Morgunblaðið - 04.03.2020, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Breiðstaðir, Svfél. Skagafjörður, fnr. 213-9801, þingl. eig. Nóngil ehf.,
gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 10. mars nk. kl. 10:45.
Laugarmýri 2, Svfél. Skagafjörður, fnr. 236-7681, þingl. eig. Samrækt
Laugarmýri ehf., gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Norðurlandi
vestra og Byggðastofnun, þriðjudaginn 10. mars nk. kl. 15:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
3. mars 2020
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Hreyfisalur-
inn er opinn milli kl. 9.30-11.30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur. Jóga
60+ með Grétu kl.12.15 & 13.30. Söngstund við píanóið, með Helgu
kl.13.45. Engin veitingasala vegna verkfalls en heitt á könnunni. Bóka-
spjall með Hrafni kl.15. Nánari upplýsingar í síma 411-2702. Velkomin.
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og léttur hádegisverður
á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 13.
til 16. Stólaleikfimi á sínum stað kl. 13.30. Tökum með handavinnu,
kíkjum í blöðin og spjöllum. Kaffi og með því á eftir í boði kirkjunnar.
Allir velkomnir.
Árskógar Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15.
Stóladans með Þóreyju kl. 10. Spænskukennsla kl. 10.45-11.30. Menn-
ingarklúbbur kl. 11. Brids kl. 12. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl.
12.55. Innipútt Skógarmanna kl. 13-14. Opið hús, t.d. vist og brids eða
bíó kl. 13-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30.
Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700.
Bústaðakirkja Félagsstarfið er á sínum stað frá kl. 13-16. Gestur
dagsins er fjölmiðlakonan Sigurlaug M. Jónasdóttir og ætlar hún að
segja okkur frá starfi sínu. Spil, handavinna og framhaldssagan á
sínum stað og auðvita kaffið góða. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Starfsfólk Bústaðakirkju.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið og kaffisopi kl.
8.50-11. Púslum kl. 9-16. Línudans kl. 10-11. Upplestrarhópur Soffíu kl.
10-12. Zumba kl. 13. Tálgun með Valdóri kl. 13.30-16. Allir velkomnir
óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9. Postulínsmálun kl. 9.
Minigolf kl. 10. Tölvu- og snjallsímaaðstoð kl. 10.30. Bókband kl. 13.
Frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Myndlist kl. 13.30. Dans með Vita-
torgsbandinu kl. 14. Heitt á könnunni í setustofunni á 2. hæð. Verið öll
hjartanlega velkomin.
Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl.
13. Vatnsleikfimi kl. 7.10/7.50/15.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 9.30.
Kvennaleikfimi Sjálandi kl. 10.30. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Kínversk
skák í Jónshúsi kl. 13. Leir Smiðja Kirkjuhvoli kl. 13. Zumba salur
Ísafold kl. 16.30.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía-kennsla opinn tími, kl. 13
félagsvist, kl. 13 postulínsmálun.
Guðríðarkirkja Kótilettudagur í félagsstarfi eldri borgara miðviku-
daginn 5. mars kl. 12. Helgistund í kirkjunni og söngur. Borðað verður
vel af kótilettum og spjallað sr. Pétur Ragnhildarson kemur og segir
eitthvað skemmtilegt. Matur kr. 1500. Hlökkum til að sjá ykkur, sr.
Karl, sr. Leifur Ragnar, sr. Pétur og Lovísa.
Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 9.30, gönguhópur kl. 10.30, postu-
línsmálun, kvennabrids og silfursmíði kl. 13. Línudans fyrir lengra
komna kl. 16 og 17. Línudans fyrir byrjendur kl. 18.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Útskurður og tálgun með leiðbeinanda frá kl. 9-12, 500 kr. dagurinn
og allir velkomnir. Botsía kl. 10–11.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Minningahópur kl. 10.30. Frjáls spilamennska kl. 13.
Handavinnuhópur kl. 13-16. Verði verkfall verður ekki hægt að kaupa
mat eða kaffi í félagsmiðstöðinni.
Korpúlfar Glerlistanámskeið kl. 9 í Borgum ganga kl. 10 frá Borgum
og í Egilshöll. Keila í Egilshöll kl. 10, allir velkkomnir. Stjórnar- og
nefndarfundur Korpúlfa kl. 10 í Borgum. Gaman saman í Borgum kl.
13, kvikmyndasýning og viðburður frá Ungmennaráði SOS barna-
þorpanna kl. 14 í Borgum, kynning og tónlistaratriði, allir velkomnir
og gaman að sjá ykkur sem flest. Qigong með Þóru kl. 16.30
í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, opin lista-
smiðja, morgunleikfimi kl. 9.45. viðtalstími hjúkrunarfræðings kl.
10.30-12, upplestur kl. 11, félagsvist kl. 13.30. heimildarmyndasýning
kl. 16. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Gler og bræðsla í félagsheimilinu kl. 9 og 13. Leir
Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum kl.
10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13.
Handavinna með leiðbeinanda á Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í
sundlauginni kl. 18.30. Félagsvist í salnum á morgun kl. 13.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur
hittist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir vel-
komnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4 kl. 10,
kaffi og rúnnstykki eftir göngu. Enskunámskeið kl. 10.30 og 12.30,
enska talað mál kl. 14. Umsjón Margrét Sölvadóttir. Söngfélag FEB
kóræfing kl. 16.30, stjórnandi Gylfi Gunnarsson.
Smáauglýsingar
Bækur
Bækur til sölu
Kirkjuritið 1. - 23. árg.,
gott band, Kirkjublaðið
1-2, Almenn Kristni-
saga 1-2.
Uppl. í síma 898 9475
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Þjónusta
Málningarþjónusta
Upplýsingar í síma 782 6034.
