Morgunblaðið - 20.03.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.03.2020, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020 Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Hjá Bíljöfri starfa þaulreyndir bifvélavirkjar með áralanga reynslu að baki og hafa yfir að ráða fullkomnum tölvum til að lesa og bilanagreina bílinn þinn Sérhæfð þjónusta fyrir 544 5151tímapantanir Lausnir á biðlista barna Mistök urðu við birtingu greinar Kolbrúnar Baldursdóttur, sálfræðings og borgarfulltrúa Flokks fólksins, „Lausnir á löngum biðlista barna“, sem birt- ist í blaðinu í gær. Rétt er setningin svona: „Á næsta fundi borgarstjórnar hyggst ég leggja fram tillögu um að vel- ferðarráð leiti eftir að formgera samstarf skólaþjónustu og Þroska- og hegð- unarstöðvar (ÞHS) í þeim tilgangi að vinna saman að málum barna þar sem aðkoma barnalæknis er nauðsynleg.“ Morgunblaðið biðst velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Tuttugasta mars ár hvert er Alþjóðadag- ur franskrar tungu haldinn hátíðlegur víðast hvar í heim- inum. Að þessu sinni er hátíðin sérstök að því leyti að nú eru 50 ár liðin frá því að undirritaður var í Niamey, höfuðborg Níger, sáttmálinn sem gat af sér Alþjóðastofnun franskrar tungu. Áttatíu og átta ríki, fylkis- stjórnir eða áheyrnarlönd með rætur í frönsku eiga nú aðild að Alþjóðastofnun franskrar tungu. Franska er opinbert tungumál í 32 ríkjum og fylkjum og rúmlega 300 miljónir manna tala frönsku, sem þannig situr í fimmta sæti yfir al- gengustu tungumál í heimi. Franska er, ásamt ensku, eina málið sem talað er í fimm heims- álfum. Því skipar franska annað sæti í alþjóðlegum stofnunum og fjölmiðlum, það þriðja þegar kem- ur að samskiptum á viðskiptasviði og fjórða sæti hvað varðar fjölda notenda á vefnum. Það segir sitt um sterka stöðu frönsku og þrótt hennar að hún er í öðru sæti yfir þau mál sem flestir í heiminum læra í skólum, með tæplega 130 miljónir nemenda og 900.000 kennara. Franskir grunn- og framhaldsskólar sem starf- ræktir eru erlendis eru 520 að tölu með 370.000 nemendur og á vegum Institut de France eru reknar 98 kennslustofnanir og 400 á vegum Alliance Française með samtals 620.000 nemendur. Sú veröld sem á frönsku að sam- nefnara er fjölskrúðug, sannkölluð deigla ýmissa menningarheima og margbreytilegustu samskipta. Innan þessarar veraldar fara fram samvinna og samneyti sem veita sköpunargleðinni útrás í bók- menntum, leikhúsi, kvikmyndum, dansi eða sjónlistum og bregða upp tiltekinni húmanískri sýn á heiminn. Svo vitnað sé í Jean Et- hier-Blais, rithöfund frá Québec: „Engin bönd milli fólks eru jafn- næm og traust eins og tungu- málið.“ Franska er tungumál menning- ar, samskipta og tengsla og hefur alltaf átt vísan stað á Íslandi, þá ekki síst vegna frönsku sjómann- anna sem hingað komu á þorsk- veiðar áratugum saman, vegna Alliance Française í Reykjavík, sem sett var á stofn 1911, vegna frönskumælandi sjóliða og foringja úr sjóher Kanada sem dvöldust á Íslandi í síðari heimsstyrjöld og vegna Frönsku kvikmyndahátíð- arinnar, sem nýlega átti 20 ára af- mæli, en ekki síst vegna þeirra fjölmörgu þekktu Íslendinga sem hafa lagt rækt við frönsku, allt frá Vigdísi Finnbogadóttur til Katr- ínar Jakobsdóttur, að ógleymdum þeim Auði Övu Ólafsdóttur, Hall- grími