Morgunblaðið - 15.01.2020, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 15.01.2020, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020 Mamma kenndi okkur systkinunum faðirvorið. Ég var lík- lega of ungur til að skilja bænina nógu vel og hélt í fyrstu að það hefði eitthvað með árstíðirnar að gera; kæmi líklega á undan eða eftir hinu eigin- lega vori. Velti líka fyrir mér hvort einnig væri til faðirsumar. Vitanlega tókst mér að læra faðirvorið eins og öllum öðrum en varla get ég sagt að ég hafi skilið bænina almennilega þótt ég gæti þulið hana reiprennandi. Þetta var nú undirstaðan að krist- inni uppfræðslu í þá daga í viðbót við biblíusögurnar, sem þá voru kenndar í barnaskólunum. Trúmál og kirkjan hafa verið mik- ið í umræðunni að undanförnu. Þeim landsmönnum fjölgar sem sagt hafa sig úr þjóðkirkjunni. Mik- ið er talað um aðskilnað ríkis og kirkju. Prestar eru ekki lengur embættismenn ríkisins og verða að sætta sig við að vera bara þjónar kirkjunnar. Ýmis önnur trúarbrögð hafa skotið upp koll- inum og ýmsum nýjum söfnuðum hefir fjölgað í landinu. Þjóðkirkjan á í vök að verjast. Svipaða sögu má segja frá öðrum lönd- um. Alls kyns hneyksli, aðallega kynferðisleg, hafa hrjáð kirkjur hins vestræna heims og því fólki fækkar stöðugt sem sækir messur og aðrar trúarathafnir. Sér í lagi er það unga kynslóðin sem virðist hafa lítinn áhuga á hinni hefðbundnu kristnu trú. Það virðist vera svo margt ann- að sem situr í fyrirrúmi. Tölvumál og samfélagsmiðlar standa þar upp úr. Það er erfitt að spá í það hvort og hvenær kirkjur heimsins rétti úr kútnum og söfnuðir dafni á ný. Ef- laust þarf að endurskoða kirkju- málin og færa í nútímalegra horf. Ekki er ég fær um að sjá fyrir hvað gæti hjálpað til þess að styrkja kirkjurnar og auka áhuga almenn- ings á starfi þeirra en ég er með pínulitla tillögu sem ef til vill gæti hjálpað örlítið. Ég legg til að faðir- vorið verði endurbætt og gert auð- skiljanlegra, sér í lagi fyrir börnin, sem eiga eftir að vaxa úr grasi og verða safnaðarmeðlimir kirkna í framtíðinni. Þegar séra Halldór heitinn bróðir minn gaf út bókina „Tákn og undur“ 1990 var í henni heill kafli um faðir vor, sem ég las með athygli. Halldór kallaði bænina faðir vor, en ekki faðirvor eins og tíðkast. Þegar um það er hugsað, þá er það fáránlegt að kalla þessa bæn faðirvorið og ekki að undra að litlir krakkar haldi að hún hafi eitthvað með árstíðirnar að gera. Á ensku heitir bænin „Lords prayer“ og Drottinn er þar þéraður eins og vera ber. „Faðir vor bænin er æðsta og bezta bænin, sem kristin trú á ...“ segir Halldór í áðurnefndri bók, þar sem hann rekur allar greinar henn- ar og útskýrir. Meðal annars fettir hann fingur út í kaflann um að fá fyrirgefningu á skuldunum og að við fyrirgefum okkar skuldunautum. Segist hann hafa tekið eftir því að börn og unglingar eigi erfitt með að skilja þetta skuldatal. Hann segir postulann Lúkas, í sinni útgáfu bænarinnar, nota orðið synd í stað skuldar og líkar honum það betur og telur að því mætti breyta. Þá yrði sagt: „Fyrirgefið syndir okkar sem og við fyrirgefum þeim, sem syndga gegn okkur.