Morgunblaðið - 04.03.2020, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020
Undanfarið hefur
nokkur umræða verið
um upprunaábyrgðir,
þ.e. svokölluð „græn
skírteini“ og viðskipti
orkufyrirtækja með þau.
Hagsmunasamtök, ein-
staka stjórnmálamenn
og stöku fjölmiðlar, sem
að öllu jöfnu vilja láta
taka sig alvarlega, hafa
afvegaleitt umræðuna með
því að rugla saman annars vegar
viðskiptum með upprunaábyrgðir og
hins vegar skuldbindingum þjóða
tengdum heimildum til losunar
gróðurhúsalofttegunda út í and-
rúmsloftið. Sjálfsagt gengur þeim
sem slíkan málflutning stunda mis-
jafnt til, eftir því hver á í hlut, en
niðurstaðan er líklega sú að fáir vita
hvernig raunverulega er í pottinn
búið. Sumir hverjir telja hér eitt-
hvað ógreint og óeðlilegt á ferðinni,
enda gjarnan spilað á þjóðernis-
hyggju og stolt okkar af hreinni
náttúru Íslands í hinni afvegaleiddu
umræðu.
Tvö kerfi
Mikilvægt er að hafa í huga að
samkvæmt gildandi löggjöf eru í
gildi tvö ólík kerfi
sem oft er ruglað
saman. Annars vegar
er um að ræða kerfi
um upprunaábyrgðir
og hins vegar kerfi
um heimildir til los-
unar gróðurhúsa-
lofttegunda.
Kerfið um upp-
runaábyrgðir, sem
byggist á lögum nr.
30/2008, er valkvætt
og kveður á um út-
gáfu framseljanlegra
upprunaábyrgða til framleiðenda
raforku með endurnýjanlegum
orkugjöfum, eins og t.d. Landsvirkj-
unar. Þetta eru hin svokölluðu
„grænu skírteini“ sem orkufyr-
irtæki er framleiða græna orku geta
selt á markaði sem myndast hefur
með þau. Upprunaábyrgðirnar
gegna því hlutverki að sýna kaup-
anda fram á að tiltekið hlutfall eða
magn orku hafi verið framleitt með
endurnýjanlegum orkugjöfum. Í
framkvæmd á regluverkið að gera
það að verkum að endurnýjanlegi
uppruninn verði að sjálfstæðri sölu-
vöru sem hægt er að selja óháð
orkunni sem hann tilheyrði upp-
haflega. Þannig er neytendum sjálf-
um gefinn kostur á að greiða fyrir
hana sem á móti gerir endurnýjan-
lega orku verðmætari og þar af leið-
andi eftirsóknarverðari fram-
leiðsluvöru. Sala slíkra skírteina
hefur hins vegar engin áhrif á skuld-
bindingar Íslands í loftslagsmálum,
né þeirra sem þau kaupa. Það er því
rangt sem haldið hefur verið fram
að umhverfissóðar geti með kaupum
á slíkum upprunaábyrgðum hvít-
þvegið sig með hreinleika Íslands,
hvað þá að orkuframleiðendur sem
framleiða orku með mengandi hætti
geti gert slíkt hið sama. Þeir geta
ekki nýtt sér upprunaábyrgðirnar
til mótvægis við losun í þeirra
rekstri. Upprunaábyrgðirnar nýtast
eingöngu endanlegum notendum
orkunnar.
Kerfið um loftslagsheimildir, þ.e.
um losun gróðurhúsalofttegunda,
sem byggist á lögum nr. 70/2012, er
á hinn bóginn óvalkvætt (skyldu-
bundið) en í því er svokölluðum los-
unarheimildum, sem eru framselj-
anlegar og fer fækkandi með hverju
árinu, úthlutað eða þær boðnar upp.
Fyrirtækjum sem undir kerfið falla
er síðan gert skylt að standa skil á
losunarheimildum vegna losunar
gróðurhúsalofttegunda. Í grófum
dráttum virkar kerfið þannig, svo
sem nánar er fjallað um í lögunum,
að ýmsum iðnaði og flugrekendum
er gert skylt að standa skil á los-
unarheimildum í samræmi við losun
sína á gróðurhúsalofttegundum. Ár-
lega er svo ákveðinn heildarpottur
af losunarheimildum sem fer minnk-
andi með hverju ári og er los-
unarheimildum annars vegar endur-
gjaldslaust úthlutað til fyrirtækja og
hins vegar eru þær boðnar upp.
