Morgunblaðið - 07.02.2020, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
ekki alveg búin að ákveða hvernig
því verður komið fyrir, við getum
ekki gert út öll þessi skip til lengdar
og þurfum að stokka upp í útgerð-
arrekstrinum með vorinu. Við
keyptum á síðasta ári frystitogara
frá Grænlandi og núna er hann
kominn í fullan rekstur hjá okkur
með meiri afköst en við vorum með
áður, þannig að við verðum að
breyta til í togararekstrinum,“ segir
Gunnar Tómasson, framkvæmda-
stjóri Þorbjarnar.
Um tíma stóðu yfir viðræður milli
Þorbjarnar og Vísis um sameiningu,
en ekkert varð úr því. Spurður
hvort eitthvert ákveðið atriði hafi
orðið til þess að fallið var frá áform-
unum, segir Gunnar svo ekki vera.
„Við náðum bara ekki samstöðu um
það. Þessi fyrirtæki passa mjög vel
saman og eru í svipuðum verk-
efnum. Við erum búin að vinna mjög
mikið saman í gegnum tíðina og þó
að okkur hafi ekki tekist að ná sam-
an um sameiningu höfum við áform
um að auka samstarf. Það sem við
fengum út úr þessum viðræðum var
að nú þekkjum við betur rekstur
hvert annars og jafnvel betur okkar
eigið fyrirtæki.“
Skipað var um 40 starfsmönnum
fyrirtækjanna í viðræðuhópa og
skiluðu þeir af sér margskonar til-
lögum um tilhögun reksturs og telur
Gunnar sumar þeirra geta nýst þó
að af sameiningu verði ekki. Hins
vegar útilokar hann ekki að ein-
hvern tímann í framtíðinni verði
reynt á sameiningaviðræður á ný.
Þorskurinn stór
Er framkvæmdastjórinn er spurður
um tilhögun veiða í ljósi þess að tog-
urum landsins hafi á tímabili gengið
verr að ná þorski segir hann fyrir-
tækið hafa lagt áherslu á að frysti-
togararnir taki ýsuna, ufsann, karf-
ann og aðrar tegundir og að línu-
skipunum sé beint yfir í þorskinn,
lönguna og keiluna. „Þá höfum við
verið að eltast við stærri þorsk.
Fiskurinn hefur verið mjög stór
undanfarin ár, miklu stærri heldur
en hann var fyrir um tíu árum.“
Það er óhjákvæmilegt að velta því
fyrir sér hvort stærri þorskstofn og
stærri þorskur tengist stöðu loðnu-
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
U
m 300 starfa hjá Þorbirni í
Grindavík, þar af um 150
á sjó, og er fyrirtækið
fyrirferðarmikið í heima-
byggð. „Við gerum út
þrjá frystitogara og þrjú línuskip.
Reyndar vorum við að fjárfesta í
litlu trollskipi frá Vestmannaeyjum
og fáum hann núna í vor. Við erum
stofnsins, þó að líklega verði aldrei
einhver ein skýring í þeim efnum.
„Ég er einn af þeim sem hafa haft
þá skoðun. Ég hef rætt þetta við
sérfræðinga í greininni, fiskifræð-
inga, og þeir gera ekki mikið við
þessa skoðun. En það hefur alltaf
verið þannig einhvern veginn gagn-
vart rækjunni. Rækjustofninn
stækkaði þegar þorskstofninn
minnkaði og núna þegar þorskstofn-
inn hefur stækkað hefur rækju-
stofninn minnkað. Þannig að manni
finnst vera einhver tenging á milli.
En það var hérna mjög stór
loðnustofn áður þó það væri stór
þorskstofn. Ef við förum aftur til
áranna ’81 eða ’82 þegar loðnan
hrundi síðast, þá var þorskstofninn
mjög stór. Hann er í dag aðeins
stærri heldur en þá.“ fullyrðir
Gunnar.
Skattar skekkja
samkeppnisstöðu
Stærri þorskstofn getur hins vegar
verið mikill kostur um þessar mund-
ir eftir að verð á þorski hefur farið
hækkandi á mörkuðum undanfarin
misseri. Gunnar telur hins vegar
ekki verðið hátt heldur að verðið
hafi verið of lágt og að um sé að
ræða eðlilega hækkun. „Þegar mikil
veiði var í Barentshafi lækkaði verð
á þorski mjög mikið, allt of mikið.
Hausaður og slægður fiskur frá
Noregi dró verð niður, það var of-
framboð. Þessi fiskur hríslaðist um
alla markaði og það fóru allir að
framleiða ódýrar vörur úr þessum
fiski. Þetta gerði greininni erfitt
fyrir.
Núna síðustu misseri hefur verð
verið að hækka. Bara á árinu 2018
hækkaði þessi fiskur um 40 til 45%
og hækkaði aftur í fyrra. Aðrar af-
urðir hafa verið að hækka í kjölfar-
ið, en það er engin afurð búin að
hækka eins mikið. Þannig að núna
finnst mér verð á þorski orðið eðli-
legt en aftur ámóti hafa neytenda-
markaðirnir ekki alveg samþykkt
þetta enn þá. Vonandi tekst okkur
að sannfæra alla um að það kostar
að veiða þennan fisk og koma hon-
um á markað.“
Einn þeirra kostnaðarliða út-
gerða sem hefur hækkað á und-
anförnum árum er opinbergjöld svo
sem kolefnisgjald sem hækkað hef-
ur mjög mikið og segir fram-
kvæmdastjórinn aukna skattheimtu
hafa mikil áhrif á rekstrarskilyrðin.
