Morgunblaðið - 04.03.2020, Blaðsíða 1
KÓRÓNUVEIRU-
FARALDUR
16
staðfest tilfelli
kórónuveirusmits
á Íslandi
4
smitaðir komu
frá Þýskalandi
12
smitaðir komu
frá Veróna
230
sýni rannsökuð
frá upphafi
300+
einstaklingar
í sóttkví
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Alls voru í gær sjö ný kórónuveirusmit stað-
fest af sýkla- og veirufræðideild Landspítala.
Eru smit því orðin 16 talsins hér á landi.
Þetta staðfesti Víðir Reynisson, yfirlög-
regluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, við Morg-
unblaðið seint í gærkvöldi.
„Þau eru með það sem kalla má hefðbundin
flensueinkenni, ekki mikið veik,“ segir Víðir
og bætir við að fólkið, karl og kona á sex-
tugsaldri, hafi komið hingað til lands frá Ver-
óna á Ítalíu og í gegnum München í Þýska-
landi.
Aðspurður segir hann nú búið að greina um
230 sýni hér á landi. „Þetta er í raun alveg
Staðfest kórónuveirusmit orðin 16 talsins hér á landi
ótrúlegur fjöldi sem búið er að skoða. Þessir
tveir einstaklingar sem hér um ræðir eru
hluti af þessum hópi sem við erum búin að
fylgjast með og voru í sóttkví,“ bætir hann
við. Þá segir hann nú einungis tímaspursmál
hvenær einstaklingur smitast innanlands.
„Það styttist í það.“
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
segir bankann reiðubúinn til að
grípa til þeirra aðgerða sem þarf til
að tryggja lausafé í fjármálakerfinu.
Viðbúið sé að útbreiðsla kórónuveir-
unnar muni hafa talsverð áhrif á ís-
lenskt efnahagslíf til skamms tíma.
Seðlabanki
Bandaríkjanna
lækkaði óvænt
vexti í gær í þeirri
viðleitni að örva
hagkerfi landsins.
Fjármálamark-
aðir brugðust
hins vegar illa við
ákvörðuninni,
ekki síst þegar
Jerome Powell seðlabankastjóri gaf
til kynna að ekki væri von á frekari
lækkun 18. mars næstkomandi. Ás-
geir Jónsson segir að vaxtaákvörðun
verði ekki flýtt hér á landi en niður-
staða peningastefnunefndar er
væntanleg 18. mars.
Hann segir íslenskt efnahagslíf
vel í stakk búið til að takast á við
möguleg áhrif af útbreiðslu kórónu-
veirunnar. Líkur séu á að áhrifin af
faraldrinum verði mest á fyrstu vik-
unum. Ferðaþjónustan sé sér-
staklega útsett fyrir þeim, ekki síst
vegna þess að mjög hafi dregið úr
ferðalögum sökum hennar. Seðla-
bankinn muni hins vegar tryggja að
bankakerfið verði vel í stakk búið til
að tryggja lausafjárstöðu fyrirtækja
í greininni og að með því sé hægt að
styðja þau gegnum þá erfiðleika sem
nú steðji óneitanlega að.
Ásgeir segir mikinn viðskipta-
afgang gera Seðlabankanum kleift
að bregðast með afgerandi hætti við
ef þörf krefur.
Seðlabankinn í startholunum
Útbreiðsla kórónuveirunnar hefur áhrif á mörkuðum víða um heim Seðlabankastjóri segir að grip-
ið verði til aðgerða til að tryggja lausafjárstöðu í fjármálakerfinu Stýrivextir ekki lækkaðir að sinni
MKórónuveirusmit á Íslandi »4, 6
og ViðskiptaMogginn
Ásgeir Jónsson
M I Ð V I K U D A G U R 4. M A R S 2 0 2 0
Stofnað 1913 54. tölublað 108. árgangur
ÓVISSA HEFUR
AUKIÐ LÍKUR Á
SAMDRÆTTI MÆTA ORKUSKIPTUM
FLYTUR
JÓHANNESAR-
PASSÍU J.S. BACHS
VILJA STÆKKA VIRKJANIR 11 TÓNLEIKAR Í KVÖLD 28VIÐSKIPTAMOGGINN
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
stundaheimili víðast hvar á höfuð-
borgarsvæðinu og Akranesi verða
lokuð frá og með 9. mars og búast
má við að grunnskólar í Reykjavík
og á Seltjarnarnesi lokist fljótlega
vegna þess að ræstingar falla að
mestu niður. Frá sama tíma verður
lokað á ýmsa opinbera þjónustu, svo
sem við útgáfu vegabréfa og öku-
skírteina.
Losna ekki undan skattframtali
Aðildarfélög BSRB standa al-
mennt saman að skæruverkföllum í
tvo daga í viku frá 9. mars og út
mánuðinn og síðan að ótímabundnu
allsherjarverkfalli frá 15. apríl.
Stærsta félagið, Sameyki - stéttar-
félag í almannaþjónustu, boðar hins
vegar til ótímabundins verkfalls hjá
ríki og sveitarfélögum á tiltekna
þjónustuþætti frá og með 9. mars.
Starfsemi heldur áfram hjá Skatt-
inum, Tollinum og sýslumannsemb-
ættum en útlit er fyrir að flestar al-
mennar afgreiðslur lokist og
afgreiðslur í síma skerðist. Þó að
verkfall hefjist 9. mars mun það ekki
hafa áhrif á almenn framtalsskil þar
sem skattframtölum er skilað raf-
rænt. Hins vegar skerðist framtals-
þjónusta sem veitt er í síma og fólk
getur ekki fengið aðstoð í af-
greiðslum Skattsins. »11
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Skæruverkfall félaga úr tveimur
stéttarfélögum sem eru fjölmennir á
Landspítala, Sjúkraliðafélagi Ís-
lands og Sameyki, mun hafa mikil
áhrif, ekki síst nú þegar mikið álag
er á spítalanum vegna kórónuveir-
unnar. „Það mun trufla mikið klín-
íska þjónustu og stoðþjónustu sem
er dreifð um allan spítalann,“ segir
Ásta Bjarnadóttir, framkvæmda-
stjóri mannauðsmála á Landspítala.
Verkföll félaga innan BSRB munu
strax hafa áhrif á daglegt líf fólks, ef
til þeirra kemur. Nefna má að frí-
Mikil áhrif á starfsemi Landspítala
Frístundaheimilum lokað um leið og verkfall Sameykis hefst og skólar fylgja í
kjölfarið Ekki verða gefin út vegabréf, ökuskírteini eða vottorð í verkfalli BSRB
Morgunblaðið/Eggert
Landspítali Verkfall kæmi sér illa
vegna kórónuveirunnar.