Morgunblaðið - 04.03.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2020
SAMNINGAR VIÐ
ÖLL TRYGGINGAFÉLÖG
• Fagleg þjónusta
• Vönduð vinnubrögð
• Frítt tjónamat
Hvaleyrabraut 2, 220 Hafnarfirði | Sími: 547 0330 | hsretting@hsretting.is | hsretting.is
HSRETTING.IS
547 0330
LÁTTU OKKUR
UM MÁLIÐ
• BÍLARÉTTINGAR
• PLASTVIÐGERÐIR
• SPRAUTUN
Hægt er að bóka tjónaskoðun hjá okkur á netinu
60 ára Jón er Kópa-
vogsbúi, ólst upp í
Austurbænum og býr í
Salahverfinu. Hann er
Cand.jur. frá HÍ, Juris
Doctor frá Miami og er
hæstaréttarlögmaður
bæði á Íslandi og í
BNA. Hann er annar eigenda Altus lög-
manna og stjórnarformaður Búseta.
Maki: Kristín S.R. Guðmundsdóttir, f.
1952, d. 2014, yfirmaður viðskipta-
sölusviðs hjá Icelandair.
Foreldrar: Ögmundur Kristgeirsson, f.
1931, rafvirkjameistari, búsettur í Kópa-
vogi, og Sesselja G. Jónsdóttir, f. 1924, d.
2001, húsmóðir í Kópavogi.
Jón
Ögmundsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú gefst tækifæri til þess að koma
á hreint máli sem hefur lengi verið að
angra þig. Finndu út hvað veldur.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú átt erfitt með að segja nei og sit-
ur því uppi með verkefnafjölda sem þú
ræður orðið ekkert við. Gefðu þér tíma til
þess að kynna þér málin.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Alltaf annað slagið skjóta upp
kollinum mál úr fortíðinni sem þarf að tak-
ast á við. Ekki láta reka á reiðanum, heldur
taktu þig saman í andlitinu og láttu verkin
tala.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur í mörg horn að líta og
nauman tíma, svo þú skalt temja þér að
fara vel með þá stund sem þér er til starfa
gefin.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Óvænt tækifæri mun bjóðast þér og
það ríður á miklu að þú kunnir að bregð-
ast rétt við. Gleymdu ekki að láta þína
nánustu finna fyrir ást þinni og umhyggju.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Bilanir og tafir munu að öllum lík-
indum setja svip sinn á vinnudaginn hjá
þér. Taktu því fagnandi sem jákvætt er en
gerðu þér líka far um að læra af mistök-
unum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú stendur mikið fyrir dyrum á heim-
ilinu, til að mynda vegna endurbóta, flutn-
inga, eða gistiheimsókna. Taktu til hend-
inni, ljúktu verki í eitt skipti fyrir öll.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú kemst ekki hjá því að gera
upp ákveðin mál innan veggja heimilisins.
Guði sé lof fyrir þig, sem gerir allt
skemmtilegra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Margar nýjar kröfur koma upp
í kringum þig en þær gömlu sýna hins veg-
ar ekkert fararsnið. Einbeittu þér að því
sem þú veist að þér ber að gera.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Með því að taka höndum sam-
an við fólk sem hugsar eins og þú, getur
þú gert stórar breytingar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekki láta koma þér úr jafnvægi
í dag, ekki einu sinni í samskiptum við fjöl-
skylduna. Ekki trúa öllu sem þér er sagt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Settu þér það takmark að vera öðr-
um góð fyrirmynd. Vertu vandlátur á það
sem þú kaupir .
Ótrúlega hraustur er
á auðvelt með að sofna.
Við sjötugsaldur sjálfsagt fer
svolítið að dofna.
potast við golfíþróttina með mis-
jöfnum árangri,“ segir Gizur. Hann
sendi Morgunblaðinu þetta kvæði að
endingu:
G
izur Gottskálksson er
fæddur 4. mars 1950 á
Hvoli í Ölfusi og ólst
þar upp. Hann vann við
byggingarstörf, brúar-
vinnu og verslunarstörf á sumrin.
Gizur gekk í Grunnskóla Hvera-
gerðis, varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Laugarvatni 1970, varð
Cand.med. frá Læknadeild Háskóla
Íslands 1976, lauk sérfræðinámi í al-
mennum lyflækningum frá Region-
sjukhuset í Örebro 1983 og sér-
fræðinámi í hjartalækningum frá
Sahlgrenska sjukhuset í Gautaborg
1985.
