Morgunblaðið - 20.03.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.03.2020, Blaðsíða 21
átti m.a sérmerkt borð í kaffi- stofunni, við lítinn fögnuð ann- arra, og var ávallt sökuð um allt sem gert var á hag annarra starfsmanna, sem reyndist líka oftar en ekki rétt vera. Árið 2004 var mér falið að taka við stjórn D-vaktar og hef verið þar síðan. Þegar ég kom þangað var Tolli aðstoðarvarð- stjóri þar og áttum við afar far- sælt samstarf þar í 14 ár og get ég ekki annað en dáðst að því að hann veitti sjálfum sér aldr- ei afslátt í nokkrum hlut þegar kom að samanburði við unga fólkið, svo eftir var tekið, þá sérstaklega af því sjálfu. Hann átti mjög auðvelt með að starfa með öllum og get ég staðfest að það var alveg gagnkvæmt. Tolli tilheyrði svokölluðum að- gerðarflokki hjá okkur og fannst mörgum yngri lögreglu- manninum það áhugavert að við skyldum mæta með mann á sjötugsaldri til æfinga og verk- efna, en hann var í flokknum allt þangað til í fyrra, og sló hvergi af. Þegar aðstæður sem þessar koma upp, vinnufélagi á besta aldri fellur frá, koma margar minningar fram s.s. löggumót í fótbolta, D-vaktar ferðir á Grenivík, gönguferðir og vinnu- ferðir í Fögruhlíð og Tómasar- haga svo eitthvað sé nefnt og engri þeirra myndi ég viljað hafa misst af. Læt ég hér staðar numið í hraðferð minni um Tolla á þess- ari stundu en ljóst er að við sem eftir erum ættum að huga enn meira að því en áður að enginn veit sína ævina, og reyna að njóta þess sem við höfum, áður en hún öll er. Sendum við Önnu og öðrum ættingjum og vinum innilegar samúðarkveðjur og minningin lifir um vin sem fannst lífið ekki vera flókið. Hermann og Þuríður. Kveðja frá Lögreglufélagi Eyjafjarðar Í starfi lögreglumanna erum við reglulega minnt á hverful- leika lífsins, en þó kom það eins og reiðarslag þegar fréttist að Þórarinn Jóhannesson væri lát- inn eftir skamma baráttu við veikindi. Þórarinn, alltaf kallaður Tolli, gekk í lögregluna á Akureyri árið 1985 og var þar enn við störf er hann lést. Hann átti góðan og flekklausan feril, starfaði lengstum á vöktum í al- mennri deild en síðustu árin í dagvinnu. Oft var gantast með það á stöðinni að hann væri maðurinn með löngu starfslýs- inguna, en þegar leysa þurfti einhver ný verkefni var við- kvæðið oft „Tolli bjargar þessu“. Tolli var vinsæll meðal sam- starfsmanna sinna og er nú sárt saknað. Bæði af þeim sem unnu með honum í áraraðir en einnig af nýjustu starfsmönnunum, en nýliðum tók hann alltaf einstak- lega vel og þeir nutu þess að vinna með og læra af honum. Tolli sinnti félagsmálum lög- reglumanna á Akureyri af mikl- um dug, þá sérstaklega orlofs- málum. Hann lagði alla tíð metnað og alúð í orlofshús fé- lagsins og verður seint fullþakk- að fyrir alla þá vinnu sem hann leysti þar af hendi. Það verður fátæklegt á stöð- inni án Tolla en við minnumst hans með hlýju og þakklæti. Fjölskyldu Tolla vottum við okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd Lögreglufélags Eyjafjarðar, Kári Erlingsson, formaður. Með nokkrum orðum langar okkur að minnast Þórarins Jó- hannessonar, lögreglumanns 8505, góðs samstarfsfélaga