Morgunblaðið - 07.02.2020, Síða 18

Morgunblaðið - 07.02.2020, Síða 18
Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Þ etta er ráðstefna eldis og ræktunargreina á Íslandi. Menn hittast einu sinni á ári og fara yfir það nýjasta og það sem skiptir mestu máli í þessum greinum. Í fyrra var til dæmis lögð áhersla á áframvinnslu á laxi og ann- að slíkt sem gæti verið mögulegt með mikilli tækni þó að við séum með hæstu laun í heimi,“ segir Gunnar Þórðarson, formaður Strandbún- aðar, um ráðstefnu félagsins sem haldin verður á Grand hóteli í Reykjavík 19. og 20. mars. „Þessi ráðstefna núna er að horfa til þróun- ar byggða í tengslum við strandbún- að.“ Er þetta fjórða árið sem ráð- stefnan er haldin og fer áhugi á henni vaxandi, að sögn Gunnars. „Það var töluvert betri aðsókn í fyrra heldur en hefur verið, þannig að hún fer mjög vaxandi. Það er heldur ekkert óeðlilegt þar sem verðmætin í eldinu voru 25 milljarðar, þannig að þetta er orðin stór atvinnugrein.“ Meðal annars verður fjallað sér- staklega um áhrif laxeldis á byggða- þróun og samfélag á Vestfjörðum og segir Gunnar laxeldið hafa haft gríð- arleg áhrif. „Jafnvel meiri þar en á Austfjörðum því þar hafa þeir stór- iðju og fiskinn, en þetta skiptir öllu máli fyrir Vestfirði. Þar erum við að skoða þessi áhrif og höfum erindi um það.“ Hann segir einnig geta verið frekari vaxtarskilyrði fyrir greinina í landshlutanum enda standi til að birta í þessum mánuði áhættumat fyrir Ísafjarðardjúp og „þá geta menn farið að búast við að þetta fari að hafa meiri áhrif á norðanverðum Vestfjörðum.“ Hann segir frá því að einnig verði fjallað um skeldýrarækt og vaxandi landeldi í bleikju. Hins vegar er ljóst að laxeldið er fyrirferðarmikill þátt- ur í greininni og er búist við því að ný skýrsla um laxeldi á Íslandi verði birt á ráðstefnunni. „Auðvitað skiptir laxeldi miklu máli því þeir eru með langmesta verðmætið af þessum eld- is- og ræktunargreinum. Og það er ósk okkar að þeir komi meira að þessari ráðstefnu í framtíðinni og láti hana sig meira varða. Það er alltaf gott að hittast og heyra og sjá það nýjasta sem er að gerast.“ Læra af Norðmönnum Margt er hægt að læra af Norð- mönnum enda hafa þeir viðamikla reynslu af laxeldi, að sögn formanns- ins. „Við erum einnig að ræða ís- lenskt eldi í alþjóðlegu samhengi, hvað geta Íslendingar lært til dæmis af Norðmönnum. Við fáum Norð- mann til þess að segja okkur frá stefnu Norðmanna í laxeldi framtíð- arinnar, áskoranir þar og stefnumót- un. Norðmenn framleiða 1,3 milljónir tonna á ári og hefur þetta staðið í stað í nokkur ár en þeir stefna á fimm milljónir tonna og það er laxa- lúsin sem hefur haldið aftur af þeim,“ útskýrir Gunnar. Hann telur góð vaxtarskilyrði fyr- ir greinina á Íslandi. „Þetta eru ein- hver 30 þúsund tonn sem framleidd eru og ég held að við getum alveg bú- ist við að fara upp í 90 þúsund tonn sem er sama magn og Færeyingar framleiða og erum við að tala um 100 milljarða útflutningsverðmæti. Ég tel þetta alveg raunhæft innan skamms tíma.