Gizur var staðgengill heilsu-
gæslulækna á námstímanum á Eg-
ilsstöðum og Hvammstanga, var
heilsugæslulæknir og sjúkrahús-
læknir á Seyðisfirði júní 1976 til
mars 1977, kandídat á Borgarspít-
ala og Landakoti og með námi lækn-
ir í Örebro og Gautaborg og var
yfirlæknir í Örebro 1984. Hann var
sérfræðingur á lyfja- og rannsókna-
deild á Borgarspítalanum 1985-
1996, yfirlæknir á hjartadeild á Aka-
demiska sjukhuset í Uppsölum
1996-1997 og sérfræðingur á hjarta-
deild Landspítalans 1997-2018.
Hann var einnig með læknastofu á
Læknasetri og sinnti hjartalækna-
þjónustu á Norðfirði á vegum Heil-
brigðisstofnunar Austurlands síð-
ustu 34 árin og var sömuleiðis með
hjartalæknaþjónustu í Vestmanna-
eyjum.
Gizur var bæjarfulltrúi í Garðabæ
1992-1998 og varaþingmaður Al-
þýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi
1994-1998. „Svo fór það ekki saman
að vera í pólítíkinni og fullu starfi
svo ég hætti að sinna henni. Maður
varð að skera einhvers staðar nið-
ur,“ segir Gizur. Hann hefur skrifað
margar greinar um læknisfræði og
þjóðfélagsmál.
Áhugamál Gizurar eru m.a. tón-
list, golf og svo hefur hann gaman af
því að yrkja ljóð. „Ég hef tekið þátt í
nokkrum kórum, var síðast í Karla-
kórnum Þröstum, en tók mér hlé frá
honum fyrir ári. Við hjónin erum
svo mikið erlendis en fjölskyldan
hefur átt hús á Costa Blanca á Spáni
síðastliðin 15 ár. Maður er síðan að
Fjölskylda
Eiginkona Gizurar er Elín Krist-
jana Sigfúsdóttir, f. 16.5. 1951, fyrr-
verandi bankastarfsmaður. Þau eru
búsett í Garðabæ. Foreldrar Elínar
voru hjónin Sigfús Einarsson, f. 2.6.
1917, d. 3.5. 1985, sjómaður í Nes-
kaupstað, og Elín Ragnhildur Þor-
geirsdóttir, f. 2.11. 1928, d. 11.2.
2017, húsfreyja í Neskaupstað og
Kópavogi.
Synir Gizurar og Elínar eru 1)
Sigfús Gizurarson, f. 8.1. 1973, lækn-
ir í Reykjavík. Maki er Rúna Giz-
urarson, f. 15.5. 1972, kennari og við-
skiptafræðingur. Börn þeirra eru
Gizur, f. 16.7. 1998, læknanemi, Erna
Saga, f. 6.10. 2002, menntaskóla-
nemi, og Elín Móa, f. 21.5. 2006,
grunnskólanemi; 2) Gottskálk Giz-
urarson, f. 24.5. 1974, læknir í Garða-
bæ. Maki er Anný Guðmundsdóttir,
f. 9.9. 1991, læknir. Synir þeirra eru
Guðmundur, f. 6.12. 2016, og Baldur,
7.2. 2019. Synir Gottskálks með
Jóhönnu Þórhallsdóttir eru Gizur, f.
Gizur Gottskálksson læknir – 70 ára
Fjölskyldan Gizur, Elín, börn, tengdabörn og barnabörn stödd á Tenerife.
Ótrúlega hraustur og sefur vel
Hjónin Elín og Gizur stödd á Spáni, en myndin er frá því í fyrra.
40 ára Heiðdís er
Akureyringur, er fædd
þar og ólst upp á
Brekkunni en býr í
Naustahverfinu. Hún
er hjúkrunarfræðingur
að mennt frá Háskól-
anum á Akureyri og
vinnur á barnadeildinni á Sjúkrahúsinu á
Akureyri.
Börn: Bjarki Hólm, f. 2005, og Ísak Atli,
f. 2018.
Foreldrar: Bjarki Kristinsson, f. 1947,
bifreiðarstjóri, og Unnur Snorradóttir, f.
1955, dagmóðir. Þau eru búsett á
Akureyri.
Heiðdís Dröfn
Bjarkadóttir
Til hamingju með daginn
Flateyri Kristján Breki Kon-
ráðsson fæddist 4. mars 2019
kl. 01.12 á Landspítalanum og á
því eins árs afmæli í dag. Hann
vó 3.445 grömm og var 51 cm
langur við fæðingu. Foreldrar
hans eru Konráð Ari
Skarphéðinsson og Jóhanna
Maggý Kristjánsdóttir.
Nýr borgari