Hugmyndin er því sú að með færri
losunarheimildum verði þær verð-
mætari (dýrari) og fyrirtæki hafi því
aukinn hvata til að draga úr mengun
sinni, til þess að þurfa ekki að kaupa
losunarheimildir á markaði eða á
uppboðum. Fyrirtæki hafa jafn-
framt hvata til að draga úr mengun
umfram þær losunarheimildir sem
þeim er úthlutað til að geta selt um-
framheimildir sínar á almennum
markaði. Rétt er að halda því ræki-
lega til haga að fyrirtæki í mengandi
starfsemi sem þurfa á losunarheim-
ildum að ræða, geta á engan hátt
uppfyllt þá skyldu með kaupum á
upprunaábyrgðum frá t.d. Lands-
virkjun. Þau kaup minnka ekki
skyldur þeirra í tengslum við losun.
Hvað væri best?
Í umræðunni hefur sú staðreynd
alveg orðið útundan að allt rafmagn
sem heimili og fyrirtæki á Íslandi
(önnur en stórnotendur) nota er
upprunavottað rafmagn. Stóriðjan
hér á landi hefur ekki verið tilbúin
að bæta við það orkuverð sem hún
greiðir og fá upprunavottorðin með í
kaupunum. Í þeim tilvikum situr
Landsvirkjun því uppi með þau vott-
orð sem sannanlega eru verðmæti.
Er eðlilegt að Landsvirkjun geri
ekkert með þau verðmæti? Hendi
þeim eða jafnvel gefi stóriðjunni?
Svari hver fyrir sig, en augljóslega
væri einfaldast að allir kaupendur
orku af Landsvirkjun fengju ein-
ungis upprunavottað rafmagn til að
nota hér á landi, en fyrir það þarf að
greiða. Meðan svo er ekki hlýtur
Landsvirkjun að koma upprunavott-
orðunum í verð með öðrum hætti
svo sem gert er nú. Með því há-
markar hún afrakstur auðlinda í
þágu eigandans, íslensku þjóð-
arinnar.
Eftir Helga
Jóhannesson » Það er því rangt sem
haldið hefur verið
fram að umhverfissóðar
geti með kaupum á slík-
um upprunaábyrgðum
hvítþvegið sig með
hreinleika Íslands.
Höfundur er yfirlögfræðingur
Landsvirkjunar.
Tvenn lög – tvö ólík kerfi
Helgi Jóhannesson
Það liggur í mannlegu
eðli að halda að sér
höndum á tímum óvissu.
Athafnamaðurinn setur
áform um fjárfestingar í
nýjum tækjum á ís og
fjölskylda sem hugar að
íbúðakaupum hikar og
bíður þess að framtíðin
skýrist.
Á tímum óvissu er lítið
hægt að fullyrða annað
en að líkur séu á því að efnahagsleg
umsvif minnki. Jafnvel hagfræð-
ingar, sem eru sannfærðir um að
hægt sé að setja allt efnahagslífið inn
í reiknilíkan og spá fyrir um framtíð-
ina, játa sig sigraða. Spámódel hag-
fræðinga (sem sumir hverjir telja sig
eiga sæti á bekk með raunvís-
indamönnum) eru ófullkomin.
Óvissa í efnahagsmálum er oft
vegna athafna eða athafnaleysis
stjórnvalda. Brexit og viðskiptadeil-
ur Bandaríkjanna og Kína, hafa
valdið efnahagslegum höfuðverkjum
í flestum löndum heims. Pólitískur
óstöðugleiki hefur leikið mörg lönd
grátt í gegnum söguna. Efnahags-
legar hörmungar eru fylgifiskur
stríðs og átaka.
