Morgunblaðið - 15.01.2020, Side 15

Morgunblaðið - 15.01.2020, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020 Öryggið Áður en lagt er af stað í vetrarakstur er vissara að sópa eða skafa vel af bílrúðunum, eins og þessi vökuli ökumaður gerði í miðborg Reykjavíkur í vikunni. Kristinn Magnússon „Það er ótrúlegt að okkur skuli ekki hafa tekist að nýta betur fordæmið við gerð Hvalfjarðarganga til uppbyggingar sam- göngumannvirkja víða um land. Þar verða talsmenn einkafram- taksins að axla ábyrgð. Við eigum að þora að tala fyrir því að einka- framtakið komi að uppbyggingu af þessum toga á næstu árum. Við þurfum að tala um einkaframkvæmdir og einkarekstur af sannfæringu og af sjálfstrausti. Lausnin er ekki fólgin í því að ríkið sé alltumlykjandi á öllum sviðum mannlegs lífs. Þarna hefur því mið- ur orðið afturför frá því á árunum fyrir hrun og nauðsynlegt að sækja fram.“ Þannig kemst Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, að orði í áhugaverðu viðtali við tímaritið Þjóðmál, sem kom út fyrir nokkrum dögum. Hann bendir á að þrátt fyr- ir að staða þjóðarbúsins sé almennt góð hafi fjárfestingar verið undir langtímameðaltali, sem leiði til inn- viðaskuldar. Þess vegna sé nauð- synlegt að fara í öfluga uppbygg- ingu innviða á næstu árum. Í huga Halldórs Benjamíns er það óvið- unandi að dreifikerfi rafmagns sé vanmátt- ugt til að tryggja landsmönnum „þau grunngæði sem að- gangur að rafmagni er og fyrirtækin lendi í framleiðslustoppi vegna of hægfara upp- byggingar dreifikerf- isins undanfarin ár“. Sama eigi við um veg- ina, sem séu jafnt grunnur að öflugri ferðaþjónustu og for- senda góðrar og líf- vænlegrar byggðar um land allt. Forsenda lífskjara Ádrepa Halldórs Benjamíns er réttmæt. Fjárfesting í innviðum er forsenda þess að hægt sé að standa undir kröfum um góð lífsskilyrði hér á landi – lífskjör sem standast samanburð við það besta sem þekk- ist í heiminum. Í einfaldleika sínum má halda því fram að tími fyrir arð- bæra innviðafjárfestingu sé alltaf réttur en þegar slaki myndast í efnahagslífinu er mikilvægara en ella að bretta upp ermar. Fjárfesting í innviðum samfélags- ins, jafnt hagrænum sem félags- legum, er sameiginlegt verkefni okkar allra. Þessa vegna eru rök til þess að hið opinbera taki höndum saman við einkaaðila um fjár- mögnun innviða, ekki síst hag- rænna innviða, og þar geta lífeyris- sjóðirnir leikið lykil hlutverk. Hagrænir innviðir eru m.a. sam- göngumannvirki, orkuvinnsla og -dreifing og fjarskipti. Dæmi um fé- lagslega innviði eru skólar, sjúkra- hús, hjúkrunarheimili, fangelsi, menningar- og íþróttahús. Í grein sem Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðn- aðarins, skrifar í Þjóðmál kemur fram að uppsöfnuð viðhaldsþörf hins opinbera hafi verið metin 382 milljarðar króna í skýrslu samtak- anna og Félags ráðgjafarverkfræð- inga árið 2017. Sigurður segir einn- ig: „Enginn þáttur innviða var talinn geta fullkomlega sinnt sínu hlut- verki og heilt yfir var ástands- einkunn innviða landsins 3 af 5, sem þýðir að staða innviðanna er að meðaltali viðunandi en ekki góð. Einkunnin gefur til kynna að búast megi við umtalsverðu viðhaldi til þess að halda uppi starfsemi þess- ara þátta innviða og að nauðsynlegt sé að fjárfesta í þeim svo þeir geti almennilega sinnt hlutverki sínu.“ Pólitísku rökin augljós Ég hygg að fáir efist um að skyn- samleg uppbygging innviða hafi já- kvæð efnahagsleg áhrif. Hún styrk- ir samkeppnisstöðu landsins, treystir búsetu um allt land og eyk- ur sameiginleg lífsgæði lands- manna. Hagrænu rökin eru sem sagt fyrir hendi. Pólitísku rökin eru einnig augljós, ekki síst fyrir rík- isstjórnarflokkanna. Engin ríkisstjórn tapar á því að leiða umfangsmikla fjárfestingu í innviðum – jafnt hagrænum sem félagslegum. Ríkisstjórnin hefur tækifæri til að taka höndum saman við einkaaðila – ekki síst lífeyris- sjóði sem þurfa á fjárfestingar- tækifærum að halda – við verk- efnatengda fjármögnun hagrænna og félagslegra innviða. Slík sam- vinna er allra hagur og það væri pólitískur afleikur að nýta ekki tækifærin sem nú gefast. Heildstæð umgjörð um samstarf ríkisins og einkaaðila í uppbyggingu innviða er hins vegar ekki til. Um- gjörðina þarf að móta og sníða, en um leið þarf að vinna ítarlega fjár- festingaráætlun til næstu fimm, tíu og fimmtán ára. Áætlunin á ekki aðeins að innihalda fjárfestingar ríkissjóðs heldur ekki einnig allra ríkisfyrirtækja – ekki síst orkufyr- irtækja og Isavia. Samstarf einkaaðila og hins opin- bera í uppbyggingu innviða er ekki eina verkefnið sem stjórnvöld og þingmenn þurfa að sinna. Helsta hagsmunamál almennings er ekki aðeins að ráðstöfun opinbers fjár sé skilvirk heldur ekki síður að nýting eigna ríkisins sé arðbær og að þær nýtist við að sinna grunnskyldum hins opinbera – heilbrigðisþjónustu, almannatryggingum, samgöngum, menntakerfi og löggæslu og al- mannaöryggi. Ríkið hefur bundið hundruð millj- arða í ýmsum eignum, ekki síst í fjármálakerfinu, sem hafa ekkert með þessar grunnskyldur að gera. Sú fjárbinding er ekki án fórn- arkostnaðar og þann kostnað þarf almenningur að greiða beint eða óbeint. Það er sérkennilegt (svo ekki sé tekið sterkar til orða) að leggjast gegn því að umbreyta fé sem er fast í bönkum, flugstöð, fjölda fast- eigna, ríkisfyrirtækjum í samkeppnisrekstri og jörðum yfir í eignir sem við teljum mikilvægari fyrir samfélagið. Samhliða því að tryggja samstarf hins opinbera og einkaaðila við fjár- mögnun og uppbyggingu innviða er nauðsynlegt að leysa úr fjötrum fjármuni sem eru bundnir í öðru en samfélagslegum innviðum sem eru mikilvægir til að tryggja góð lífs- kjör um allt land. Þannig getum við sameiginlega lyft grettistaki og sótt fram. Eftir Óla Björn Kárason »Ríkisstjórnin hefur tækifæri til að taka höndum saman við einkaaðila um fjármögn- un innviða. Það væri pólitískur afleikur að nýta ekki það tækifæri. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Sameiginlegt grettistak

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.