Morgunblaðið - 20.03.2020, Page 26

Morgunblaðið - 20.03.2020, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2020 ENGLAND Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson hefur ekki leikið með enska B-deildarfélaginu Millwall síðan 6. mars síðastliðinn, þar sem öllum leikjum deildarinnar var frest- að vegna kórónuveirunnar. Þrátt fyrir útbreiðslu veirunnar er áfram æft hjá Lundúnafélaginu. „Við höfum til skiptis verið að æfa og í fríi. Við fengum að vita rétt fyrir síðustu helgi að deildinni yrði frest- að til 4. apríl. Maður bjóst alveg við því að þetta myndi gerast. Við feng- um fjögurra daga frí til að byrja með en svo höfum við eitthvað æft, en það er ekkert æft hjá sumum liðum, þar sem leikmenn eru í einangrun og æfa einir síns liðs. Við tökum fjóra daga þar sem við æfum núna og þetta er frekar skrítið. Manni líður eins og tímabilið sé búið og það er allt í lausu lofti. Enginn veit hvað mun gerast og það er voðalega mikil óvissa.“ sagði Selfyssingurinn í sam- tali við Morgunblaðið. Skrítið andrúmsloft Hingað til hefur Jóni Daði ekki verið ráðlagt að halda sér heima fyr- ir þrátt fyrir veiruna, en það gæti breyst fljótlega. „Englendingarnir eru ekkert bún- ir að gera nema fyrst núna þegar þeir lokuðu skólum. Það er greini- lega einhver stígandi í þessu hjá þeim og það er meiri alvara í þessu,“ sagði Jón Daði. Hann viðurkennir að andrúmsloftið hjá félaginu sé skrítið á þessum óvissutímum. „Það er skrítið andrúmsloft. Það er enginn að vinna í mötuneytinu og því enginn matur á æfingum. Okkur var svo skipt í þrjá hópa og settir í þrjá mismunandi klefa til að minnka áhættuna á smiti. Þá vorum við líka mældir með hitamæli áður en æfing- in byrjaði. Við vorum prófaðir fyrir veirunni og sem betur fer var enginn með hana. Við höfum nálgast þetta með varúð, sem er svolítið fyndið því þetta er leikur með snertingum. Ég held að flestir séu ánægðir með að fá að halda áfram að æfa og aðeins halda í eðlilegt ástand. Við erum samt mjög varkárir og allir hrein- skilnir. Um leið og einhver finnur fyrir einhverju er það tilkynnt.“ Engin návígi á æfingum Hann segir engin návígi á æfing- um, til að koma í veg fyrir hugsanleg smit. „Við vorum ekki með stutt spil eða neitt svoleiðis heldur skiptum við okkur í hópa. Sóknarmennirnir voru í sérstökum æfingum við að klára, varnarmenn í öðru og svo miðjumenn í enn öðru. Þetta var sett upp þannig að við værum ekki of ná- lægt hver öðrum. Þetta er voðalega spes og það verður forvitnilegt að sjá hvernig þetta þróast. Eins og er verðum við bara að æfa og fá frí af og til.“ Eins og staðan er núna er Millwall í áttunda sæti B-deildarinnar, aðeins tveimur stigum frá Preston í sjötta sæti. Sæti þrjú til sex gefa þátttöku- rétt í umspili þar sem keppt er um að fylgja tveimur efstu liðunum í úr- valsdeildina. Jón Daði viðurkennir að það sé súrt að þetta skuli koma upp á þessum tímapunkti. Auðvitað ömurleg staða „Þetta er auðvitað ömurleg staða og ekki bara fyrir okkur heldur líka fullt af öðrum stórum klúbbum á Englandi og í heiminum. Þetta hittir svakalega illa á og það er mikið í húfi. Auðvitað er þetta erfið staða en þegar mannslíf eru í húfi verðum við að taka þessu af fullri alvöru. Þegar allt kemur til alls er fótboltinn bara leikur. Þetta eru erfiðir tímar og ég veit ekki hvernig þetta þróast. Vonandi mun þetta allt saman lagast og við allavega ná að spila á tómum leikvöngum. Það væri ósk- andi að klára þetta blessaða tímabil. Það eru bara níu leikir eftir. Eins og er þá er frestað til 4. apríl en svo get- ur það breyst á 0,1 sekúndu. Maður fylgist með fréttum á hverjum degi og fer eftir reglum. Maður fylgist vel með ef breska ríkisstjórnin segir eitthvað,“ sagði Jón, sem styður þá ákvörðun UEFA að fresta umspils- leiknum við Rúmeníu til sumars og lokakeppni EM um heilt ár. „Þetta þurfti að gera og allir í landsliðinu sýna því skilning. Þetta er leiðinleg staða en öryggi lands- manna skiptir mestu máli. Það er al- gjörlega þess virði að fresta þessum leik og EM líka. Það er mjög já- kvætt að þessi leikur verður á Ís- landi að sumri til, þar sem íslensku veturnir eru auðvitað oft helvíti harðir,“ sagði Jón Daði Böðvarsson. Óskandi að geta klárað tímabilið  Jón Daði Böðvarsson og félagar hjá Millwall æfa í þremur hópum Morgunblaðið/Eggert Millwall Jón Daði Böðvarsson æfir áfram af fullum krafti með enska liðinu en enginn veit ennþá hvenær verður spilað á ný á Englandi. verði að minnsta kosti til 15. júlí ef keppni nái að fara aftur af stað í vor. Níu umferðum er ólokið í ensku úrvalsdeildinni þar sem Liverpool er með 25 stiga forystu og þarf aðeins sex stig til að tryggja sér sinn fyrsta meistaratitil í þrjátíu ár. Í B-deildinni eru einnig eftir níu umferðir, auk umspils, og þá er eftir að ljúka ensku bik- arkeppninni þar sem komið var að átta liða úrslitum þegar keppni var slegið á frest fyrr í þessum mánuði. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Enska knattspyrnusambandið og stjórnir úrvalsdeildarinnar og ensku deildakeppninnar í karla- og kvennaflokki tóku í gær sameig- inlega ákvörðun um að fresta öll- um fótbolta á Englandi til 30. apr- íl, hið minnsta. Samtök atvinnuknattspyrnumanna og sam- tök knattspyrnustjóra áttu einnig aðild að ákvörðuninni. Áður hafði keppni verið frestað til 4. apríl vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Í sameiginlegri yfirlýsingu frá þessum aðilum kemur fram að stefnt sé að því að halda áfram keppnistímabilinu 2019-20 og ljúka allri keppni eins fljótt og óhætt sé og mögulegt. Eftir að lokakeppni EM karla var frestað til sumarsins 2021 hafa Englendingar og aðrir sem eiga eftir að ljúka sínum tímabilum svigrúm frameftir sumri og jafnvel lengur ef þörf krefur. Formaður franska knattspyrnusambandsins hefur þegar lýst því yfir að þar í landi megi búast við því að spilað Englendingar fresta öllu út apríl AFP Liverpool Mohamed Salah og fé- lagar eru með 25 stiga forskot. Hvíta-Rússland Energetyk Minsk – BATE Borisov........ 3:1  Willum Þór Willumsson kom inn á sem varamaður á 77. mínútu hjá BATE Borisov í stöðunni 2:1.  Fyrstu tveir leikir tímabilsins í hvítrúss- nesku deildinni fóru fram í gær.  20. mars 1970 „Atvinnumennska er það sem maður hefur atvinnu af. Og flestir munu sjá hve vonlítið það er að hér á landi verði hópur íþróttamanna á launum við að æfa íþróttir. Að taka upp at- vinnumennsku er því miklu umfangsmeira mál en nokkurn grunar. Ætti því ekki heldur að hugleiða önnur ráð til úrbóta?“ skrifar Atli Steinarsson íþrótta- fréttamaður í pistli í Morg- unblaðinu. Kveikjan að því er umræður um hvort taka eigi upp atvinnumennsku í hand- knattleik eftir að Ísland hafn- aði í 11. sæti á HM karla. 20. mars 1972 Íslenska karlalandsliðið í handknattleik er einum leik frá því að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í München eftir sigur á Austurríki, 25:19, í milliriðli undankeppninnar í Bilbao á Spáni. Gísli Blöndal skorar sjö mörk og Geir Hall- steinsson sex en íslenska liðið nær mest átta marka forystu. 20. mars 1982 „Næsta öruggt er að hann verður markakóngur eftir sýninguna í gær,“ skrifar Morgunblaðið um Alfreð Gíslason eftir að hann skor- aði 21 mark fyrir KR í sigri á KA, 33:20, á Íslandsmóti karla í handknattleik kvöldið áður og hafði þar með gert 18 mörkum meira en Kristján Arason FH-ingur. 20. mars 1993 Bjarki Sigurðsson er valinn í sjö manna úrvalslið HM karla í handknattleik eftir frammi- stöðu sína með íslenska lands- liðinu í Svíþjóð. Þar er hann í hópi með mönnum á borð við Talant Dusjebaev, Marc Baumgartner og Magnus Andersson, sem er valinn besti leikmaður keppninnar. 20. mars 2002 „Þetta er mjög spennandi verkefni, mig hefur lengi langað til að prófa að þjálfa karlalið og ég er mjög ánægð með að for- ráðamenn Neista skyldu þora að gefa mér þetta tækifæri,“ segir Vanda Sigurgeirsdóttir sem fyrst kvenna er ráðin þjálfari íslensks karlaliðs í fótbolta, Neista á Hofsósi. 20. mars 2016 Aníta Hinriksdóttir skipar sér í hóp bestu 800 metra hlaup- ara heims þegar hún hafnar í fimmta sæti í greininni á heimsmeistaramótinu í frjáls- íþróttum innanhúss í Portland í Bandaríkjunum. Í stigum reiknað er þetta fjórði besti árangur Íslendings á HM í frjálsíþróttum frá upphafi. Á ÞESSUM DEGI Framkvæmdanefnd Ólympíu- leikanna 2020 í Tókýó tók í gær við ólympíueldinum úr höndum Grikkja við látlausa athöfn án áhorfenda á Panathenaic- leikvanginum í Aþenu, en á þeim leikvangi voru fyrstu nútímaleik- arnir haldnir árið 1896. Eldurinn var að vanda kveiktur í Ólympíu á vesturströnd Grikklands fyrir viku en eftir tæpan sólarhring var hlaupinu með hann á milli borga í landinu hætt þar sem það dró að sér of marga áhorfendur. Japanir tóku við eldinum og hon- um var komið fyrir í flugvél merktri „Tokyo 2020 Go“ sem flaut með hann til Tókýó í gær. Yoshiro Mori, forseti fram- kvæmdanefndar Ólympíuleikanna, sagði í myndávarpi frá Tókýó að hann vonaðist til þess að koma elds- ins til Japan myndi hjálpa til við að blása burt þeim svörtu skýjum sem héngju yfir heimsbyggðinni þessa dagana vegna kórónuveirunnar. Leikarnir eiga að fara fram 24. júlí til 9. ágúst og síðan tekur við Ólympíumót fatlaðra, Paralympics, frá 25. ágúst til 6. september. AFP Eldurinn Japanska sundkonan Imoto Naoko tekur við ólympíueldinum fyrir hönd þjóðar sinnar á gamla ólympíuleikvanginum í Aþenu. Japanir tóku við ólymp- íueldinum í Aþenu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.