Þannig skapar maðurinn sjálfur
óvissu. En sumt er ekki á mannlegu
valdi. Náttúran veltir ekki fyrir sér
stöðunni á hlutabréfamörkuðum og
lætur sér þróun efnahagsmála í léttu
rúmi liggja. Náttúruhamfarir, felli-
byljir, eldgos, flóð, þurrkar, skógar-
eldar og önnur óáran, eru oft þungur
baggi fyrir einstök lönd og land-
svæði, stundum heiminn allan. Far-
sóttir ógna lífi og heilsu. Í heimi nú-
tímans, þar sem fólk ferðast frjálst
milli landa, getur veirusótt orðið að
heimsfaraldi, sem hefur ekki aðeins
alvarlegar afleiðingar á líf ein-
staklinga heldur teflir í tvísýnu efna-
hagslegum stöðugleika og lífkjörum
almennings.
Kórónuveiran (Covid-19)
Faraldur Covid-19 af völdum
nýrrar kórónuveiru sem á uppruna
sinn í Wuhan-héraði í Kína hefur
breiðst hratt út. Vonir um að hægt
væri að hemja útbreiðsluna rættust
ekki. Líklega sleppur ekkert land
undan veirunni.
Hér verður ekki gert lítið úr þeirri
ógn sem stafar af kórónuveirunni.
Veirusótt sem verður faraldur er al-
varleg. Ekki verður annað séð en að
viðbrögð íslenskra yf-
irvalda hafi verið fum-
laus og hnitmiðuð. Og
að líkindum er það
undir hverju og einu
okkar komið hvernig
til tekst í baráttunni.
En það er nauðsyn-
legt að gera ekki
meira úr hættunni en
efni standa til. Í gær-
morgun (þriðjudag)
höfðu verið staðfest
smit af völdum veir-
unnar í 90.936 ein-
staklingum í heiminum öllum, að því
er fram kemur á vef BBC. Lang-
flestir hinna smituðu eru í Kína
(80.151), síðan í Suður-Kóreu (4.812),
Ítalíu (2.036) og í Íran (1.501). Stað-
fest dauðsföll eru 3.117 – langflest í
Kína.
Til samanburðar er vert að hafa í
huga að á hverju ári veikist um einn
milljarður manna af inflúensu á
hverju ári. Milli 290 og 650 þúsund
deyja en stofn veirunnar er mis-
alvarlegur.
Vanmetin áhrif
Margt bendir til að stjórnvöld og
viðskiptalífið í heild sinni hafi van-
metið áhrif kórónuveirunnar – áhrif-
in geta orðið meiri, dýpri og lang-
vinnari en nokkur reiknaði með.
Liðin vika var sú versta á hluta-
bréfamörkuðum í Bandaríkjunum
frá fjármálakreppunni 2008. Þrjár
helstu vísitölur hlutabréfa lækkuðu
um 10% eða meira, þrátt fyrir
nokkra hækkun fyrir lok markaða á
föstudag.
Peter Dixon, hagfræðingur hjá
Commerzbank, segir í viðtali við
tímaritið National Review um
helgina að staðan sé ólík aðstæðum í
fjármálakreppunni 2008. Þá hafi
fjármálamarkaðir brugðist við því
sem var að gerast en nú séu þeir að
bregðast við því sem gæti gerst.
„Það er nær ómögulegt fyrir fjár-
festa og greiningaraðila að gera
skynsamlegar spár um hvað gæti
gerst – við erum í blindflugi.“
Hversu alvarleg eða langvarandi
efnahagslegu áhrifin eru veit enginn.
Kórónuveiran kemur hins vegar á
vondum tíma fyrir efnahag heimsins.
Hagvöxtur hefur farið minnkandi í
Kína og þrátt fyrir að vextir dansi
um og undir núllinu hefur hagkerfi
Evrópusambandsins ekki náð nauð-
synlegri viðspyrnu. Hagfræðingar
keppast við að uppfæra spár sínar og
forystumenn ríkisstjórna um allan
heim klóra sér í kollinum yfir því til
hvaða aðgerða sé hægt að grípa.
Vextir verða a.m.k. ekki keyrðir
mikið niður til að örva efnahagslífið.
OECD hefur lækkað hagvaxtarspá
sína fyrir heiminn og hefur hún ekki
verið lægri frá fjármálakreppunni.
