálað verður í
ilmandi súkkulaðibolla, sungnar
möntrur við lifandi trommuslátt og
hitað upp fyrir danspartí þar sem DJ
YAMAHO mun sjá um að halda partí-
inu gangandi. Súkkulaðibar verður á
staðnum með góðgæti til að gæða
sér á. Þær segjast hlakka til að fagna,
syngja og hrista bossa með þeim sem
mæta. Að taka þátt kostar 5.500
krónur og hægt er að tryggja sér
miða á andagift.is eða senda línu á
andagift@andagift.is
Afmælisfögn-
uður Andagift-
ar verður í dag
Möntrudanspartí