Húsviðhald
Tek að mér
ýmiskonar
húsaviðhald og fl.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Vantar þig
fagmann?
N nnr þ þa
s
m þ
itar a
FINNA.is
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ Haraldur Al-freð Krist-
jánsson fæddist í
Reykjavík 2. nóv-
ember 1934. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans 21.
febrúar 2020. For-
eldrar hans voru
Kristján Egilson, f.
9.6. 1897 í Hauka-
dal í Þingeyrar-
hreppi, d. 29.12.
1970, og Jóhanna Jakobsdóttir,
f. 31.8. 1898 í Ásgarðsnesi, Þing-
eyrarhreppi, d. 21.4. 1980.
Systkini Haraldar: Sigurður, f.
9.6. 1919, d. 27.9. 1985; Þórey, f.
27.5. 1921, d. 19.6. 2005; Jóhann,
f. 4.10. 1922, d. 10.1. 1987; Vig-
dís, f. 29.3. 1924, d. 20.4. 1945;
Egill Jón, f. 20.10. 1925, d. 14.8.
1991; stúlka, f. 25.12. 1926, d.
12.2. 1927; Dýrleif, f. 23.5. 1930;
Einar Oddur, f. 20.12. 1941, d.
21.5. 1998.
Eiginkona Haraldar var
Birna Kristín Björnsdóttir, f.
24.4. 1937, d. 28.6. 2014. Börn
þeirra eru: 1) Kolbrún, f. 5.8.
1960, maki hennar Kristmundur
Harðarson, f. 21.10. 1964, d.
12.12. 2009. Eiga þau þrjú börn,
Berglindi, f. 1986, Birnu, f. 1988,
og Brynjar, f. 1992. 2) Berglind,
f. 4.7. 1968, d. 8.9. 1972. 3) Krist-
ján Björn, f. 2.12.
1970, maki hans
Guðfinna Gunn-
arsdóttir, f. 1.6.
1970, og eiga þau
fjögur börn: Aron
Gauta, f. 1995, Ást-
rós, f. 2003, Björn
Henry, f. 2005, og
Gunnar Alfreð, f.
2011. 4) Ásmundur
Guðni, f. 1.7. 1975,
eiginkona hans er
Erna Hafnes Magnúsdóttir, f.
5.7. 1979. Eiga þau fjögur börn,
Björn Darra, f. 24.4. 2006, Auði
Maríu, f. 19.6. 2006, Magneu
Ósk, f. 22.10 2009, og Harald
Orra, f. 9.2. 2017.
Haraldur ólst upp á Fram-
nesvegi og síðar á Skúlagötu.
Haraldur og Birna giftu sig
21.7. 1961 og bjuggu lengst af í
Vesturbænum og á Seltjarnar-
nesi. Síðustu æviárin bjuggu
þau Birna í Ársölum í Kópavogi
en Haraldur flutti síðan á Skóla-
braut á Seltjarnarnesi eftir frá-
fall hennar. Haraldur var stýri-
maður og skipstjóri til margra
ára en endaði starfsævina sem
atvinnubílstjóri á Nýju Sendi-
bílastöðinni.
Haraldur verður jarðsunginn
frá Seltjarnarneskirkju í dag, 4.
mars 2020, klukkan 13.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Guð geymi elsku afa Halla.
Aron Gauti, Ástrós, Björn
Henry og Gunnar Alfreð.
Frá er fallinn góður vinur
okkar á Nesvellinum. Ég
kynntist Halla fyrir um það bil
25 árum, auðvitað á golfvell-
inum. Hann var þá búinn að
vera fastamaður þar í a.m.k.
aldarfjórðung. Einstaklega
nettur og laginn golfari, þægi-
legur í öllu viðmóti, alltaf bros-
andi með hnyttyrði á vörum,
aldrei særandi enda var öllum
hlýtt til Halla. Hann var viðbú-
inn að segja öðrum til, ef hann
var spurður, skipti sér ekki af
spilamennsku annarra, nema ef
honum ofbauð klaufaskapur
byrjandans. Við spiluðum á
ýmsum völlum hér heima og
einnig á Spáni og í Portúgal
með góðum félögum. Öllum
þótti gott að hafa Halla sem
meðspilara. Og við sem ætluð-
um að spila meira saman í sum-
ar en við gerðum í fyrra. Fyrir
nokkrum árum varð Halli fyrir
því að fá blóðtappa sem lamaði
vinstri handlegginn. Ekkert
virtist vera hægt að gera í slíku
tilfelli, þó vissum við að Hall-
grímur Magnússon læknir var
snillingur í nálastungum og
leitaði Halli til hans. Við fórum
aðra hverja viku austur í
Hveragerði í nálastungur og
var Halli farinn að finna fyrir
straumi í annars lamaðar taug-
arnar, Hallgrímur sagði að
þetta væri langhlaup og var
Halli við því búinn. Ef hann
fengi bara smá mátt aftur í
handlegginn. Því miður lést
Hallgrímur mjög snögglega. En
Halli gafst ekki upp og voru all-
ir undrandi að sjá hvað hann
gat spilað með aðeins annarri
hendinni. Hans verður sárt
saknað á golfvellinum og einnig
af félögum okkar Hauki Bjarna
og Hinna Lár í GKG, sem heim-
sóttu okkur og við þá, hér um
bil á hverju sumri með mikilli
tilhlökkun, að hittast einu sinni
enn. Við félagarnir Jón Þorgeir,
Jói Einars, Óskar og fleiri vinir
í GKS vottum börnum og öðr-
um aðstandendum okkar
dýpstu samúð við fráfall Halla.
Hörður Pétursson.
Haraldur Alfreð
Kristjánsson
Minningarvefur á mbl.is
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát
Minningar
og andlát