Samkvæmt upplýsingum Bloom-
berg-upplýsingaveitunnar er fram-
leiðsla verksmiðja í Kína aðeins 60-
70% af getu. Í Kína eru framleiddar
mikilvægar neytendavörur og íhlutir
fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum
heims. Fall í framleiðslu hefur áhrif
á þessi fyrirtæki, s.s. Apple, og neyt-
endamarkaði í flestum löndum.
Vísbendingar eru um að áhrif kór-
ónuveirunnar – að minnsta kosti til
skamms tíma – kunni að vera meiri
en fjármálakreppunnar fyrir 12 ár-
um.
Misjöfn staða
Sum ríki standa veikar efnahags-
lega en önnur. Í Evrópu hafa flest
smit verið á Ítalíu, enn sem komið er.
Ítalía hefur í mörg ár barist við
króníska stöðnun og má vart við
áföllum vegna kórónuveirunnar. Á
síðasta ári var framleiðsla ítalska
hagkerfisins sú sama og fyrir 15 ár-
um og 4% minni en 2007 í aðdrag-
anda fjármálakreppunnar. Atvinnu-
leysi viðvarandi. Atvinnuleysi meðal
25 ára og yngri er um 29% og er
hvergi meira í Evrópusambandinu
nema á Spáni og Grikklandi. Verg
landsframleiðsla dróst saman á síð-
asta ársfjórðungi liðins árs.
Það eykur vanda Ítala að þeir geta
ekki gripið til peningalegra aðgerða.
Verkfærin eru öll í höndum Seðla-
banka Evrópu og stýrivextir eru
þegar mjög lágir (sumir neikvæðir).
Svigrúmið í ríkisfjármálum er ekk-
ert. Skuldir ítalska ríkisins eru um
133% af vergri landsframleiðslu –
langt yfir ofan 60% viðmið Evrópu-
sambandsins. Aðeins Grikkland er í
verri stöðu.
Ólíkt Ítalíu er efnahagsleg staða
Íslands sterk. Þótt enn sé ekki að
fullu hægt að átta sig á hvaða áhrif
kórónuveiran hefur á efnahag okkar
erum við í stakk búinn til að grípa til
ráðstafana og getum beitt verkfær-
um sem standa Ítölum ekki til boða,
jafnt í peningamálum og ríkisfjár-
málum.
Mestu áhyggjurnar eru af nei-
kvæðum áhrifum veirunnar á ferða-
þjónustuna. Samstillt átak einkafyr-
irtækja og ríkisins í
markaðssetningu lands og þjóðar
hefur áður skilað gríðarlegum ár-
angri. Þann leik verður að end-
urtaka. En fleira þarf að koma til.
Endurskoða þarf ýmis sérgjöld sem
lögð eru á ferðaþjónustuna samhliða
því að losa um lausafjárkröfur bank-
anna til að gera þeim mögulegt að
auka útlán til fjárfestinga – ekki að-
eins í ferðaþjónustu heldur á öllum
sviðum atvinnulífsins. Við getum
orðað þetta sem svo að verið sé að
hleypa súrefni inn í efnahagslífið. Ís-
lensk stjórnvöld geta auðveldlega
skrúfað frá fleiri súrefniskrönum,
líkt og ég hef margoft bent á í ræðu
og riti. Til þess þarf vilja og stefnu-
festu.
Viðbrögð markaðsaðila um allan
heim við útbreiðslu kórónuveirunnar
sýna hve mikil áhrif sálarástand –
væntingar um framtíðina – hefur á
framvindu efnahagsmála. Bjartsýni
ýtir undir efnahagslegar athafnir.
Svartsýni og óvissa draga úr fram-
kvæmdavilja sem að öðru óbreyttu
leiðir til verri lífskjara almennings.
Oftar en ekki er sálarástand í beinu
samhengi við störf og stefnu stjórn-
valda.
Eftir Óla Björn
Kárason
» Bjartsýni ýtir undir
athafnir. Svartsýni
og óvissa draga úr fram-
kvæmdavilja. Sálar-
ástand er oft í beinu
samhengi við störf og
stefnu stjórnvalda.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Sálrænt heilbrigði efnahagsmála
AFP
Faraldur „Margt bendir til að stjórnvöld og viðskiptalífið í heild sinni, hafi vanmetið áhrif kórónuveirunnar.“