Morgunblaðið - 07.02.2020, Side 13
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020 MORGUNBLAÐIÐ 13
Vottaðir suðumenn / viðurkenndir af fjórum flokkunarfélögum
Sími 863 5699 • www.kafari.is
Bryggjuþil:
Ástandsskoðun og skýrslugerð, tillögur að úrbótum,
viðgerðir vegna tæringar og ákomu, fórnarskaut
Almenn þjónusta við skip og útgerðir:
Botnskoðun, fórnarskaut, botnþrif, botnlokar,
pólering á skrúfu, botnstykki
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
E
vrópska sjávarútvegssýningin;
Seafood Processing Global og
Seafood Expo Global, mun á
næsta ári flytja frá Brussel til
Barselóna. Ísland hefur verið mjög
sýnilegt á þessum risaviðburði allt frá
því fyrsta sýningin var haldin árið
1993, og alla jafna eru um 20-30 ís-
lensk fyrirtæki með fulltrúa á ís-
lenska básnum sem Íslandsstofa
stýrir auk þess sem nokkur fyrirtæki
hafa sína eigin bása.
Berglind Steindórsdóttir, verk-
efnastjóri hjá Íslandsstofu, er í lyk-
ilhlutverki á viðburðinum og hefur
haldið utan um íslenska básinn. Hún
segir að orðrómur um mögulega
flutninga hafi verið á kreiki í nokkur
ár enda viðburðurinn búinn að
sprengja utan af sér sýningarhall-
irnar í Brussel. „Um er að ræða
stærstu sjávarútvegssýningu heims
sem vaxið hefur ár frá ári. Ég man að
þegar Ísland var fyrst með sinn þjóð-
arbás var viðburðurinn í einni sýning-
arhöll en í dag dreifist hann yfir átta
hallir og má segja að sýningin sé ein-
hvern veginn úti um allt,“ segir hún.
„Þá hefur lengi verið kurr í gestum
og sýnendum yfir því að á meðan við-
burðurinn stendur yfir hækkar verð
á gistingu í Brussel upp úr öllu valdi,
sem eykur kostnaðinn við sýning-
arhaldið og bætir örugglega ekki að-
sóknina.“
Munu endurnýja þjóðarbásinn
Í Barselóna bíður risastór nútímaleg
sýningarhöll, Fira de Barcelona, þar
sem viðburðurinn getur rúmast í
þremur höllum í stað átta. Tíminn á
síðan eftir að leiða í ljós hvort að hót-
elin í Barselóna stilla álagningunni í
hóf þegar fulltrúar sjávarútvegsfyr-
irtækja streyma þangað frá öllum
heimshornum. „Skipuleggjendur við-
burðarins senda út skoðanakönnun í
lok hverrar sýningar til að sjá hvar
má gera betur og var könnunin löngu
búin að leiða það í ljós að fólk var al-
veg til í að fara með dagskrána eitt-
hvert annað.“
Fira de Barcelona er á besta stað í
þessari fallegu katalónsku borg. Er
hálftíma gangur niður að höfninni og
tekur 20 mínútur að ferðast með al-
menningssamgöngum að Sagrada
Família.
Í ljósi þess að íslenski þjóðarbásinn
hefur verið með frá upphafi hefur
hann notið ákveðins forgangs við val
á sýningarstæði, og átt auðveldara
með að komast að þar sem umgjörðin
er best og mest um að vera. Berglind
segir að þess verði gætt að koma til
móts við elstu sýnendur á nýja staðn-
um og gætu flutningarnir þýtt að
hægt verði að þjappa íslenska sýn-
endahópnum betur saman. „Á und-
anförnum sýningum hefur það gerst
að alllangt hefur verið á milli íslensku
sýnendanna og ímynda ég mér að í
Fira de Barcelona geti íslenskir þátt-
takendur verið nær hver öðrum. Þá
verður tækifærið notað til að upp-
færa ásýnd íslenska þjóðarbássins en
núverandi hönnun hefur þjónað hlut-
verki sínu vel undanfarin fjögur
skipti.“
Tímasetning viðburðarins helst
óbreytt, og verður sýningin 2021
haldin dagana 27. til 29. apríl. Berg-
lind reiknar með að heilt á litið muni
yfirbragð viðburðarins verða eins á
nýja staðnum og þeim gamla, og
ósennilegt að miklar breytingar verði
á sýnenda- eða gestahópnum. „Það
gæti orðið ögn meira ferðalag fyrir ís-
lenska fulltrúa að ferðast til Barse-
lóna enda flogið beint til Brussel en
allar líkur á að til að komast til Barse-
lóna verði að millilenda. Eins hefur
mörgum sýnendum og gestum í Mið-
Evrópu þótt hentugt að geta farið til
Brussel á bíl, en verða sennilega að
taka flugvél til Barselóna.“
Kína sækir á
Evrópska sjávarútvegssýningin er sú
stærsta sinnar tegundar og gefst þar
tækifæri til að sjá allt það nýjasta og
besta í greininni, og rækta tengsla-
netið um leið. Stór hópur Íslendinga
heimsækir viðburðinn ár hvert og
gildir það sama um sýninguna í Bost-
on. Bandaríska sýningin er þó ekki sú
næststærsta, heldur er það sýningin í
kínversku hafnarborginni Qingdao
og aldrei að vita nema asíski viðburð-
urinn taki bráðum fram úr þeim evr-
ópska.
Sýnileiki íslenskra fyrirtækja í
Qingdao hefur verið mun minni en á
hinum viðburðunum en Berglind seg-
ir íslenskum sýnendum í Kína fjölga
jafnt og þétt og megi reikna með um
8-10 íslenskum fyrirtækjum á sýning-
unni í október á þessu ári.
Þeir sem sýnt hafa í Kína virðast
hafa átt erindi sem erfiði en Berglind
bendir á að þó tækifærin í Asíu séu
áhugaverð þá séu þar veiddar aðrar
fisktegundir en í löndunum við Atl-
ants- og Miðjarðarhafið og þarfir
sjávarútvegsfyrirtækja þar ekki
endilega þær sömu og þeirra sem
sækja stóru sjávarútvegssýningarnar
í Evrópu og Bandaríkjunum. „Að því
sögðu þá má vænta töluverðrar eft-
irspurnar eftir alls kyns tækni
tengdri fiskvinnslu enda er hagkerfi
Asíu í hraðri þróun og byggist starf-
semi í sjávarútvegi í þeim heimshluta
æ minna á ódýru vinnuafli og meira á
tækjum sem auka afköst og gæði.“
Frá Brussel
til Barselóna
Breytingar á stærstu
sjávarútvegssýningu
Evrópu ættu m.a. að
þýða að íslenskir sýn-
endur geta færst nær
hver öðrum.
Morgunblaðið/Eggert
Berglind segir orðróm um mögulega flutninga hafa verið lengi á kreiki enda
sýningin í Brussel búin að sprengja utan af sér húsnæðið sem þar er í boði.