Morgunblaðið - 11.01.2020, Side 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
PFAFF • Grensásvegi 13 • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is
UpPlIfÐU
HlJÓMiNn
Með SeNnHeIsEr MoMeNtUm IiI
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarkonan K.óla, eða Katrín
Helga Ólafsdóttir eins og hún heitir
réttu nafni, sendi í fyrra frá sér plöt-
una Allt verður alltílæ og uppskar
fyrir hana Kraumsverðlaunin, verð-
laun sem veitt eru árlega sex plötum
sem þykja hafa skarað fram úr á
árinu hvað varðar gæði, metnað og
frumleika.
Katrín lýkur í vor námi í tón-
smíðum við Listaháskóla Íslands
sem hún segir hafa gengið að mestu
vel. „Háskólanám er erfitt, upp og
niður,“ segir hún og þegar hún er
spurð að því hvort námið hafi nýst
henni vel við plötusmíðarnar segir
hún að jú, það hafi nýst vel, að geta
skrifað fyrir hljóðfæri, tekið upp og
fleira.
Kraumsverðlaunin eru fyrstu
verðlaunin sem K.óla hlýtur fyrir
plötu en hún á einnig að baki plötuna
Glasmanía. „Ég gerði hana þegar ég
var í skapandi sumarstörfum í Kópa-
vogi 2017,“ segir Katrín um þá plötu.
„Ég var að vinna með glös og hljóð
frá glösum, fannst á tímabili ógeðs-
lega gaman að nördast með að spila á
glös.“
Katrín segist hafa keypt tugi glasa
í Góða hirðinum og stúderað þau vel,
hljóminn í þeim og skráð niður,
merkt hvert glas. „Algjört nörda-
dót,“ segir Katrín og hlær.
Leiddist píanónámið
Katrín fæddist árið 1996 og líkt og
margir hóf hún tónlistarnám með því
að leika á flautu. Að því loknu tók við
klassískt píanónám. „Mér fannst oft
leiðinlegt að æfa mig á píanó,“ rifjar
hún upp, „þannig að ég var við það að
hætta, að gefast upp, þegar mamma
ákvað á senda mig frekar í rytmískt
nám á píanó. Þar var ég með góða
kennara sem voru meira að sam-
þykkja það að ég væri að semja og
svona.“
– Þú hefur þá verið að semja mikið
á píanó?
„Já, ætli það sé ekki grunnhljóð-
færið mitt, þó að ég sé enginn
virtúós. Það er svona „go to“ hljóð-
færið mitt,“ svarar Katrín sem var í
nokkur ár í hljómsveitinni Milk-
house, lék í henni á hljómborð, söng
og samdi lög.
Pönkast bara áfram
Katrín segist hafa keypt sér raf-
magnsbassa áður en hún hófst handa
við Allt verður alltílæ. „Mér fannst
svo frelsandi að hafa hljóðfæri sem
ég kunni ekkert á, að reyna að láta
það virka og það var svo gaman að
þurfa ekki að vera mjög góð í neinu,
mér fannst gaman að prófa og sjá
hvað ég gæti. Ég kann ekkert á
nótur og bassa en pönkast bara
áfram,“ segir Katrín sposk.
Hún er spurð að því hvort hún
kunni orðið eitthvað á bassann og
segist hún geta glamrað á hann. „Ég
kann ekki að spila eftir nótum á hann
en maður reddar sér bara einhvern
veginn.“
Hlaupari og stjórnandi í senn
– Mér heyrist þú vera tilrauna-
gjörn. Er tilraunastarfsemi einkenn-
andi fyrir tónlistina þína?
„Ja, ég veit það ekki, kannski
meira í tónsmíðunum sem eru ekki á
plötunum mínum. Eitt af uppáhalds-
verkunum mínum, af þeim sem ég
hef samið, er fyrir strengjakvintett,
flautu, klarinett og hlaupabretti. Það
verður flutt á Myrkum músíkdögum
núna í byrjun ársins,“ svarar Katrín
en Myrkir músíkdagar hefjast í
Hörpu 25. janúar.
Bíddu nú við, hlaupabretti? „Sko,
ég verð ekki á hlaupabrettinu en vin-
ur minn verður að hlaupa,“ svarar
Katrín sposk og útskýrir frekar:
„Þetta er bæði hljóðið í hlaupabrett-
inu af því að allir hljóðfæraleikar-
arnir eru að fylgja taktinum í því,
hversu hratt hann hleypur, og svo er
þetta ólínulegt verk því hann getur
hrópað átta setningar og þau sem
eru að spila verða að fara eftir þeim.“
Blaðamaður getur ekki annað en
hlegið að þessari hugmynd og eins og
hann grunaði lýkur verkinu þegar
hlauparinn er orðinn uppgefinn.
„Mér finnst mjög gaman að blanda
saman þessum tónsmíðum sem ég er
að læra og einhverjum poppkúltúr,“
segir Katrín en vinur hennar, Stefán
Ingvar Vigfússon, mun sjá um
hlaupin.