“ Spurður hvort þurfi að fara í frek- ari stefnumótun af hálfu stjórnvalda hvað eldisgreinina varðar segir hann svo ekki vera þar sem búið er að marka stefnu og samþykkja breytta löggjöf um fiskeldi. „Það virðast allir jafn ósáttir við lögin, sem segir manni kannski að þetta hafi verið þokkaleg niðurstaða,“ segir Gunnar og hlær. „Þetta þarf auðvitað að vera í sátt við náttúruna en þjóðina líka.“ Fjöldi tækifæra „Ég held að menn átti sig ekki á hvað þetta er stór og mikilvæg atvinnu- grein. Okkur hefur tekist vel til í sjávarútveginum, en þar fækkar fólkinu með tæknivæðingu. Það sem er það góða við þessa atvinnugrein er að hún borgar há laun. Í Noregi er þetta sú grein sem borgar þriðju hæstu launin í norsku atvinnulífi, þetta borgar mun betri laun en sjáv- arútvegur og fiskvinnsla. Það eru allskonar tækifæri sem tengjast þessu, til dæmis í allskonar hliðarþjónustu. Það er köfunarþjón- usta sem vex og dafnar, netaþvottur, viðhald á netum, flutningar og ýmsar atvinnugreinar sem eru í kringum þetta. Við erum að tala um að í dag á Bíldudal eru um 15 bílar á dag að fara með lax,“ svarar Gunnar spurð- ur um framtíðartækifærin. Á ráðstefnunni í fyrra var lögð sér- stök áhersla á áframvinnslu afurða hér á landi og verður það einnig rætt í ár. „Þó að það væru ekki nema 10 þúsund tonn sem myndu verða flök- uð. Nú er komin tækni til þess að flaka strax eftir slátrun, til dæmis með búnað frá Marel og Völku þar sem beinagarðurinn er bara skorinn úr. Þá getum við skorið laxinn eftir því sem markaðurinn vill, eins og við höfum gert með þorskinn – það er al- gjört kraftaverk sem okkur hefur tekist að gera þar.“ Þá verður einnig á ráðstefnunni málstofa um leyfisveitingar hins op- inbera og mun verða rætt um marg- víslega þætti sem koma að þessum lið, þar á meðal skipulag strandveiða, málsmeðferð stjórnsýslunnar og hvernig haldið sé á leyfisveitingum í Noregi. Jafnframt verður kynnt við- horf atvinnugreinarinnar og sveitar- félaganna til leyfisveitinganna og ferli þeirra. „Það er nú einmitt meðal markmiða ráðstefnunnar að upplýsa um þessa þætti,“ segir formaðurinn. Funda um strandbúnað í fjórða sinn Ráðstefna um eldi og ræktun fer fram í næsta mánuði og verður lögð sérstök áhersla verður á áhrif eldis á byggða- þróun, en greinin hefur þegar haft mikil áhrif á Vestfjörðum. Ljósmynd/Strandbúnaður Aðsókn á ráðstefnuna Strandbúnaður eykst ár frá ári að sögn skipuleggjenda. Búast má við fróðlegum erindum. Búist er við að ný skýrsla um fiskeldi verði kynnt á ráðstefnunni í næsta mánuði. Gunnar Þórðarson, formaður Strandbúnaðar, segir laxeldi hafa gríðarleg áhrif á Vestfjörðum. 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020 Markmið félagsins Strandbúnaðar er að stuðla að faglegri og fræðandi um- fjöllun um strandbúnað og styðja þannig við menntun, rannsóknir, þró- un og stefnumótun greinarinnar. Strandbúnaður, sem er ekki hags- munasamtök einstakra hópa og vinn- ur ekki að hagsmunagæslu, stendur fyrir samnefndri ráðstefnu á hverju ári og er þar fjallað um mikilvæg við- fangsefni á sviði fiskeldis, skeldýra- og þörungaræktar. Vettvangur Ljósmynd/Strandbúnaður Fjöldi fólks sótti ráðstefnuna í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.