okk- ar hjá embætti Lögreglustjór- ans á Norðurlandi eystra sem lést 11. mars sl. eftir skammvinn veikindi. Þórarinn, eða Tolli eins og hann var alltaf kallaður, var félagi okkar á lögreglustöðinni á Akureyri og hóf störf þar árið 1985. Hann var virtur af sam- starfsmönnum sínum, ungum sem eldri og öllum sem hann starfs síns vegna hafði afskipti af. Tolli var maður sem leysti öll vandamál sem komu á hans borð og ævinlega með sínu einstaka jafnaðargeði. Hann var ofurdug- legur, glaður í vinnunni og hvers manns hugljúfi og bar bjartsýni í hús þegar hann mætti á morgnana. Þegar maður hitti Tolla í fyrsta skipti leið manni eins og maður hefði þekkt hann í áratugi. Allt sem hann gerði var gert á jafnréttisgrundvelli og skipti engu hvort um var að ræða nýliða í starfi eða marg- reyndan. Það er mannkostur sem eftir er tekið og þannig var hann Tolli okkar, vissi einhvern veginn allt og gerði og gat allt sem varðaði starfið og öll störf unnin í samstarfi og samráði alla tíð. Hann starfaði lengst af í al- mennu deild lögreglunnar og lengi á A-vaktinni en eftir að hann átti kost á því að vinna dagvinnu, þá tók hann því fagn- andi og sinnti margvíslegum störfum hjá okkur á lögreglu- stöðvum á öllu starfssvæðinu en aðalstarfsstöð þó á Akureyri. Hann var nefnilega líka hús- vörður hjá embættinu og yfir- smiður meðfram öllu hinu og í raun fátt sem ekki féll undir starfslýsinguna. Hann var ein- hvern veginn alltaf til staðar, alls staðar. Við fórum saman í fræga Pól- landsferð í september 2018 sem lengi verður í minnum höfð, A- vaktin á Akureyri og margir bættust í hópinn, yngri og eldri ásamt fangavörðum á Akureyri og var Tolli okkar þar með fremstu mönnum, hress og kát- ur. Í þessari ferð var margt brallað, skoðað og gert sem við höfum nú undanfarna daga hugsað um og bjarta minn- inguna um Tolla, dansandi hressan og kátan. Þannig viljum við minnast hans og þessara gleðistunda með honum. Við þökkum fyrir að hafa fengið að deila þessum tíma með honum. Skál fyrir þér vinur og takk. Hvað gerðist, við spyrjum, hvers vegna vinur? Af hverju er náttúran svona gerð? Svo stutt er síðan, við sátum með kaffið kortlögðum næstu Póllandsferð. Við félagar syrgjum, svo sáran við söknum, sjá stólinn þinn auðan erfitt er. En eitt er á hreinu, í hjarta okkar áttu ávallt þann stað sem hæfir þér. Gleðinnar gjafi, gegnheill í öllu, gladdir og kættir alla hér. Duglegur dáður, faðir og afi, fremstur í röð, já það fannst mér. Þú varst góður vinur, vildir gott gera. Gafst af þér tíma, ræddir mál. Með lausnirnar varstu, mældir og spáðir. Það var inngreypt í þína sál. Gleðinnar gjafi, gegnheill í hjarta, gladdir og kættir alla hér. Mættir að morgni með brosið bjarta og barst inn bjartsýni með þér. Við félagar syrgjum, svo sárt þín við söknum, sjá stólinn þinn auðan erfitt er. En eitt er á hreinu, er aftur við vökn- um við munum aldrei gleyma þér. Við munum aldrei gleyma þér. (AJ) Við vottum fjölskyldu Tolla okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd A-vaktar og Pól- landsfaranna, Aðalsteinn Júlíusson. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020 ✝ Hreiðar Holmfæddist 14. apríl 1928 og ólst upp í Reykjavík. Hann lést 3. mars 2020. Foreldrar hans voru Gunnlaugur Pétur Holm og Sig- rún Guðmunds- dóttir. Systkini: Guð- björg, látin, Herdís, Ásgeir og Reynir. Hreiðar giftist Sigríði Ólafs- dóttur 27. september 1952, hún lést 13.10. 2013. Börn þeirra eru Ólafur Ey- vinds Hreiðarsson, maki Helga Ingibjörg Kristjánsdóttir, þau eiga fjögur börn. Pétur Sophus Holm, maki Elena Holm hann á tvö börn. Sigfús Hreiðarsson, látinn, maki Anna Hafliðadóttir, þau áttu þrjú börn. Sigrún Sophia Hreiðarsdóttir, maki Bryngeir Torfason, þau eiga þrjú börn. Elín Hreiðarsdóttir, maki Júníus Ólafs- son, hún á þrjú börn. Hreiðar fór í Vél- skóla Íslands. Lengst af starfaði hann hjá Sambandi íslenskra sam- vinnufélaga sem yfirvélstjóri á fraktskipum þeirra. Hreiðar og Sigríður hófu bú- skap í Sörlaskjóli en bjuggu síð- ar á Kleppsvegi en lengst af bjuggu þau á Háaleitisbraut 123. Síðustu árin áður en Sigríður lést bjuggu þau á Boðagranda 2 en Hreiðar bjó síðustu ár á Hrafnistu við Brúnaveg. Vegna aðstæðna í þjóðfélag- inu verður útförin í kyrrþey. Eiginkona mín Regína og Sig- ríður, eiginkona Hreiðars, voru miklar vinkonur. Sú vinátta hófst áður en Regína náði tvítugsaldri og entist óslitið þar til Sigríður lést. Þann tíma sem við Hreiðar vorum starfandi var ekki mikið um samgang okkar í milli. Hreið- ar sem vélstjóri á fragtskipum var fjarri sínu heimili langtímum saman og ég upptekinn í minni vinnu. Eftir að Hreiðar kom í land hóf hann að iðka golf og hafði mikla ánægju af. Þegar ég lauk minni starfsævi sagði Regína að ég ætti að nýta minn frítíma með því að fara iðka golf eins og Hreiðar. Ég hafði ekki mikla trú á mér við slíka iðju. Hefi aldrei verið mikill íþróttamaður. Mig klæddi best að ganga um Heiðmörkina og njóta tilverunnar þar. En ég lét tilleiðast og þáði boð Hreiðars að fara með honum á golfvöllinn. Hann sýndi ótrúlega þolinmæði við að leiðbeina mér og telja í mig kjark. Þetta er upphaf þess að árum saman mættum við í Oddi og lékum okkar 9 holur. Þar fékk ég að kynnast mann- kostum Hreiðars og úr varð vin- átta sem aldrei bar skugga á. Það sem einkenndi Hreiðar var einstök snyrtimennska. Hann kom sér upp golfbíl þar sem hann átti erfitt með að ganga golfbrautirnar. Bíllinn var rauð- ur að lit og hans fyrsta verk áður en við hófum leik var að strjúka af öll óhreinindi þannig að reið- skjóti okkar gljáði í ferð okkar um svæðið. Eitt var það í fari Hreiðars sem vakti í senn aðdáun mína og öfund. Hann var listamaður í eðli sínu. Eftir hann liggja ótal myndir sem hann gerði í sínum frítíma á sjó eða landi. Þær eru listavel gerðar hvort sem um var að ræða svarthvítar teikningar eða að hann notaði pensilinn. Margar þeirra tengdust sjónum eins og eðlilegt er. Hann hefði áreiðanlega komist langt á sviði málaralistarinnar ef hann hefði valið þá leið að lífsstarfi. Við Regína færum börnum Hreiðars og öðrum afkomendum innilegar samúðarkveðjur. Þórður Haukur Jónsson. Kæri Hreiðar minn. Mig lang- ar að minnast þín með nokkrum orðum. Þú hafðir sæti þitt við hliðina á mér matsalnum hérna á Hrafnistu sem ég nefni á þýsku Rabennest sem er alveg út í hött. Nafnið Hrafnista var valið fyrir þetta dvalarheimili því Hrafnista er lítil eyja norðvestur af Skotlandi. Þar bjuggu afar fengsælir fiskimenn. Þess vegna var þetta nafn valið og þykir mér vel við hæfi. Ég sendi hér nokk- ur orð úr Jóhannesi 6. 