“ En Halldór finnur ekkert að því að í faðirvorinu okkar sé Drottinn þúaður en biðjandinn þéri sjálfan sig. Það finnst mér aftur á móti ótækt. Þéringar eru vissulega næst- um horfnar á Íslandi, þótt við þér- um enn embættismenn, biskupa, ráðherra og þjóðarleiðtoga. Samt þúum við Guð í faðirvorinu. Í flest- um útgáfum bænarinnar úti í heimi er Guð ávallt þéraður en biðjandinn þúar sjálfan sig. Sá sem þýddi bæn- ina á íslensku á 13. öld ákvað að sýna Guði sínum minni virðingu en sér sjálfum. Ekki býst ég við að það verði auð- velt mál að fá faðirvorinu breytt. Það er í sinni núverandi mynd kom- ið inn í haus flestra landsmanna og líklega eru þeir ekki spenntir fyrir því að þurfa að læra það upp á nýtt. En ég verð að segja að ef skuld- unum væri breytt í syndir og Guð þéraður myndi bænin batna mikið að mínu mati. Þrátt fyrir minnkandi messu- áhuga um heim allan er almenn kirkjusókn töluvert meiri hér í Am- eríku en á Fróni. Íslendingar flykkj- ast þó í kirkjur á jólum og páskum og svo náttúrlega við jarðarfarir. En þá er verið að heiðra hinn fram- liðna frekar en Drottin. Fyrir nokkrum árum, þegar ég var í heimsókn á ættlandinu, brá ég mér í kirkju einn sunnudags- morgun. Messugestir voru 16, ég meðtalinn. Tveir prestar þjónuðu; annar var í heimsókn utan af landi. Svo voru 13 manns í kórnum og með organleikaranum og prestunum voru þau jafnmörg og messugest- irnir. Eftir á var okkur boðið að ganga til altaris. Tók ég því fegins hendi og hugsaði að gott væri að fá syndaaflausn ásamt sopa af messu- víni en presturinn dýfði bara oblát- unni í bikarinn áður en hann setti hana á tungu mér. Síðan tóku prest- arnir hvor annan til altaris með pomp og prakt og kláruðu vínið úr kaleiknum. Eftir Þóri S. Gröndal Þórir S. Gröndal »Ef við þérum í hástert biskupa, ráðherra og þjóðar- leiðtoga, hví skyldum við þá þúa Drottin? Höfundur er fyrrverandi sjávardýrasali í Ameríku. Faðirvorið eða sumarið Í Staksteinum Morgunblaðsins 13. janúar sl. var fjallað um embætti umboðs- manns skuldara og tel ég nauðsynlegt að leið- rétta ýmis atriði er komu þar fram. Í fyrsta lagi má telja það eðlilega þróun að færri leiti til embætt- isins en áður. Má benda á að á síðasta ári bárust emb- ættinu 1125 umsóknir þar af 65% yngri en 40 ára. Til samanburðar má nefna að á árinu 2011 bárust 3.166 umsóknir. Embættið var stofnað ár- ið 2010 en var byggt á grunni Ráð- gjafarstofu um fjármál heimilanna sem sett var á laggirnar árið 1996. Margir leituðu aðstoðar í kjölfar bankahrunsins en eins og áður hefur komið fram í fjölmiðlum hefur sá hópur sem leitar sér aðstoðar vegna greiðsluerfiðleika breyst töluvert. Færri fasteignaeigendur, yngra fólk og oft vegna skyndilána. Stofnunin ekki fjármögnuð af skattgreiðendum Í öðru lagi skal leiðrétt sú fullyrð- ing að skattgreiðendur greiði kostn- að af rekstri embættisins. Þetta er beinlínis rangt þar sem gjaldskyldir aðilar (fjármálafyr- irtæki, Íbúðalánasjóð- ur, lífeyrissjóðir og vá- tryggingafélög) standa straum af kostnaði en ekki skattgreiðendur. Hefur þetta fyrir- komulag verið frá stofnun embættisins. Starfseminni hefur ver- ið hagrætt eftir rekstri og mikil áhersla verið lögð á að fara vel með það fé sem hefur verið veitt til rekstrarins. Hefur fækkun starfsmanna verið stór liður í því og eru starfandi í dag 17 starfsmenn í 15,8 stöðugildum. Þegar embættið var sem stærst árið 2012 voru 100 starfsmenn og kynjahlutfallið 77% konur og 23% karlar. Að lokum skal benda á þá stað- reynd að mikilvægt er að í velferð- arsamfélagi sé til staðar ókeypis að- stoð fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem eiga í greiðsluerfiðleikum. Sú aðstoð hefur verið til á Íslandi í 24 ár og tel ég mikilvægt að hún sé til staðar. Eftir Ástu S. Helgadóttur Ásta S. Helgadóttir »… má telja það eðlilega þróun að færri leiti til embættisins en áður. Höfundur er umboðsmaður skuldara. Rangfærslur um um- boðsmann skuldara 6 rétta leyndarmáls matseðill Matarkjallarans 7.990 kr. á mann með fordrykk Aðalstræti 2 | s. 558 0000 TILBOÐ Sunnudaga – miðvikdaga í janúar SMÁRALIND – KRINGLAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.