Morgunblaðið - 20.03.2020, Side 11

Morgunblaðið - 20.03.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Starfsmannamyndir fyrir öll fyrirtæki og stofnanir Vönduð og hröð þjónust a Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Gerið verðsamanburð FULL BÚÐ AF NÝJUM OG FALLEGUM VÖRUM 7.990 kr. Jakki 5.990 kr. Kjólar Rafræn atkvæðagreiðsla hefst kl. 12 á hádegi mánudaginn 23. mars 2020. Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 12 á hádegi föstudaginn 27. mars 2020. Þann 23. mars nk. kl. 12 á hádegi hefst rafræn atkvæða- greiðsla um nýjan kjarasamning Eflingar – stéttarfélags og ríkisins. Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 12 á hádegi föstudaginn 27. mars. Atkvæðisrétt eiga félagsmenn Eflingar þar sem ríkið er launagreiðandi. Fái einnhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki aðgang að atkvæðagreiðslunni, getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu Eflingar fram til loka kjörfundar, og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram nauðsynleg gögn. Sjá nánari upplýsingar á www.efling.is Reykjavík, 19. mars 2020. Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags ATKVÆÐAGREIÐSLA um nýjan kjarasamning Eflingar við fjármála- og efnahags- ráðherra f.h. ríkissjóðs Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hildigunnur Hjálmarsdóttir í Reykjavík og Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir á Húsavík eru 100 ára í dag, 20. mars. Þar með hafa sjö Íslendingar náð þessum áfanga í mars og hafa sennilega aldrei verið fleiri í sama mánuði, að sögn Jón- asar Ragnarssonar. Jónas er sennilega manna fróð- astur um langlífi Íslendinga og sér meðal annars um Facebook-síðuna Langlífi. Hann segir að tíu sinnum hafi tveir Íslendingar náð hundrað ára aldri á sama degi. Fyrst 7. júní 1963, síðan tvisvar 1992 og 1995, einu sinni 2005, 2008, 2011 og 2015, og svo í dag. Af þessum tuttugu ein- staklingum eru fimm karlar. Á áttunda hundrað Íslendingar hafa orðið hundrað ára síðustu hálfa aðra öld, samkvæmt saman- tekt Jónasar. „Það hlýtur að teljast athyglisvert að í tíu skipti hafi hist þannig á að jafnaldrar upp á dag gátu haldið upp á að hafa lifað í heila öld,“ segir hann og bendir á að síðustu áratugi hafi aldrei fleiri en þrjátíu orðið hundrað ára á sama ári og stundum innan við tíu. Langlífir jafnaldrar Tvisvar hafi slíkir jafnaldrar náð 101 árs aldri, einu sinni 102 ára aldri og einu sinni 103 ára aldri, Helgi Símonarson á Dalvík og Ingi- björg Bjarnadóttir í Reykjavík, sem fæddust 13. september 1895. Ingibjörg lifði í 103 ár og 4 mánuði en Helgi í 105 ár og 11 mánuði og átti lengi aldursmet íslenskra karla. Hilma fæddist á Langanesströnd í Norður-Múlasýslu, dóttir Sigurðar Árnasonar, bónda í Saurbæ, og Guð- bjargar Stefaníu Þorgrímsdóttur. Hún var þriðja elst sex systra. Um tvítugt flutti hún til Húsavíkur og giftist Þór Péturssyni útgerðar- manni 1940. Hann andaðist 1989, en þau eignuðust sex börn og eru fjög- ur þeirra á lífi. Hilma er minnug og ern, en gat ekki verið í símaviðtali. Spjallað var við hana í afmælisblaði Framsýnar fyrir um tveimur árum. „Það var lif- að á því sem landið gaf,“ sagði hún þar meðal annars um uppvaxtarárin, en hún vann alla tíð mikið. Judith 100 ára í gær Þess má svo geta að í gær varð Ju- dith Júlíusdóttir 100 ára en hún býr í Seljahlíð við Hjallasel. »Baksíða Tvær íslenskar konur 100 ára sama daginn Aldur Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir á Húsavík er 100 ára í dag. Myndin birtist í afmælisblaði Framsýnar 2018.  Jafnaldrar hérlendis ná þessum áfanga í tíunda sinn Kjarasamningur hefur tekist á milli Blaðamannafélags Íslands (BÍ) og Samtaka atvinnulífsins. Hann er í anda lífskjarasamningsins, en nokkur atriði eru til viðbótar sem snúa sérstaklega að aðstæðum í blaðamannastétt og starfsskil- yrðum blaðamanna. Í bréfi til blaðamanna í gær kvaðst Hjálmar Jónsson, formaður BÍ, stoltur af framgöngu blaða- manna á liðnum mánuðum og sam- stöðunni sem þeir hefðu sýnt við mjög erfiðar aðstæður í efnahags- lífinu og hjá fjölmiðlum. Samning- urinn er afturvirkur frá 1. mars. Samið við Blaðamannafélag Íslands Átján sóttu um starf borgarritara hjá Reykjavíkurborg, en umsókn- arfrestur var til og með 16. mars. Starfið var auglýst eftir að Stefán Eiríksson sagði starfi sínu lausu, en hann var ráðinn útvarpsstjóri. Í hópi umsækjenda eru m.a. karl- ar og konur sem eru þjóðkunn af núverandi eða fyrri störfum. Þar má nefna Jón Þór Sturluson, fyrr- verandi aðstoðarforstjóra Fjár- málaeftirlitsins, Kristínu Þorsteins- dóttur,fyrrverandi útgefanda Fréttablaðsins, Margréti Hall- grímsdóttur þjóðminjavörð, Stein- unni Guðbjartsdóttur, fyrrverandi formann slitastjórnar Glitnis, og Þorstein Gunnarsson sveitarstjóra. Átján sóttu um starf borgarritara Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.