Morgunblaðið - 07.02.2020, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Í
lok janúar var gerður samstarfs-
samningur á milli Íslenska sjáv-
arklasans og nýstofnaðs sjáv-
arklasa í New Haven í
Connecticut, sem fengið hefur nafnið
Long Island Sound Ocean Cluster.
Er þetta fimmti bandaríski klasinn
sem gerist systurklasi Íslenska sjáv-
arklasans.
Dr. C. Patrick Heidkamp hefur
haft veg og vanda af stofnun nýja
klasans en hann er prófessor við So-
uthern Connecticut State University
og var það í gegnum kennslustörf
hans að Heidkamp fékk mikinn
áhuga á sjávarútvegstengdri nýsköp-
un á Íslandi. Sérsvið hans er hag-
fræðileg landafræði sem m.a. skoðar
tengsl landfræðilegra aðstæðna og
matvælaframleiðslu af ýmsum toga.
„Ég varð þess fljótt áskynja að marg-
ir nemendur mínir höfðu lítið ferðast
út fyrir Bandaríkin, eða jafnvel ekki
út fyrir Connecticut, og mig langaði
að bjóða þeim upp á tækifæri til að
nýta þekkinguna úr náminu á er-
lendri grundu og víkka sjóndeild-
arhringinn. Varð
úr að heimsækja
Austfirði einu
sinni á ári í náms-
ferð sem spannar
rúmlega tvær vik-
ur, þar sem nem-
endur sitja tvö
fræðileg nám-
skeið og leysa
verkefni. Verður
þetta sumar það ellefta í röðinni sem
við sækjum Ísland heim.“
Það var í gegnum þessar náms-
ferðir að Heidkamp fræddist æ betur
um íslenskan sjávarútveg og kynntist
starfi Íslenska sjávarklasans. Hann
var ekki lengi að koma auga á hvernig
sams konar umgjörð utan um sprota-
starf gæti nýst vel á Long Island So-
und-svæðinu, en þar er m.a. töluvert
um skelfiskræktun, löng hefð fyrir
útgerð og áhugaverð tækifæri í rækt-
un á þara. Það styður líka við sjávar-
útvegstengda starfsemi á svæðinu að
þaðan er stutt á verðmæta markaði
eins og stórborgirnar Boston og New
York, og ekki nema tæplega tveggja
tíma akstur frá New Haven að John
F. Kennedy-flugvelli.
Halda hraðal fyrir nemendur
Þegar er búið að tryggja sprotanum
allháa upphæð til að koma starfsem-
inni af stað. Bara fyrsta árið hefur
Heidkamp úr samtals 400.000 banda-
ríkjadölum að moða, jafnvirði um 50
milljóna króna, þökk sé styrkjum frá
bæði frá nýsköpunarverkefni stjórn-
valda í Connecticut og frá háskól-
anum þar sem hann starfar. Verður
fjármagnið m.a. nýtt til að finna hent-
ugt húsnæði og setja um leið af stað
sprotahraðal. „Í hraðlinum munu há-
skólanemendur móta markaðs-
hugmyndir fyrir þararæktunargeir-
ann og í framhaldinu að bestu
verkefnin hljóta stuðning til áfram-
haldandi þróunar,“ segir Heidkamp
og bendir á að þarinn í Long Island
Sound sé til margra hluta nytsam-
legur. „Af þeim verkefnum sem þeg-
ar eru komin á legg má nefna fram-
leiðslu þara-snakks, svk. „jerky“ og
þara spaghettís. Þarinn hefur líka
eiginleika og efni sem koma í góðar
þarfir við blöndun snyrtivara og lyfja,
og er hægt að nota þara sem hráefni í
framleiðslu lífplasts (e. bioplastics),
og líftextílefna (e. biotextiles).“
Þá grunar Heidkamp að neytendur
í stórborgunum í kring, verandi mjög
áhugasamir um heilsusamlegt og um-
hverfisvænt mataræði, muni ólmir
vilja prufa t.d. þara-bjór, eða þara-
gos. „Hjá Íslenska sjávarklasanum
fékk ég að smakka gos sem inniheld-
ur kollagen sem fengið er úr hliðaraf-
urðum fiskvinnslu og ég hugsa að hip-
sterunum í Brooklyn þætti mjög
gaman að fá eitthvað því líkt í hillur
verslana, nema blandað þara.“
Hafa reynslu af ræktun í sjó
Eins reiknar Heidkamp með að ótal
tækifæri komi í ljós í hvers kyns at-
vinnustarfsemi sem tengist sjónum.
„Byggðirnar umhverfis Long Island
Sound eru t.d. þekktar fyrir mikinn
áhuga á skemmtisiglingum og má sjá
bæði seglbáta og spíttbáta á ferð, og
fólk að skemmta sér á sjóskíðum.
Eins er New Haven mikilvæg höfn
fyrir skipaflutninga og aldrei að vita
hvaða möguleika það gæti skapað.“
Heidkamp vonast til að íslensk ný-
sköpunarfyrirtæki geti tekið þátt í
starfi klasans í Long Island Sound,
og eins vill hann endilega að íslenskir
aðilar nýti sér þá þekkingu sem orðið
hefur til í New Haven og nágrenni.
„Nú þegar er einn af fyrrverandi
nemendum mínum að taka þátt í til-
raunum með þararæktun á Vest-
fjörðum og nær þar að nýta bæði
menntunina sem hann fékk og þá
reynslu sem menn hafa nú þegar af
ræktun þara og hvers kyns sjáv-
arlandbúnaði í Long Island Sound.
Þar hafa nokkrar kynslóðir lært af
reynslunni t.d. hvernig þarf að laga
ræktunina að sjávarbotninum á
hverjum stað, og hvaða skilyrði í sjó
henta best til ræktunar, s.s. með hlið-
sjón af seltu og næringarefnum.“
Geta vonandi miðlað þekkingu til Íslands
Í nýjum sjávarklasa mitt
á milli Boston og New
York verður fyrst um
sinn lögð áhersla á
tækifæri á sviði þara-
og skelfiskræktunar.
Ljósmynd/Wikipedia – Tony (CC)
Eitt af kennileitum New Haven er þessi viti við hafnarmynnið.
C. Patrick Heidkamp
Nemendur Heidkamps með nýja bók um Íslenska sjávarklasann. Bókin verður notuð sem kennsluefni og kemur í góðar þarfir
í viðskiptahugmyndahraðli sem haldinn verður á næstunni. Long Island Sound-klasinn er þegar ágætlega fjármagnaður.
Ljósmynd / C. P. Heidkamp
Í New Haven er mikilvæg gámahöfn og stutt á dýrmæta markaði.
Ljósmynd / C. P. Heidkamp
Þarabóndi að störfum. Áhugaverð grein með vaxtartækifæri.