„Hún hefur skekkt samkeppnis-
hæfni okkar gagnvart Norð-
mönnum sem eru okkar helsti
keppinautar á fiskmörkuðunum.
Norðmenn búa svo vel að þeir þurfa
ekki að borga kolefnisgjald, þeim
tekst með klókindum að fella það
niður.
Þeir borga ekki veiðileyfagjöld
eins og við gerum sem er mjög
íþyngjandi sérstaklega fyrir bolfisk-
vinnsluna á Íslandi. Meirihluti allra
veiðigjalda má rekja til bolfiskveiða
og þegar menn tala um að veiði-
gjöldin hafa lækkað, þá hafa þau
lækkað vegna þess að afkoman á
árinu sem veiðigjaldið er miðað við
versnaði.“
ESB styrkti vinnslurnar
En það var ekki bara það að fisk-
urinn úr Barentshafi hefði lækkað
verðið að sögn Gunnars sem bendir
á að Evrópusambandið hafi ráð-
stafað miklum fjármunum í það að
„byggja upp alls konar vinnslur úti
um allar þorpagrundir í Evrópu,
bjóðandi styrki og vaxtalaus lán.
Þetta hvatti menn til þess að byggja
upp og núna standa þessar vinnslur
yfir fiskmörkuðum okkar eins og
hungraðir úlfar og rífa til sín allt
sem þær geta náð í. Þetta gerir okk-
ar vinnslum mjög erfitt fyrir því
þær búa ekki við eins góð kjör.“
Hann segir að á hinn bóginn hafi
hugsanlega myndast einhverjar
tekjur fyrir Íslendinga þegar Evr-
ópusambandið hefur styrkt vinnslur
til tækjakaupa þar sem íslensk
fyrirtæki hafi selt hátæknibúnað til
Evrópu. „Þeirra vinnslur eru miklu
betur útbúnar en nokkurn tímann
okkar. Þeir vinna þetta heldur ekki
bara á virkum dögum, heldur er
unnið í vöktum. Þannig eru þeir að
framleiða miklu meira magn og geta
gert þetta ódýrari en við getum
gert.“
Sala á tæknibúnaði í fiskvinnslu
er hins vegar einskiptis viðskipti, að
sögn Gunnars. „Við ætlum að selja
fiskafurðir inn á þennan markað á
hverju einasta ári um ókomin ár.
Þannig að ég held að ráðamenn
verði líka að horfa á það hvort þeir
ætli að drepa þetta alveg í dróma
með skattlagningu eða hvort þeir
ætli að opna augun fyrir því að þetta
getur ekki haldið svona áfram mikið
lengur enda eru mörg fyrirtæki sem
hafa eingöngu byggt á vinnslu sjáv-
arafurða að gefast upp.“
Undirbúningur mikilvægur
Borið hefur á umfjöllun um Grinda-
vík að undanförnu sökum kviku-
söfnunar í nágrenni bæjarins og
tilheyrandi jarðskjálftum. Jafnvel
hefur verið rætt um að það kunni að
koma til rýmingar bæjarins og
hefur Þorbjörn gert áætlanir um
hvernig fyrirtækið mun bregðast
við mögulegri rýmingu eða öðrum
þáttum sem geta haft áhrif á starf-
semi Þorbjarnar.
„Við reiknum ekki með að þetta
hafi mikil áhrif á veiðarnar sjálfar,
en ef illa færi gæti það haft áhrif á
hvar við getum landað og jafnvel
hvar við getum unnið aflann. Í dag
erum við með þrjár vinnslur, tvær
vinnslur hérna í Grindavík og eina í
Vogum á Vatnsleysuströnd. Hérna í
Grindavík höfum við verið að vinna
úr þorsk-, löngu- og keiluaflanum
og í Vogunum aukaafurðir. En ann-
ar afli, fiskurinn af línuskipunum,
hefur farið á markaðinn. Frysti-
togararnir hafa bara fullunnið sínar
afurðir úti á sjó og landa bara beint í
gám til útflutnings.
Spurningin er; getum við unnið
aflann í Grindavík? Ef við getum
ekki unnið hann hérna gætum við
hugsanlega unnið eitthvað í Vog-
unum, aukið vinnsluna þar. Það sem
við réðum ekki við myndum við
setja á fiskmarkað, en þá hefur
maður mestar áhyggjur af starfs-
fólkinu sem vinnur hjá okkur í
vinnslunni. Ef við myndum ekki
geta unnið aflann þyrftum við ekki
allt þetta fólk. Starfsfólkið býr allt í
Grindavík og það þyrfti þá að flytj-
ast líka.“
Hann kveðst þó mæta ástandinu
með miklu jafnaðargeði „en ég tek
samt undir það að við þurfum að
vera viðbúnir því að flytja ef í harð-
bakkann slær“.
Morgunblaðið/RAX
Samkeppnin fer harðnandi
Ekkert varð af sameiningu Þorbjarnar og Vísis í Grindavík. Framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir að ekkert stakt atriði hafi valdið því
að ekkert varð úr áformunum. Hann lýsir einnig áhyggjum sínum af samkeppnisstöðu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja.
Gunnar Tómasson, fram-
kvæmdastjóri Þorbjarnar,
segir að offramboð á
þorski hafi lækkað verð
mikið, en nú sé það að ná
jafnvægi.