Morgunblaðið - 20.03.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
Við erum hér til að aðstoða þig! --
• Sérsmíðaðir skór
• Skóbreytingar
• Göngugreiningar
• Innleggjasmíði
• Skóviðgerðir
Erum með samning við
sjúkratryggingar Íslands
Tímapantanir í síma 533 1314
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fáir fara varhluta af kórónuveirufaraldrinum
og samkomubanninu sem hófst á mánudag.
Vegna þess hófu liðsmenn á vegum Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar í gær útkeyrslu
á matvælum og nauðsynjum til þeirra sem
reiða sig á slíkt. Hefur samkomubannið komið
í veg fyrir að þeir sem þurfa á slíkum úthlut-
unum að halda geti nálgast þær með hefð-
bundnum leiðum. Um nokkur hundruð heimili
á höfuðborgarsvæðinu er að ræða og því ljóst
að verkefnið er ærið, en hópur sjálfboðaliða
vinnur að því.
Heimsending hafin á matarúthlutunum
Morgunblaðið/Eggert
Keyra til nokkurra hundraða heimila
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ellefu manns, læknar, sjúkraflutningamenn, hjúkr-
unarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk, hafa síðan
á þriðjudag verið í sóttkví vegna COVID-19 á Hótel Cape
Húsavík. Fólk þetta var allt í návígi við karl og konu sem
leituðu ásjár á Sjúkrahúsinu á Húsavík sl. mánudag, en
þar lést maðurinn að talið er vegna veirunnar. Alls 21
sinnti umræddu fólki og þau sem ekki eru á hótelinu eru í
sóttkví á heimilum sínum á Húsavík og þar í grennd.
„Í sjálfu sér er ekki yfir neinu að kvarta, við erum hér í
góðu yfirlæti,“ segir Rúnar Traustason sjúkraflutn-
ingamaður. „Hver er í sínu herbergi og gæta þarf mjög
að hreinlæti, til dæmis þvottum og að vera með grímur
þegar er farið fram í sameiginlega rýmið og matsalinn.
Annars sinnir hver hér sínum verkefnum eins og tök eru
á í gegnum síma, tölvur og fjarfundabúnað. Ljósleið-
arastrengur sem liggur héðan frá hótelinu á sjúkrahúsið
var virkjaður og þannig geta læknarnir, hjúkrunarfólkið
og aðrir sem hér eru sinnt sínum skjólstæðingum eða
öðrum þeim verkefnum sem upp koma. Annars er rólegt
hjá mér, hef nóg að lesa og finn margt forvitnilegt á net-
inu,“ segir Rúnar. Bætir við að fjölmargar stuðnings-
yfirlýsingar hafi borist síðustu sólarhringa og þyki sér og
sínum vænt um þær. sbs@mbl.is
Ellefu saman í sóttkví
Heilbrigðisstarfsfólk á hóteli á Húsavík Sinntu manni
sem lést líklega af COVID Eru með grímur í góðu yfirlæti
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Hressandi Rúnar Traustason sjúkraflutningamaður
fær sér frískt loft, en hann er á Hótel Cape Húsavík.
Evrópusam-
bandið(ESB) féll
í gærkvöld frá út-
flutningsbanni til
EFTA-ríkjanna á
tilteknum hlífð-
arbúnaði sem
notaður er í störf-
um heilbrigðis-
starfsfólks, svo-
sem á grímum og
hlífðarbúnaði.
Eins og greint var frá á mbl.is í gær
hafði ESB bannað birgjum í löndum
innan sambandsins að selja slíkan
hlífðarbúnað út fyrir sambandið, þar
á meðal til Íslands. Bárust fréttir af
birgjum hér á landi sem selt höfðu
allar sínar vörur en fengu ekki
keyptar fleiri frá birgjum sínum er-
lendis, sökum reglnanna.
Sagði Guðlaugur Þór Þórðarson
utanríkisráðherra, um miðjan dag í
gær, þetta vera brot á EES-
samningnum og var þetta leiðrétt
með ákvörðun framkvæmdastjórnar
ESB í Brussel í gærkvöld, sam-
kvæmt tilkynningu frá utanrík-
isráðuneytinu.
„Ég fagna því að Evrópusam-
bandið hefur ákveðið að standa við
skuldbindingar sínar gagnvart
EFTA-ríkjunum og viðurkennt
stöðu okkar og réttindi á innri mark-
aðinum,“ sagði Guðlaugur í gær-
kvöld.
Sölubann
ESB
afnumið
Utanríkisráðherra
fagnar ákvörðuninni
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Þrítugur karlmaður sem handtek-
inn var fyrir utan skemmtistaðinn
Pablo Discobar í fyrrinótt í
tengslum við eldsvoða sem kom þar
upp er sá sami og stal steypubíl í
síðustu viku og olli stórhættu þar
sem hann keyrði á ofsahraða á móti
umferð á Sæbraut. RÚV greindi frá
þessu í gær en þetta hefur ekki
fengist staðfest hjá Lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var
handtekinn á vettvangi eftir að
hann hafði stöðvað bílinn en honum
var sleppt að lokinni skýrslutöku.
Hann var svo aftur handtekinn á
vettvangi eldsvoðans í nótt að því
er RÚV greinir frá. Hann var í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær úr-
skurðaður í fjögurra vikna síbrota-
gæslu.
Úrskurðaður í fjögra
vikna síbrotagæslu
Kórónuveiran bitnar einnig á heil-
brigðisstarfsfólki. Starfsmaður á
bráðamóttöku Landspítalans í Foss-
vogi hefur greinst með smit. Unnið
var að því í gær að rekja ferðir
starfsmannsins og meta þörf á
sóttkví fyrir aðra starfsmenn.
Smit kom svo upp á veiru- og
sýklafræðideild Landspítala í gær.
Sökum þess hafa fjórir starfsmenn
deildarinnar, sem er við Barónsstíg,
verið settir í sóttkví. Þetta staðfesti
Karl G. Kristinsson, yfirlæknir á
deildinni, í samtali við Morgunblaðið
í gær.
„Þetta kom því miður upp. Sem
betur fer gerðist þetta á Barónsstíg
en ekki í Ármúlanum. Þetta verður
til þess að álagið eykst eitthvað,“
segir Karl og bætir við að í kjölfarið
hafi verið ákveðið að senda fjóra
starfsmenn deildarinnar í sóttkví.
„Það var gert um leið og ljóst var um
smit,“ segir Karl.
Spurður hvort starfsemin muni
raskast mikið vegna þessa kveður
Karl nei við. Verði smitin hins vegar
fleiri sé óumflýjanlegt að álagið auk-
ist á þá starfsmenn sem fyrir eru.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
var það hjúkrunarfræðingur sem
smitaðist á bráðamóttöku Landspít-
alans. Síðdegis í gær var útlit fyrir
að ekki hefðu fleiri smitast en ljóst
þótti að minnst 2-3 aðrir hjúkrunar-
fræðingar yrðu sendir í sóttkví.
Jón Magnús Kristjánsson, yfir-
læknir bráðalækninga, sagði að það
væri vitaskuld slæmt að tilvik sem
þetta hefði komið upp. Hann sagði að
engir læknar á bráðamóttöku hefðu
orðið útsettir fyrir smiti.
Fjórir í sóttkví á
veiru- og sýkladeild
Smit einnig greint á bráðamóttöku