Helgasyni, Sigurði Árna Sig- urðssyni, Agli Helgasyni og Krist- ínu Jóhannesdóttur, svo aðeins örfá nöfn séu nefnd. Hátíð franskrar tungu snýst ekki einvörðungu um að gera veg frönsku sem mestan heldur er þar haldið á loft fjölbreytni tungumál- anna og fjöltyngi. Það er í þeim anda sem unnið er að LEXIU, ís- lensk-franskri veforðabók, á veg- um Stofnunar Vigdísar Finn- bogadóttur með sameiginlegum fjárstuðningi franskra og íslenskra stjórnvalda. Fullgerð verður þessi orðabók ómetanlegt verkfæri fyrir þýðendur, nemendur og alla áhugamenn um franska og ís- lenska tungu. Í þeim hnattvædda og samofna heimi sem við hrærumst í á okkar dögum opnar kunnátta í frönsku dyr að nýju rými, því frönskumæl- andi, með margháttað aðgengi að annars konar menningu, öðrum tungumálum og öðrum hug- myndum. Og það er ekki lítils um vert því eins og malíska skáldið Amadou Hampâté Bâ orðaði það svo fallega: „Teppi eru fögur af lit- skrúði sínu. Eins er því farið með mannfólkið …“ Eftir Graham Paul og Anne-Tamara Lorre » 20. mars ár hvert er haldið upp á franska tungu víða um heim. Anne-Tamara Lorre Höfundar eru Graham Paul er sendi- herra Frakklands og Anne-Tamara Lorre er sendiherra Kanada á Ís- landi. Graham Paul Ríki og héruð með aðild að Alþjóðastofnun franskrar tungu. Aðilar (þjóð/fylki) Aukaaðilar Áheyrnaraðilar Brottvikning Hátíð franskrar tungu Ég veit ekki hvort þú áttar þig á því en þín elskulegheit geta sannarlega skipt sköp- um um líðan fólks. Klappaðu sjálfum þér og samferðafólki þínu á bakið með hug- arfari raunverulegrar velvildar, umhyggju og hlýju. Verum ófeimin við að sjá hvert annað með hjartanu. Því að með þinni fögru og gefandi, umvefjandi og nærandi nærveru, orðum og bænum, trú, von og kær- leika, getur þú borið smyrsl á og grætt flakandi sár og þerrað svo mörg harmanna tár sem geta um síðir orðið að gimsteinum í rósa- kransi lífsins. Viljirðu vera eitthvað í þessum heimi eru peningar, velgengni, við- urkenningar, veraldleg virðing eða völd ekki leiðin. Heldur útbreiddur, miskunnsamur og umvefjandi, fyr- irgefandi, fórnfús og friðgefandi kærleikans faðmur sem krefst ekki endurgjalds. Því að fórnandi kærleikur knýr fram kraftaverk svo við komumst af og lífi höldum. Gleymum því ekki að lifa, taka tillit, njóta og þakka, sam- an, sama hvað. Allt sem við þurfum á ævigöng- unni er: Virðing og virk hlustun. Það að setja sig inn í aðstæður fólks. Reyna að skilja. Vera jákvæður, upp- byggilegur og uppörv- andi. Með umvefjandi kærleika og brosi. Hjartans hlýju og hrósi. Fyrirgefðu og þér mun fyrirgefið verða. Brostu og til þín verður brosað. Faðmaðu og þú munt faðmaður verða. Uppörvaðu og þú munt uppörvaður verða. Gefðu og þér mun gefið verða. Elskaðu og þú munt elskaður verða. Syngdu og það verður tekið undir með þér. Farðu með bænirnar þínar og finndu frið- inn flæða um þig. Leitastu við að lifa í kærleika og sátt við Guð og alla menn og þér mun líða svo miklu, miklu betur. Með kærleikans faðmlagi, sam- stöðu og friðarkveðju. Lifi lífið! Gildi kærleikans Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson »Með kærleika getur þú borið smyrsl á og grætt flakandi sár og þerrað svo mörg harm- anna tár sem geta um síðir orðið að gimstein- um í rósakransi lífsins Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.