Allt í plasti
Katrín vekur athygli á því að hún
sé að hefja söfnun á Karolinafund-
hópfjármögnunasíðunni fyrir næstu
plötu sem mun bera titilinn Plast-
prinsessan. Myndband við lag af
þeirri plötu, „Plastprinsessan
vaknar“, var frumsýnt í Norræna
húsinu fyrir skömmu.
„Maður fæðist inn í þennan heim
þar sem allt er pakkað inn í plast, það
eru ákveðnar reglur og maður veit
ekki hversu mikið maður getur gert
til að breyta þessu,“ segir Katrín
þegar hún er spurð að því hver þessi
plastprinsessa sé. „Síðan er maður
að horfa á fréttir og það er allt að
fara til fjandans bókstaflega í um-
hverfismálum og maður er svo hjálp-
arlaus, er bara þessi plastprinsessa
sem er sjálfkrafa partur af vanda-
málinu og getur takmarkað gert, en
ég trúi að með aukinni meðvitund í
samfélaginu sé hægt að bæta fullt.“
Katrín segir að í myndbandinu
megi sjá ákveðnar ýkjur. Í því sé ver-
ið að pakka banönum og appelsínum
í plast til dæmis, til að sýna fram á
fáránleika hinnar hversdagslegu of-
notkunar á plasti. „Þetta er einhvers
konar leið til að díla við kvíða, að
sætta sig við að maður er plast-
prinsessa. Að fara lengra yfir línuna
til að sýna það. Raunveruleikinn er
bara svolítið skrítinn.“
Setur upp grímu
– Allar myndir af þér sem K.óla
sýna þig með pappagleraugu með
áteiknuðum augum og pappavarir.
Ertu að setja upp grímu?
„Þetta er eiginlega gríma þannig
að já, ætli það ekki. Ég hef oft pælt í
þessu að setja nafnið sitt á eitthvað,
það er bæði spennandi og ógn-
vekjandi.“
– Þú getur leyft þér meira þegar
þú gengur undir listamannsnafni?
„Já, ætli það ekki og þetta er líka
nafnið mitt, skammstöfunin mín.
Mér finnst bara þægilegt að geta að-
skilið allt sem er K.óla, það er eitt-
hvað sem mér finnst spennandi og
skemmtilegt að gera, merki dótið
sem ég er stolt af með því en Katrín
Ólafsdóttir er meira manneskjan ég.
Ég sem manneskja, vinkona, dóttir,
ekki ég sem listakona.“
Katrín er spurð út í textagerðina
við lögin á plötunni og segir hún lög-
in koma á undan textunum.
„Mér finnst gaman að semja á ís-
lensku, það er búið að vera áhuga-
vert. Íslenska er móðurmál mitt, ég
hef samið á ensku líka en fannst
raunverulegra það sem ég samdi á
íslensku af því það er búið að gengis-
fella svo margt á ensku. „Love“ þýðir
ekki neitt, „I love you baby“, þetta er
bara einhver klisjulína sem maður
leitar í þegar maður er að semja
texta,“ segir Katrín.
Leikur og kæruleysi
Með rithættinum „alltílæ“, í stað
„allt í lagi“, segist Katrín hafa viljað
hafa titilinn tiltölulega kærulausan.
„Ég er oft mjög stressuð og hef verið
að díla við stress og kvíða varðandi
útgáfu á verkum mínum. Mér fannst
bara þægilegt að geta sleppt takinu
eins og þetta væri ekkert mál og það
er bæði leikur í þessu og kæruleysi.“
Hvað yrkisefnin varðar á plötunni
segir Katrín að á heildina litið snúist
textarnir um að sleppa takinu á ein-
hverju og halda áfram. Í síðasta lag-
inu, „Bros’í sólina“, megi svo finna
tengingu yfir í næstu plötu, Plast-
prinsessuna, þar sem strengja-
hljóðfæri og píanóleikur verður
meira áberandi, minna um popp og
söng. „En „Bros’í sólina“ er óður til
vina minna um að ég dýrki þá,“ segir
Katrín.
Afkastamikið samlag
Listasamlagið post-dreifing gefur
plötuna út á netinu en það hefur látið
mikið að sér kveða hin seinustu miss-
eri. Komst poppdoktorinn Arnar
Eggert Thoroddsen svo að orði í
pistli sínum í Morgunblaðinu í ágúst í
fyrra að fara þyrfti þrjátíu ár aftur í
tímann til að nema aðra eins virkni
og nú væri að finna hjá post-
dreifingu. „Hver listamaður þarf að
gera sitt og þegar allt er tilbúið fær
hann hjálp við kynningu, að dreifa
plakötum og þess háttar en það þarf
líka að hjálpa til að fá hjálp, þetta er
fallegt samlífi þar sem öll græða,“
útskýrir Katrín.
Plötur K.óla sem og annað á veg-
um post-dreifingar má finna á slóð-
inni post-dreifing.bandcamp.com.
Morgunblaðið/Eggert
Raunveruleikinn svolítið skrítinn
Tónlistarkonan K.óla hefur hlotið lof og prís fyrir breiðskífu sína Allt verður alltílæ Segir laga-
textana snúast um að sleppa taki og halda áfram Hlaupabretti í verki á Myrkum músíkdögum
Platan Allt verður alltílæ.
Grímuklædd K.óla með
varir og (gler)augu úr pappír.