44 (í laus- legri þýðingu minni): „Enginn getur komið til mín nema fað- irinn, sem sendi mig, leiðbeini mér.“ Hvíl þú í Guðs friði, kæri Hreiðar minn. Ég er viss um að tekið var vel á móti þér í hinu efra. Þín Ingrid María Paulsen. Hreiðar Holm Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, stúpmóður, ömmu og langömmu, ÓLAFÍU KATRÍNAR HANSDÓTTUR, sem lést mánudaginn 9. febrúar. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hjúkrunarheimilisins Grundar, Reykjavík. Ingiríður Hanna Þorkelsdóttir Elsa Sigurveig Þorkelsdóttir Már Guðmundsson Indriði Þorkelsson Anna María Soffíudóttir Valdís Brynja Þorkelsdóttir barnabörn og langömmubörn Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og fallegar kveðjur vegna andláts okkar ástkæru DAGBJARTAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við Hrafnistu í Hafnarfirði, einkum starfsfólki Bylgjuhrauns, fyrir alúð og góða umönnun hennar undanfarin ár. Guðmundur Unnarsson Kristín Sveinsdóttir Guðfinna Eyjólfsdóttir Sigurður G. Marteinsson Jón Þór Eyjólfsson Kolbrún Ögmundsdóttir Emil Þór Eyjólfsson Jónína Valtýsdóttir Erla Eyjólfsdóttir Ingi Gunnlaugsson Eydís Eyjólfsdóttir Stefán G. Einarsson Ómar Þór Eyjólfsson Þórey S. Þórðardóttir og fjölskyldur Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BIRGIR BJARNASON Aðalstræti 20, Bolungavík, áður bóndi á Miðdal, lést á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungavík 12. mars. Jarðsungið verður frá Hólskirkju Bolungavík laugardaginn 21. mars klukkan 14. Vegna sérstakra aðstæðna þarf að takmarka fjölda í kirkju. Útförinni verður útvarpað í bíla fyrir utan kirkju sem og yfir Bolungavík. Jónína Birgisdóttir Lárus Guðmundur Birgisson Hugrún Alda Kristmundsdóttir Guðný Eva Birgisdóttir Elías Þór Elíasson barnabörn, makar og barnabarnabörn Okkar ástkæra ÞÓRDÍS STEINUNN SVEINSDÓTTIR, Sólvangi, áður Smárahvammi 4, Hafnarfirði, lést á heimili sínu sunnudaginn 15. mars. Ingibjörg Jónsdóttir Guðmundur Rúnar Árnason Sigurður Jónsson Helga Arna Guðjónsdóttir Tryggvi Jónsson Guðrún Elva Sverrisdóttir Bryndís Magnúsdóttir Úlfar Hinriksson barnabörn og barnabarnabörn Elsku pabbi minn, bróðir okkar og mágur, GUÐMUNDUR S. INGIMARSSON Tunguheiði 6, Kópavogi, andaðist á líknardeildinni í Kópavogi þriðjudaginn 10. mars. Sökum aðstæðna fer útförin fram í kyrrþey en minningarathöfn verður auglýst síðar. Alexander Már Guðmundsson Guðrún Kristinsdóttir Helgi Stefánsson Alexander Ingimarsson Edda Ástvaldsdóttir Birna Rúna Ingimarsdóttir Friðþjófur Th. Ruiz Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HERDÍS ÓLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR ljósmóðir, lést sunnudaginn 8. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðmundur Sigmarsson börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.